Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Brynjar Níels ýtir undir samsæriskenningu

Þing­maðurinn fyrr­verandi ætlar sér í borgar­stjórn

Brynjar Níelsson
Brynjar Níelsson Er fyrr­ver­andi þing­maður og dóm­ari Mynd: Facebook/Brynjar Níelsson

Brynjar Níelsson, fyrr­verandi þingmaður Sjálfstæðis­flokksins, vekur athygli á samsæris­kenningu í kringum mögulega inngöngu Íslands í ESB í nýjum pistli en í stuttu máli gengur sú kenning út á að núverandi ríkis­stjórn hafi meðvitað gert líf Íslendinga verra til þess að gera inngöngu í ESB meira heillandi.

„Alþekkt er að flokkar í ríkis­stjórn nái ekki öllu því fram sem þeir lofuðu kjósendum í aðdrag­anda kosninga. Oftast er það vegna þess að við gerð stjórnar­sáttmála nær hver flokkur ekki öllu sínu fram eða að aðstæður og forsendur hafi breyst þegar ríkis­stjórn er mynduð. Almenningur hefur skilning á því,“ skrifar Brynjar.

„Ríkis­stjórnar­flokkarnir lofuðu fyrir síðustu kosningar að taka til hendinni í ríkis­fjármálum og berja niður vexti og verðbólgu með áður óþekktum sleggjum. Hugmyndir um hugsanlegar aðildar­viðræður við ESB áttu að bíða á meðan. Jafnframt átti ekki að hækka skatta á einstaklinga og fyrirtæki. Um þetta náðist sátt á milli stjórnar­flokkanna við myndum ríkis­stjórnarinnar. Mest var þó sáttin á milli formanna flokkanna um eigið ágæti,“ heldur hann áfram áður en hann fer í samsæris­kenninguna.

Hálf drepa heimili

„Nú einu og hálfu ári eftir myndun ríkis­stjórnarinnar hefur hún náð að slá met í vanefndum. Eitt er að ná ekki árangri á tilætluðum tíma en annað og alvarlega er að gera það sem lofað var að gera ekki. Kannski er hún ekki svo vitlaus eftir allt samsæris­kenningin um að hálf drepa þurfi heimili og fyrirtæki svo hægt sé að koma þjóðinni inn í ESB,“ en þing­maðurinn fyrr­verandi nefnir þó ekkert eitt dæmi í því samhengi.

„Þolinmæði almennings gagnvart þessari ríkis­stjórn með hliðsjón af árangurs­leysi og sviknum loforðum er rannsóknar­efni. Kannski er yfirlæti og hroki gagnlegur eftir allt. Þolinmæði borgarbúa er þó enn meiri gagnvart borgar­stjórninni. Þar hefur meirihlutanum undan­farna þrjá áratugi tekist að svíkja endur­tekin loforð kosningar eftir kosningar og miðað við skoðana­kannanir virðist ekki ætla að verða breyting þar á. Stundum virðist hægt að selja sama draslið í nýjum umbúðum,“ segir Sjálfstæðis­maðurinn.

„Þolinmæði er dyggð og trú á krafta­verk er stundum mikil. En það hljóta að vera einhver takmörk,“ skrifar hann svo að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis

Veðurstofan hefur gefið út gula viðvörun fyrir miðhálendið í kvöld. Síðdegis hvessir einnig suðvestanlands.
Innlent

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir varði samning ráðuneytisins um ráðgjöf vegna þjóðaratkvæðagreiðslu
  • Kristrún segir hallalaus fjárlög sleggjuna sem þurfi til að ná vöxtum niður

  • „Staðan á vissum tímum sólar­hringsins orðin nánast óbærileg“

  • Aðeins þrír róðrar áður en hjónin riftu kaupunum

  • „Af tvennu illu er skárra að böðullinn sé ekki í felulitum frjáls­lyndis“

  • Segir Ísland útiloka einmitt þá innflytj­endur sem landið þarf á að halda