Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Sport

Hver er Theodór Elmar?

Innlent

Myglu­eitur í hveiti

Fólk

Notalegt fjöl­skyldu­hús með nægu rými úti og inni til sölu

Pólitík

Segir Ísland úti­loka einmitt þá inn­flytj­endur sem landið þarf á að halda

Heimur

Breskir grínistar héldu leyni­lega lista yfir kyn­ferð­is­leg rán­dýr

Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Pólitík

Segir trygg­inga­fé­lögin „gambla“ með fé úr bóta­sjóðum

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Innlent

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Heimur

Nýtt lyf í töflu­formi vekur vonir í bar­átt­unni við briskrabba­mein

Björk og Rosalía gefa út kraftmikla smáskífu – Sjáðu myndbandið!

Rosalía og Björk
Rosalía og Björk Mynd: Trausti Hafsteinsson

Björk og Rosalía hafa sam­einað krafta sína og senda frá sér nýja kraft­mikla smá­skífu sem kall­ast „Oral“. Þetta er í fyrsta skipti sem þær vinna saman. Lagið er pródúserað af lista­kon­unum og Sega Bodega. Mark­miðið með útgáfu lags­ins er að vekja athygli á ógn­vekj­andi grimmd þegar kemur að sjó­kvía­eldi og þeim alvar­legu umhverfis- og vist­fræði­legu afleið­ingum sem sjó­kvía­eldi hefur.

[Myndverk – James Merry]Hér má lesa frétta­til­kynn­ingu vegna útgáf­unnar:

Sögu lags­ins má rekja tvö ára­tugi aftur í tím­ann. Lagið var samið á tíma­bil­inu milli Homogenic (1997) og Vespertine (2001) en end­aði með öðrum ótút­gefnum lögum þar sem keimur „Oral“ var ólíkur því efni sem end­aði á plöt­unni. Björk end­ur­upp­götv­aði lagið í kjöl­far þess að tit­il­inn bar á góma þegar hún var á tón­leika­ferða­lagi um Ástralíu í mars 2023. Í sama mán­uði var birt skýrsla sem fjall­aði um skað­leg áhrif á íslenskt vist­kerfi vegna óljós reglu­verks í kringum norskt sjó­kvía­eldi.

Eftir að hafa fundið mik­inn sam­hljóm með mál­efn­inu og sem ástríðu­full bar­áttu­kona fyrir ýmis mál­efni í gegnum tíð­ina, fékk Björk Rosalíu til liðs við sig til að lífga lagið við og í kjöl­farið vekja athygli á mál­staðnum. Sjó­kvía­eldi var kynnt fyrir Íslend­ingum þegar norskir við­skipta­menn hófu að kaupa eld­is­stöðvar í íslenskum fjörðum. Vinnu­að­ferðir flýta fyrir vexti fiskanna og í mörgum til­vikum með þeim afleið­ingum að gena­breyt­ingar eiga sér stað í erfða­efni lax­anna. Í ofan á lag eru eld­is­stöðv­arnar gróðr­ar­stía fyrir ýmis sníkju­dýr og sjúk­dóma. Iðn­að­ur­inn á Íslandi hefur tífald­ast síðan 2014, upp­haf­leg fram­leiðsla var undir 4000 tonnum en var komin upp í 45.000 tonn 2021, áætluð árs fram­leiðsla nú gæti verið allt upp að 106.500 tonnum.

Á Íslandi má finna stærsta svæði ósnertrar nátt­úru í Evrópu. Úrgang­ur­inn og meng­unin sem fylgir sjó­kvía­eldi ógnar haf­svæð­inu og getur skaðað vist­kerfi þess til fram­búðar. Skortur á reglu­kerfi og lítið eft­ir­lit með iðn­að­inum hefur líka haft þær afleið­ingar að þús­undir laxa sleppa reglu­lega og synda upp í ár á hálend­is­svæðum Íslands og ögra þannig íslenska laxa­stofn­inum.

Björk og Rosalia hafa ákveðið að gefa AEGIS sjálfs­eign­ar­stofn­un­inni allan rétt þeirra til tekna af lag­inu Oral til að berj­ast gegn sjó­kvía­eldi á Íslandi. Plötu­fyr­ir­tæki þeirra hafa sam­þykkt að gera slíkt hið sama. Allar tekjur munu ganga til greiðslu lög­fræði­kostn­aðar mót­mæl­enda, aðgerða til að stöðva upp­bygg­ingu eld­is­stöðva sem skaða dýra­líf, afskræma fiska, og skapa hættu á erfða­blöndun eld­is­lax við villta laxa­stofna og skaða þannig mögu­leika þeirra til að lifa af í nátt­úr­unni. Taf­ar­lausar aðgerðir skipta sköpum.

Frekari upp­lýs­ingar um fisk­eldi á Íslandi má nálg­ast á Icelandic Wildlife Fund.
Und­ir­síða um aegis/oral á vef­síðu Bjarkar: https://www.bjork.com/aegis
Vefsíða Aegis: https://www.aegiswatch.is/

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Upptökurnar eru frá Mið-Austurlöndum og ná yfir árin 2020 til 2026. Varnarmálaráðuneytið segir enn óljóst hvað þær sýni.
Heimur

Maður stung­inn í Las Palmas

Heimur

Ljósmynd af logum ræsti sjálf­virkt slök­kvikerfi

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Tölvu­þrjót­arnir sem réð­ust á 1984 skemmdu sjö vef­síður tengdar Palest­ínu

Menning

Ein besta rapp­sveit Íslands­sög­unnar snýr aftur á svið

Dóttir.x til­nefnd til Music Moves Europe-verð­laun­anna 2027