Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Sport

Hver er Theodór Elmar?

Innlent

Myglu­eitur í hveiti

Fólk

Notalegt fjöl­skyldu­hús með nægu rými úti og inni til sölu

Pólitík

Segir Ísland úti­loka einmitt þá inn­flytj­endur sem landið þarf á að halda

Pólitík

Segir trygg­inga­fé­lögin „gambla“ með fé úr bóta­sjóðum

Pólitík

Ást­hildur Lóa vill beita skyldu­sparn­aði gegn verð­bólgu

Heimur

Breskir grínistar héldu leyni­lega lista yfir kyn­ferð­is­leg rán­dýr

Innlent

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Peningar

Skiptum lokið á þrota­búi Talays

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Engar niðurstöður í þremur stórum lögreglumálum fyrir austan

Lögreglubíll. Ljósmyndin tengist ekki frréttinni beint.
Lög­reglu­bíll. Ljós­myndin teng­ist ekki frrétt­inni beint.

Lög­reglan á Aust­ur­landi hefur ekki náð að ljúka þremur stórum málum sem hún rann­sak­aði, með afger­andi nið­ur­stöðum.

Hundadauðinn í Breiðdalnum

Samkvæmt Aust­ur­frétt hafa engar vís­bend­ingar komið fram um það hvað olli dauða tíu hunda á bóndabæ í Breiðdal í sumar og hefur rann­sókn­inni verið hætt í bili. Þá hefur rann­sókn á upp­tökum elds­voð­ans í Vaski á Egils­stöðum, ekki heldur borið árangur.

Í júlí kom hunda­rækt­andi á bæ í Breiðdal að tíu hundum sínum dauðum, eftir að hafa skroppið af bænum part úr degi. Í upp­hafi fór Mat­væla­stofnun með rann­sókn máls­ins og óskaði því að tveir hund­anna yrðu kru­fðir. Til­rauna­stöð Háskóla Íslands í meina­fræði í Keldum sá um þær krufn­ingar. Einnig voru sýni send til eit­ur­efna­grein­ingar hjá Rann­sókna­stofu háskól­ans í lyfja- og efna­fræði. Engar vís­bend­ingar komu þar fram um dán­ar­or­sök hund­anna.

Var þá málið sent áfram til lög­regl­unnar á Aust­ur­land sem skoð­aði meðal ann­ars umhverfi hund­anna, veð­ur­far og annað í kringum atburð­inn. Þá var einnig rætt við aðila sem mögu­lega gætu búið yfir vit­neskju um dauða þeirra. Ekkert kom út úr því sem gat upp­lýst um dán­ar­or­sök hund­anna og hefur því rann­sókn á mál­inu verið hætt en hægt er þó að taka hana upp aftur ef ný gögn koma fram.

Kettlingadauðinn á Eskifirði

Það sama má segja um rann­sókn á kett­lingum sem fund­ust dauðir í læk á Eski­firði í mars í fyrra. Mat­væla­stofnun hóf einnig rann­sókn þess máls og lét kryfja kett­ling­ana en vís­aði svo mál­inu til lög­regl­unnar, sem leit­aði að vitnum og athug­uðu hvort efitr­lits­mynda­vélar í nágrenn­inu hefðu náð ein­hverju.

Samkvæmt krufn­ing­unni er talið lík­leg­ast að kett­ling­arnir hefðu drukknað en lög­reglan fylgdi ábend­ingum eftir, sem skil­uðu ekki frek­ari upp­lýs­ingum.

Eldsvoðinn í Vaski

Þá er rann­sókn lög­reglu á orsökum elds­voð­ans í verslun og efna­laug Vasks á Egils­stöðum í sept­em­ber árið 2022, lokið án óyggj­andi nið­ur­stöðum um elds­upp­tök. Vett­vangur var rann­sak­aður af bæði Húsnæðis- og mann­virkja­stofnun og lög­regl­unni á Aust­ur­landi, auk þess sem skýrslur voru teknar af vitnum. Þrátt fyrir að elds­upp­tök séu ókunn, sýna gögnin þó að eng­inn grunur sé um sak­næma hátt­semi sem valdið hefði brun­anum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Viðreisn mælist með 9,2 prósenta fylgi og Miðflokkurinn með 15,1 prósent. Atli Þór segir Miðflokkinn „hreinlegri“ kost.
Innlent

Tölvu­þrjót­arnir sem réð­ust á 1984 skemmdu sjö vef­síður tengdar Palest­ínu

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Landið

Leifar af skála frá land­náms­tíma fund­ust á Aðalbóli

Fornleifafræðingur telur minjarnar geta varpað ljósi á búsetu í Hrafnkelsdal á fyrstu öldum Íslandsbyggðar.

Sváfu undir berum himni og heill­uð­ust af íslenska hálend­inu

Andri Snær rifjar upp fórn­irnar sem fylgdu Kára­hnjúka­virkjun

Leð­ur­blakan í Fellabæ enn ófundin

Leð­ur­blaka sást á flugi í Fellabæ

Öllu starfs­fólki Heil­brigð­is­eft­ir­lits Aust­ur­lands sagt upp