Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Skoðun

Ég ber virðingu fyrir öllum

Minning

Þrír skip­verjar fórust

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Innlent

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Jón Þór: „Tók ekki nema tvö ár af hreyfingarleysi í „þægilegri innivinnu” fyrir líkamann að hrynja“

„Fyrir 5 árum gaf líkaminn mér 10 kíló í fertugsafmælis­gjöf. Ég var alltaf grannur en vandist þessu ótrúlega fljótt. Var bara „ánægður“ með velmegunar vömbina. En fyrir minn líkama þýddi þetta líka augljósar hrotur sem trufluðu svefn konunar minnar og falinni kæfisvefn svo ég vaknaði þreyttur og hafði ekki orku til að hreyfa mig. Prófaði föstur og ketó og að klippa út kolvetni. Borðaði lítið og mikið. Breytti engu. Það tók svo ekki nema tvö ár af hreyfingar­leysi í „þægilegri innivinnu” fyrir líkamann að hrynja. Hægri öxlin lítið nothæf og verkjuð, sú vinstri stíf með stirðleika upp í háls og svo vont tak í bakið. Ekkert þol og öll hreyfing að verða erfiðari og erfiðari.“

Þetta segir Jón Þór Ólafsson, en hann var kosinn þingmaður fyrir Pírata í Reykja­víkur­kjördæmi suður í Alþingis­kosningunum 2013. Hann sagði af sér þing­mennsku í júlí árið 2015 og hefur meðal annars sinnt malbikunar­vinnu. Jón Þór hyggst gefa út leiðar­vísi um stjórnmál. Jón Þór var kosinn aftur á þing árið 2016 í Suðvestur­kjördæmi 2016–2017 og 2017–2021.

Jón var farin að venjast þeirri tilhugsun að vera orðin gamalmenni.

„Ég var að byrja að venja mig við þá hugsun að ég væri bara að verða gamalmenni. Konan mín var ekki að sætta sig við það og bauð mér með sér í Hot Yoga fyrir byrjendur hjá Agnari Diego. Það áhuga­verða var að því þreyttari sem ég var þegar ég fór í Hot Yoga, því betur leið mér og því meiri orku hafði ég eftir tíman. Hálfu ári síðar er hægri öxlin eins og ný og bakið miklu betra.

Ég krufði það hvernig Agnar hefur hannað Hot Yoga tímana sína. Þvílík snilld! Það eru svo mörg augnablik þar sem maður er þakklátur og ánægður að hafa mætt, sem hefur sálfræðileg áhrif á að maður vilji mæta næst. Öll líkams­rækt virkar, en aðeins ef maður mætir. Ég hef hreyft mig mesta ævina en ekki nennt í ræktina. Mig langar alltaf í Hot Yoga tíma hjá Agnari. Hvíld í heitum sal í upphafi sem flæðir inn í vinaleg inngangsorð sem leiða okkur af stað í tempó sem keyrist upp þar til maður verður svo þakklátur fyrir hvíldina og kaldan vatns sopan (takið einangraðan brúsa). Dásamlegt :)“

Jón segir að eftir mörg ár hafi hann loksins getað klappað sjálfum sér alls staðar á bakinu.

„Vinstri öxlin losnaði svo í tíma hjá Ellý Ármanns, og takið líka upp í stífan háls sem hefur verið mjög viðkvæmur. Konan mín bauð mér með í Hot Body námskeið hjá Ellý sem er alls herjar líkams­vinna í heitum sal með djúp teygjum í lokin. Eftir fyrsta tíma þá vildi ég helst gubba. Núna eftir aðeins fimm tíma er þolið miklu meira og ég finn hvað vöðvarnir eru að styrkjast. Í bónus þá losnaði svo loksins vinstri öxlin og stíf­leikinn í hálsinum með einni einustu djúp­teygju við herða­blöðin. Eftir mörg ár get ég loksins klappað sjálfum mér alls staðar á bakinu. Það er augljóst að Ellý stundar ekki bara líkams­rækt, hún lifir líkams­rækt, og henni tókst með gríðar­legum áhuga og ákafa sem samt er mildur, að planta þeirri trú hjá mér að ég muni aftur verða hraustur í líkama sem gott er að lifa í.

– Takk fyrir mig 🙂 og sjáumst í næsta tíma.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Húsið var reist árið 2024
Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Einn fluttur á bráða­móttöku

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

„Við syrgjum sjómennina þrjá sem létu lífið í sjóslysinu í gær“

„Girðið ykkur í brók og komið þessu í lag“

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning

Annar björgunar­báturinn var fastur og hinn rak frá skip­verjum