Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Ragnhildur Alda deilir lífsreynslu eftir að hafa lent á vegg: „Ég var farin að fá ofsakvíðaköst“

„Pabbi minn var á þingi. Hann Vilhjálmur Egilsson. Þannig að ég er svolítið fædd og uppalin í þessum bransa, þannig að ég fer inn í þetta alveg með opin augu,“ segir Ragnhildur Alda María Vilhjálms­dóttir, fyrsti vara­borgar­fulltrúi Sjálfstæðis­flokksins í Reykjavík, sem hefur ákveðið að gefa kost á sér til þess að leiða lista Sjálfstæðis­manna í borginni fyrir kosningar í vor.

Ragnhildur Alda er með B.Sc.-gráðu í sálfræði frá Háskóla Íslands og meistara­gráðu í þjónustu­stjórnun frá viðskipta­fræði­deild HÍ. Hún fór í stúdenta­pólitíkina í Háskóla Íslands þegar hún stundaði þar nám á sínum tíma; hún var í Vöku og var formaður fjölskyldu­nefndar stúdenta­ráðs Háskóla Íslands. Hún var á sama tíma kosin vara­formaður Heimdalls, félags ungra Sjálfstæðis­manna í Reykjavík. „Svo eftir Heimdall fór ég í Vörð, fulltrúaráð sjálfstæðis­félaganna í Reykjavík, og var í stjórn Varðar í tvö ár. Þannig að ég er búin að vera virk bæði í innra starfi flokksins og eins í stúdenta­pólitíkinni. Svo hef ég verið mjög ötul í að starfa í kosninga­baráttu. Ég er orðin ansi seig í pólitíkinni.“

Hún ólst upp á heimili þar sem væntanlega var mikið talað um pólitík. Hvað heillaði hana og heillar augljós­lega enn við pólitíkina? „Það sem mér hefur alltaf þótt mest heillandi, er að þeir sem eru í stjórn­málum fá ákveðið tækifæri til þess að þjónusta fólk með miklu virkari hætti en venjulega. Við erum öll með mismun­andi þarfir og það er hlutverk stjórn­málamanna að koma með lausnir sem henta sem flestum sem best í rauninni.“

Ef stjórn­mála­menn hafa ekki áhuga á öllu ókunn­uga fólk­inu í kringum sig þá eru þeir ekki á réttum starfs­vett­vangi

Hún segist oft tala mikið við fólk sem hún þekkir jafnvel ekki vel og segist einfald­lega hafa áhuga á því sem fólk hefur að segja. „Ef stjórn­málamenn hafa ekki áhuga á öllu ókunnuga fólkinu í kringum sig þá eru þeir ekki á réttum starfs­vettvangi.“

Á hvað vill svo Ragnhildur Alda leggja áherslu? „Ég ætla að vera alda breytinga eins og maður segir.“ Hún hlær. „Leikur að orðum þarna; ég hef svo gaman af svona orða­leikjum. Mér hefur þótt stefnu­mótun borgarinnar í samgöngu-, húsnæðis- og skóla­málum og öllum þessum grunn­þjónustu­stoðum hafa einkennst mikið af forræðis­hyggju. Og þetta er bara góð leið að mjög lélegri þjónustu. Við erum bara þannig gerð að við getum aldrei séð fyrir nákvæmlega hvað fólk þarf, þannig að við þurfum alltaf að bjóða upp á marga fjöl­breytta möguleika. Ég vil láta af þessari forræðis­hyggju; snúa algjör­lega við blaðinu og byggja borgina frekar upp og móta stefnu­mótun þannig að hún verði raunsæ. Íbúum borgarinnar fer fjölgandi og eins og bent er á í skýrslu Húsnæðis- og mannvirkja­stofnunar, þá mun þurfa 27.000 íbúðir á næstu átta árum til þess að mæta þörfinni. Þetta kallar á mikla uppbyggingu í innviðum, þetta kallar á að borgin þurfi að stækka og þetta kallar á að við þurfum að láta af einstreng­ingslegum skoðunum á því hvernig hlutirnir eigi að vera og bregðast strax við í að bæta umferð. Umferðin mun aukast. Þannig að við þurfum að finna leið til þess að bæta flæði og þjónustu, en ekki reyna að stýra fólki varðandi það hvað á að gera. Fólk á að geta átt val. Og ég vil veita fólki val.“

Lenti á vegg

Ragnhildur Alda er gift Einari Friðriks­syni og á hún soninn Vilhjálm. Hún segir áhuga­málin vera ferðalög, jóga og hugleiðslu og svo elskar hún kökur og eftir­rétti. Þá segist hún vera mikil hundakona og fjöl­skyldan á hund. Svo nefnir hún hámáhorf.

„Ég geri þetta grimmt um jólin; þá tek ég alla þríleikina og reyni helst að klára nokkrar seríur. Svo er ég sólgin í Agatha Christie-bækur og glæpa­sögur með flottum kven­hetjum.“ Hún nefndi jóga og hugleiðslu; hún segist stunda jóga aðallega til að halda geðheilsunni í lagi. Ragnhildur Alda segist hafa hlaupið á vegg. Lent á vegg. Það gerðist þegar hún var 21 árs.

„Ég var ófrísk þegar ég var 19 ára og byrjaði að upplifa mikinn kvíða á meðgöngunni og þá var allt annað viðhorf en er í dag varðandi slíkt. Ég fór til ljósmóður og talaði um þetta og hún spurði hvort ég væri ekki bara þreytt; ég sagði að svo væri ekki, heldur að mér liði bara illa. Það vissi enginn að það væri eitthvað „thing“ að vera með kvíða á meðgöngu. Það var talað um fæðingar­þunglyndi, en allt sem tengdist meðgöngunni; hvað var það? Ég hafði áður farið til heimilis­læknisins til að reyna að segja frá þessu og hann mælti með því að ég hlustaði á róandi spólur. Þetta var mjög fínn karl og hann meinti vel; við erum búin að ná stórkost­legum framförum hvað þetta varðar í þessari vitundar­vakningu.“

Fólk kann­að­ist ekki við mig lengur af því að ég var orðin alger hrísla vegna kvíða

Ragnhildur Alda segir að henni hafi á þessum tíma fundist hún vera undir svo mikilli pressu um að standa sig og sýna öllum að það hefði nú engin áhrif á hana að verða ung móðir og það væri ekkert að fara að stoppa hana. „Ég fór svo í algeran yfir­snúning. Svo fór maður í „crash“; ég hljóp allavega á vegg.“ Hún lenti á vegg. „Ég þurfti einfald­lega alveg að draga mig í hlé. Ég var komin með mikinn kvíða og þetta gerði að verkum að ég þurfti algerlega að breyta um hugarfar og þetta er eitt það versta sem ég hef lent í. Kvíðinn var mjög slæmur og þetta var þannig á tímabili að mér fannst orðið erfitt að fara út úr húsi, sem er ólíkt mér. Fólk kannaðist ekki við mig lengur af því að ég var orðin alger hrísla vegna kvíða. Það var samt bæði það versta og besta sem ég hef lent í, vegna þess að þegar maður lendir í því að missa allar undir­stöður og byggja sig upp á nýtt þá verður maður miklu sterkari. Ég er ekki frá því að það að hafa lent í þessu 21 árs hafi gert að verkum að ég þoli miklu meira álag í dag heldur en ella.“

Ragnhildur Alda segir að erfiðasta augna­blikið á því ári, þegar henni leið sem svona illa, hafi verið þegar hún áttaði sig í raun á hvað hún væri komin með mikinn kvíða. „Þá fór ég til sálfræðings og það var punkturinn; það var þessi botn. Ég hafði ekki stjórn á þessu og ég var farin að fá ofsa­kvíðaköst. Það var ógeðslega skrýtin tilfinning að geta ekki spyrnt við fótum þegar það gerðist. Ég held að það hafi verið versti dagurinn á þessu tímabili. Ég tók þetta föstum tökum eftir þetta. Ég fór í gegnum sjálfs­vinnu í tengslum við þetta og var bara orðin helvíti brött ári síðar.“

Getur hjálpað

Ragnhildur Alda segist eiga vinkonur sem hafi lent í kulnun og fengið áfalla­streitu­röskun og að þar sem hún sé sú fyrsta í vinkvenna­hópnum til að lenda í andlegum erfið­leikum þá hafi þær getað leitað til hennar. „Það er kostur að þekkja einhvern sem hefur lent í svona og sem hefur komist upp úr svona erfið­leikum og þá getur fólk séð að það er annar kafli eftir. Þannig að ég er svolítið ánægð með að hafa fengið að lenda í þessu frekar snemma og geta verið ljós í myrkri fyrir svo allar hinar sem lenda í þessu síðar á lífs­leiðinni. Það er óumflýjanlegt að lenda í áföllum. Það er bara partur af lífinu. En það er eitt sem er svo mikilvægt að muna: Hugrekki er ekki eitthvað sem maður fæðist með; það er eitthvað sem maður lærir af því að taka sénsinn: Mistakast en halda áfram að taka sénsinn.“

Og ég held að það sé gott að hafa ein­hvern í for­svari sem hefur ekki bara skiln­ing á þessu heldur per­sónu­lega reynslu

Ragnhildur Alda er spurð hvernig þessi reynsla geti nýst henni í því starfi sem hún sækist eftir. „Ég held að þetta hafi mjög mikið að segja. Þetta kennir manni ákveðin bjargráð sem eru rosalega góð til þess að nýta þegar streitan kemur. Starfinu sem ég sækist eftir fylgir mikil streita þannig að maður þarf að kunna svolítið að lifa í gegnum hana og jafnvel ná að nýta þessa streitu í eitthvað jákvætt. Ég held þess vegna að þetta muni gagnast mér ótrúlega, fyrir utan það að samfélagið er orðið miklu opnara í að tala um vandamál af þessum toga en áður og við erum aktífari í að fatta hversu mikil áhrif þetta hefur. Það er meira um kulnun en áður og fólk veit meira um kulnun. Og ég held að það sé gott að hafa einhvern í forsvari sem hefur ekki bara skilning á þessu heldur persónu­lega reynslu. Ég held að það sé í rauninni framtíðin, af því að miðað við prósentu­hluta fólks sem hefur lent í svona – hvort sem það er kvíði, kulnun, þunglyndi eða streita – þá er þetta bara eitthvað sem meirihluti lands­manna er að díla við hvort sem er.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Tveggja barna faðir skotinn til bana á þakkar­gjörðar­daginn

Lögregla var kölluð til vegna tilkynninga um vopnaðan mann sem reyndi að taka bifreiðar með valdi.
Heimur

Sautján ára skóla­stúlka lést eftir árás

Innlent

Húsfélagi óheimilt að rukka skrópara

Fólk

Fimm ráð Kristjönu til að halda á sér hita í vetur

Innlent

Mál vegna gruns um kynferðis­brot í Garðaseli fellt niður

Innlent

Kveikti í íbúð með vél úr mótor­hjóli

Leigjandinn viðurkenndi að eldurinn hefði kviknað vegna gáleysis hans

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Eftir­lýstur maður óvænt gripinn

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu