Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Skoðun

Ég ber virðingu fyrir öllum

Minning

Þrír skip­verjar fórust

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Nökkvi segir oft erfitt að vera á milli tannanna á fólki: ,,Of upptekinn af því að fá athygli“

Nökkvi Fjalar Orrason hefur lengi verið á milli tannanna á fólki og segir það stundum hafa tekið á, en nú sé hann orðinn þaulvanur því. Nökkvi er nýjasti gesturinn í podcasti Sölva Tryggva­sonar:,,Það kom tímabil þar sem ég fékk mikla neikvæða athygli og ég ætla ekki að neita því að það var stundum erfitt. Ég fékk líka mikla jákvæða athygli, en það tók svolítið á að fá mikla athygli svona ungur. Ég byrjaði fljótlega að temja mér að lesa ekki það sem var skrifað og sagt um mig sem var mjög neikvætt. En svo gerist það oft að fólkið í kringum mann fer að segja manni frá þessum hlutum. Þó að því gangi gott til, þá er það oft eina ástæðan fyrir því að maður sér að einhver sé að segja eitthvað neikvætt um mann. En ég valdi mér þetta hlut­skipti og smám saman venst það að fólk sé með skoðanir á þér og maður hættir að taka það of persónu­lega. Ef að maður er með skýr gildi og markmið og veit hvert maður er að fara, hættir maður að vera eins og lauf í vindi út af umtali annars fólks. Ég er sjálfur orðinn mjög góður í að kippa mér lítið upp við alls kyns umtal, en ég hef á mínum ferli séð marga brotna undan neikvæðu umtali.”Nökkvi býr nú í London og rekur þar fyrirtæki sitt, eftir að hafa skipt um takt og hætt í Áttunni: ,,Það er ástríða hjá mér að hjálpa fólki að elta drauma sína og vonandi sýna fólki það í verki. Það er hægt að fylgja hjartanu sínu og elta uppi draumana. Það mun verða mjög erfitt, en það er svo mikið þess virði. Ég hef alveg frá árinu 2016 fundið það að ég vildi ekki vera bara skemmtikraftur á Íslandi. Alveg síðan þá hef ég verið að vinna að því sem nú er að gerast. Að reka mitt eigið fyrirtæki í London ásamt samstarfs­félögum mínum.”Nökkvi fékk mikið umtal á síðasta ári vegna umræðunnar um bólu­setningar vegna Covid. Hann ákvað þá að svara fylgjanda sínum sann­leikanum samkvæmt og sagðist vera óbólusettur. Í kjölfarið voru gerðar margar fréttir og hann varð hálfgert andlit óbólusettra á Íslandi:,,Ég hef tamið mér það að segja alltaf satt og það var það sem ég gerði þarna. Mér finnst allt í lagi að fólk hafi ólíkar skoðanir á þessu, en ég myndi endurtaka þetta ef ég gæti valið aftur. Það er bara satt um það að ég fór ekki í bólu­setningu og ætla ekki að byrja að ljúga. Það var mitt val og ég tek ábyrgð á því. En þó að margir hafi verið brjálaðir út í mig á samfélags­miðlum kom mikill fjöldi fólks upp að mér og hrósaði mér fyrir að þora að segja satt og standa með sjálfum mér. Líka fólk sem sjálft er bólusett og það fannst mér fallegt.”Hægt er að nálgast öll viðtöl og podcöst Sölva Tryggva­sonar

hér

.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Eftir að hafa gert við klakavélar segist einn þátttakandi aldrei hafa pantað klaka aftur.
Minning

Aðstand­endur minnast Aðalsteins og Eggerts

Innlent

Sölvi sló lögreglu­mann og lét þar ekki staðar numið

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Einn fluttur á bráða­móttöku

Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Úrskurðarnefnd staðfesti synjun ráðuneytisins þar sem afhending tölvupósts um lokaðan fund gæti grafið undan trausti milli ríkja.

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi