Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Karl Ágúst greindist með heilaæxli: „Það er breytt starfsemi heilans sem háir mér“

Karl Ágúst Úlfsson.
Karl Ágúst Úlfsson.

Karl Ágúst Úlfsson hefur nú greinst með heilaæxli; hann er núverandi formaður Rithöfunda­sambands Íslands.

Hefur hann vegna þessa dregið sig í hlé frá þeim störfum af heilsufars­ástæðum, en það er DV sem greindi fyrst frá.

Karl Ágúst birti tilkynningu um málið í Facebook-hópi félaga í Rithöfunda­sambandi Íslands. Í færslu Karls Ágústs kemur fram að hann greindist með æxlið fyrir þremur mánuðum síðan og reyndist það vera góðkynja; var það skorið burt í aðgerð sem heppnaðist afar vel.

Útlitið hjá Karli Ágústi er því gott; samt er langt þangað til hann hefur endur­heimt fyrri styrk.

„Kæru félagar Á aðalfundi RSÍ á síðasta ári var ég endur­kjörinn formaður til tveggja ára. Í ljósi þess reiknaði ég með að gegna því starfi í sex ár samanlagt, eða frá 2018 til 2024. En ekki er framtíð manns alltaf fyrir­sjáanleg og nú hefur komið í ljós að svo muni ekki verða.

Það eru heilsufarsleg skakka­föll sem valda því. Fyrir um það bil þremur mánuðum var ég greindur með heilaæxli. Það reyndist vera góðkynja, ég var snarlega skorinn og æxlið fjarlægt. Aðgerðin heppnaðist vel, en ég á þrátt fyrir það langt í land með að stunda þau störf sem ég hafði tekið að mér.

Eitt af þeim er formennska RSÍ.

Áhrif skurð­aðgerðar á heila manns geta verið mikil og erfið viðureignar. Aðgerðin dró stórlega úr líkamlegri getu minni, en ég hef náð að endur­heimta hluta hennar með sjúkra­þjálfun.

Það er þó einkum og sér í lagi breytt starfsemi heilans sem háir mér og á að öllum líkindum eftir að skila sér til baka á löngu tímabili. Það hefur kveikt hjá mér alvarlegan efa á að ég búi nú um allnokkurt skeið yfir andlegri og vits­munalegri getu sem mér þykir nauðsynleg til að sinna formennsku sambandsins jafn vel og æskilegt er. Af þeirri ástæðu óska ég eftir að stíga út úr starfi formanns RSÍ. Ég mun sem sagt ekki gegna embættinu fram að aðalfundi ársins 2024.

Margrét Tryggva­dóttir vara­formaður mun gegna skyldum formanns þangað til annað verður ákveðið.

Mér þykir afar vænt um Rithöfunda­samband Íslands og hef tekið að mér marg­vísleg verkefni fyrir það á þeim fjörutíu árum sem liðin eru frá því ég gerðist þar félagi. Ég hef haft mikla ánægju af starfi sem formaður og þykir því býsna sárt að kveðja það fyrr en ég ætlaði.

Ég tel það þó rétta ákvörðun og óska eftir að einhver taki við keflinu sem ræður við það betur en ég um þessar mundir. Loks vil ég þakka það traust sem mér hefur verið sýnt og gott samstarf við annað stjórnar­fólk, samninga­nefndir og alla þá sem tekið hafa að sér að þjóna hagsmunum rithöfunda á öllum sviðum. Bestu kveðjur til ykkar allra Karl Ágúst Úlfsson.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim