Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Skoðun

Ég ber virðingu fyrir öllum

Minning

Þrír skip­verjar fórust

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Innlent

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

AK-47 riffill til sölu á íslenskri byssuvefsíðu: „Löglegur og skráður í gagnagrunn lögreglunnar!“

Ak-47 sem til sölu er á síðunni.
Ak-47 sem til sölu er á síð­unni.

Breyttir árásar­rifflar eru til sölu á íslenskri sölusíðu. Fullyrt að þeir séu löglegir.

Á sölu­síðunni byssu­salan.is eru allskonar byssur til sölu en þar geta veiðimenn og safnarar keypt sér byssu og selt öðrum notendum síðunnar. Athygli vekur að þar má sjá auglýsingar þar sem breyttir árásar­rifflar eru auglýstir til sölu. Er fullyrt þar að byssurnar standist vopnalög á Íslandi.

Í einni auglýsingunni er verið að auglýsa AK-47 hríð­skotabyssu og fylgja henni auka­hlutir. Tekið er fram að riffillinn sé breyttur „straight pull“ sem þýðir að það þarf að hlaða hann eftir hvert skot. Eftir­farandi texti er við auglýsinguna:

„ATH: Riffilinn er löglegur og skráður í gagna­grunn lögreglunnar! High End AK-47 riffill til sölu, breyttur straight pull. fram­leiddur af Krebs Custom í norður Illinois, Krebs Custom er þekktur sem high end AK fram­leiðandi fyrir bæði gæði riffla og aukahluta.

Krebs Custom fram­leiðir nokkrar gerðir af Mikhail Kalashnikov rifflum og þeirra hönnuð á sér sannarlega stað í 21. öldinni.“

Ak-47 sem til sölu er á síð­unni.

Sami aðili selur einnig Ruger AR556 (AR15) fjölnota riffil:

„Straight pull riffill, nýtt hlaup til að uppfylla Íslenskar reglu­gerðir, fylgir með extended charging handle fyrir þægilegri skiptingu. 10 skota magasín. Byssan er á B leyfi
ástand sem nýtt.“

Ruger-riff­ill sem til sölu er á verf­síð­unni

Mannlíf hafði samband við lögregluna á höfuð­borgar­svæðinu og spurði hvort þetta stæðist lög. Lögreglan svaraði því til að rifflar á borð við AK-47 fáist ekki innfluttir til landsins og ekki almennt leyfðir. Þó séu til rifflar sem líkist slíkum rifflum en þeir séu ekki hálf-eða alsjálfvirkir. Þá er einnig leyfilegt að eiga hálf­sjálfvirka riffla hafi þeir tengingu við sögu landsins, séu það safnvopn.

„AK-47 hríð­skota­rifflar fást ekki innfluttir til landsins og eru almennt ekki leyfðir. Til eru rifflar sem líkjast slíkum vopnum og eru leyfðir, en þeir eru ekki hálf- eða alsjálfvirk vopn heldur skotvopn þar sem hlaða þarf skotin hvert um sig, en slíkt kallast boltalás. Hálf­sjálfvirkir rifflar eru almennnt ekki leyfðir, með þeim undan­tekningum að vopn sem hafa tengsl við sögu landsins, frá því í seinni heim­styrjöld, hafa verið leyfð sem safnvopn. Til að mega vera með safnara­réttindi þarf að standast meiri kröfur en almennt er gert um eigendur skotvopna og þarf geymsla skotvopna að vera trygg.“

Mannlíf heyrði einnig í skot­íþrótta­manni sem sagði að breyttir árásar­rifflar á borð við þá sem eru til sölu á síðunni, séu ekki árásar­rifflar heldur ekkert ósvipaðir venju­legum rifflum þar sem það þarf að hlaða þá eftir hvert skot. Sumir sækist í þessar byssur einungis vegna útlitsins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Vildi fá Skódann sinn aftur en lögreglan heldur honum áfram

Maðurinn hefur áður hlotið dóma fyrir umferðarlagabrot og var fyrr á árinu dæmdur í níu mánaða fangelsi fyrir akstur án ökuréttar.
Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Minning

Aðstand­endur minnast Aðalsteins og Eggerts

Innlent

Sölvi sló lögreglu­mann og lét þar ekki staðar numið

Innlent

Einn fluttur á bráða­móttöku

Tveir voru handteknir vegna gruns um rán og þrír grunaðir um þjófnað úr verslunum.

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta