Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Ástin spyr ekki um aldur: Hann er 68 ára og hún 34 ára

|||
|||

Leik- og söng­konan Kathar­ine McPhee trú­lof­að­ist tón­list­ar­mó­gúlnum David Foster í vik­unni, en David bað um hönd hennar á Ítalíu þar sem þau hafa verið á ferða­lagi síð­ustu daga.

Bónorðið átti sér stað á fjallstindi um kvöld undir stjörnu­björtum himni. Þau Kathar­ine og David hafa þá stað­fest það að ástin spyr ekki um aldur, en hún er 34 ára og hann 68 ára. Kathar­ine og David hafa lítið viljað tjá sig um sam­bandið síð­asta árið, en við ákváðum að líta yfir ást­ar­sög­una þeirra í hnot­skurn.

Nýkomin úr samböndum

Rúmlega ár er síðan ýmsum fór að gruna að Kathar­ine og David væru meira en vinir, en þau hafa þekkst í gegnum tón­list­ar­brans­ann síðan leik- og söng­konan var 21 árs. Á þeim tíma þegar sögu­sagnir um sam­bandið fóru á kreik var David að ganga frá skiln­aði við raun­veru­leika­stjörn­una Yolanda Hadid og Kathar­ine að hætta með leik­ar­anum Elyes Gabel eftir tveggja ára sam­band.

Spennt fyrir stjúpu

Í kjöl­far sögu­sagn­anna, sem fóru af stað í maí á sein­asta ári, virt­ist dóttir Davids, Erin, stað­festa sam­bandið með mynd­broti af þeim á Snapchat. Hún sagði fylgj­endum sínum á sam­fé­lags­miðl­inum að hún væri spennt fyrir nýju stjúp­móður sinni.

Gaman saman

Nokkru seinna, eða í sept­em­ber í fyrra, fóru þau David og Kathar­ine saman í gala­veislu á vegum Grammy-verð­laun­anna þar sem David var heiðr­aður fyrir starf sitt í tón­list­ar­brans­anum. Á næstu tveimur mán­uðum sem fylgdu á eftir sáust þau meðal ann­ars saman í Los Angeles að halda uppá 68 ára afmæli Davids og á körfu­bolta­leik.

Sagði lítið um sambandið

Þegar Kathar­ine var spurð út í sam­band þeirra í tíma­rit­inu Health í des­em­ber í fyrra vildi hún hins vegar ekki gefa mikið upp.

„Mér þykir mjög, mjög vænt um hann og mér finnst hann vera stór­kost­leg mann­eskja,” sagði hún um David. „Vissirðu að ég er búin að þekkja hann síðan ég var 21 árs? Hann fram­leiddi fyrstu smá­skíf­una mína. Þannig að hann hefur verið mér góður. Fólk getur sagt það sem það vill,” bætti hún við, en mik­ill ald­urs­munur pars­ins var iðu­lega á milli tann­anna á fólki.

Börnin glöð

Í sama mán­uði sagði Sara Foster, dóttir Davids, í sam­tali við Us Weekly að hún og systk­ini hennar væru hæstá­nægð með Kathar­ine.

„Við viljum bara ein­hvern sem kemur vel fram við hann og sem þykir vænt um hann. Ég held að hann hafi fundið þá mann­eskju núna,” sagði hún.

Stelpan mín

Us Weekly tók við­tal við David á rauða dregl­inum í veislu á vegum Grammy í lok jan­úar síð­ast­liðnum. Hann end­aði við­tali á því að afsaka sig og segja:

„Ég þarf að ná í stelpuna mína,” og vís­aði þar með til Kathar­ine.

„Ég elska þig”

David og Kathar­ine mættu saman í Met-gala­veisl­una í maí síð­ast­liðnum og sáust í fyrsta sinn hald­ast í hendur og stað­festa sam­band sitt. Um mán­uði síðan skrif­aði Kathar­ine svo athuga­semd við mynd sem David birti af sér sjálfum og skrif­aði ein­fald­lega:

„Svo mynd­ar­legur. Ég elska þig.”

Svo kom að því í þess­ari viku að fréttir þess efnis að parið væri trú­lofað voru stað­festar, en óvíst er hvenær brúð­kaupið verður.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Bíllinn hafði stoppað til að gefa börnum mat og drykk.
Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Heimur

Maður stung­inn í Las Palmas

Maður um fertugt hlaut alvarlega skurði og var fluttur á sjúkrahús eftir bráðameðferð á vettvangi.

Dán­ar­or­sök Sir Patricks Stewart stað­fest

Ljósmynd af logum ræsti sjálf­virkt slök­kvikerfi

Nýtt lyf í töflu­formi vekur vonir í bar­átt­unni við briskrabba­mein

Breskir grínistar héldu leyni­lega lista yfir kyn­ferð­is­leg rán­dýr

Dauði og eyði­legg­ing eykst á Gaza þrátt fyrir vopna­hlé