Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Heimur

Kærastan fann dagbækurnar og sleit sambandinu við David Walliams

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sambands­afmæli með kærustunni

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Heimur

Prestur rifjar upp óþægilega reynslu úr æsku

Fólk

Fjórum árum eftir að heilinn hótaði uppsögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Heimur

Lögregla fjarlægði mótmælanda eftir að hafa ruglast á áletrun á bol hans

Heimur

Raun­veruleika­stjarnan Sheila Mangubat látin 35 ára að aldri

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Edda Falak vildi hlífa sér og þeim sem sýndu henni vanvirðingu: „Ég er breysk eins og annað fólk“

Edda Falak tjáði sig í fyrsta sinn opinber­lega í gærkvöldi eftir brott­hvarf af Heimildinni. Setti hún inn færslu á Facebook þar sem hún segist hafa „einfaldað“ frásögn sína af viðhorfum sem hún kynntist í fjármála­lífinu í Danmörku bæði til þess að hlífa sjálfri sér og fólki sem sýndi henni vanvirðingu. Í færslunni segist hún hafa mátt þola neikvæða umræðu um sig á opinberum vettvangi og verið ein þegar fjöl­miðlar hringdu stöðugt og kröfðu hana svara. Pistilinn má lesa í heild sinni hér að neðan.

„Kynbundið ofbeldi þrífst í samfélagi þöggunar – í samfélagi sem beitir miskunnar­lausri þöggun á þolendur, aðstand­endur, aktívista og stjórnmála­fólk ef það sýnir minnstu tilburði til að ógna stöðug­leika þagnarinnar“, sagði Sóley Tómasdóttir þegar hún ávarpaði druslu­gönguna árið 2015.

Ég var 23 ára, síðan þá hefur mikið vatn runnið til sjávar. Hver byltingin hefur elt aðra og ég fann mig, ásamt ýmsum öðrum konum, óvænt í stafni feminískrar baráttu. Ég er stolt af því sem ég hef gert.

Mitt aðalstarf undan­farið hefur verið að gefa brota­þolum rými til að koma sögum sínum á framfæri þar sem þau skortir oft félagslegt vald til þess. Hluti af þeirri vinnu hefur auk þess verið að benda á þann samhljóm sem komið hefur fram í reynslu­sögum þeirra þar sem það sýnir okkur sem samfélagi að vandinn er kerfis­lægur. Þó svo að ég hafi staðið í stafni barátt­unnar þá er ég ekki baráttan og baráttan er ekki eingöngu mín. Hluti af vanda­málinu núna, eins og svo oft áður, er að baráttan er persónu­gerð og þannig er hægt að ýta til hliðar fjölda upplifana sem komið hafa fram og áminningum um djúp­stæðan kerfis­lægan vanda undir þeim formerkjum að mér sem persónu sé ekki treystandi. Ég hef staðið mikið til ein í þessum stafni. Ég stend auðvitað við hlið ótrúlegs fjölda kvenna sem hefur leyft mér að eiga hlut í þeirra baráttu með því að gefa þeim orðið. Eins stend ég við hlið annarra kvenna sem standa í sömu baráttu á öðrum vettvangi. En ég hef líka verið ein. Ég er ein alla daga þegar fjöl­miðlar hringja látlaust og krefja mig svara við öllu og engu. Ég var ein að undirbúa herferðir og viðtöl, mín eigin og annarra og bar á því ábyrgð sjálf. Ég stend undir þeirri ábyrgð. Ég hef lært mikið frá því að þessi vegferð hófst, ég hef vandað vinnu­brögð mín og gert allt sem ég get til þess að viðhalda trúverðug­leika mínum, viðmælenda minna vegna.

Áður var ég við nám í Copenhagen Business School þar sem ég var í tengslum við fjármála­fyrirtæki, bæði á meðan að á námi mínu stóð og eftir nám. Ég kynntist fjármála­lífinu í gegnum viðburði, verkefni og námið mitt. Í viðtölum sem ég veitti eftir heim­komuna reyndi ég að varpa ljósi á menningu og viðhorf sem ég mætti þar. Hugsun mín í þeim viðtölum var að einfalda frásögnina í þeirri viðleitni að hlífa sjálfri mér og þeim sem sýndu mér vanvirðingu. Ég er breysk eins og annað fólk. Ég hef beðist velvirðingar á því.

Það sem ég veit fyrir víst er hvaða viðhorfum ég mætti þarna úti, sem og hér heima. Ég og allar hinar. Ég mun halda áfram að segja okkar sögur. Alveg sama hvaða gröftur vellur upp. Því kven­fyrir­litning og kerfis­bundið ofbeldi gegn konum á ekki að viðgangast í heil­brigðu samfélagi.

Staðreyndin er sú að ég hef skrifað þennan pistil áður. Ég skrifaði hann árið 2021, ég skrifaði hann árið 2022 og nú skrifa ég hann aftur árið 2023. Síðastliðin tvö ár hef ég þurft að þola linnulaust áreiti og árásir fyrir það eitt að veita þolendum ofbeldis vettvang til að segja sína sögu. Ég þarf stöðugt að þola neikvæða umræðu um mig sem persónu á opinberum vettvangi. Ég hef verið uppnefnd og gerð að skessu af heilu bæjar­félagi, dregin fyrir dóm vegna starfa minna, mér hafa borist hótanir um ofbeldi og ókunnugir hafa bankað upp á heima hjá mér. Nafnið mitt hefur verið notað yfir 700 sinnum í fréttir og fyrir­sagnir. Fólk hefur með einbeittum vilja reynt að grafa upp einhvern skít, skáldað hann upp þegar hann finnst ekki, rýnt í gamlar ritgerðir, grafið undan mér, og reynt að mála mig upp sem ótrú­verðuga og í tortyggilegu ljósi. Allt saman þöggunar­tilburðir sem við þekkjum alltof vel í okkar samfélagi og alltof margar konur og þolendur ofbeldis hafa þurft að sæta, af hálfu þeirra sem virðast eiga þeirra hagsmuna að gæta að þolendur þegi. Ég hefði aldrei tekið viðtal við neina þolendur ef ég hefði hlustað á allt sem sagt er til að ófrægja þau.

Eftir allt sem á undan er gengið er nauðsynlegt fyrir mig að staldra við og hlúa að sjálfri mér. Ég ætla að nýta tímann til þess að hvíla mig og ákveða næstu skref. Árásir á mína persónu munu ekki stoppa mig né aðra sem standa í sömu baráttu fyrir réttlátu samfélagi. Samtaka­máttur okkar er ofbeldinu yfir­sterkara og við munum ekki leggjast niður og láta ofbeldið yfir okkur ganga.

Að lokum vil ég þakka öllum þeim sem hafa sýnt mér stuðning og staðið með mér, þið eruð ómetanleg. Það stendur engin ein undir svona og ég gæti þetta ekki án ykkar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Gögnin eru hluti af 43 skjölum sem voru birt nýlega. Þar er einnig fjallað um óútskýrðar ratsjármælingar frá árinu 2023.
Menning

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt

Pólitík

Kristrún segir hallalaus fjárlög sleggjuna sem þurfi til að ná vöxtum niður

Heimur

Samsæris­kenningar spretta upp eftir undarlegt augnablik á blaðamanna­fundi

Innlent

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi

Innlent

Innkalla vinsælt jólasmáköku­deig vegna aðskotahluts

Neytendur eru beðnir um að farga vörunni eða skila henni.

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Hrafn­hljóð flýgur inn á manna­nafnaskrá

Sverrir spyr hvað heilli karla við ofbeldið í Grand Theft Auto

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra