Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Innlent

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Kattaeigendur sérstaklega varaðir við hættulegri fuglaflensu

„Veiran er komin til að vera“

Köttur með fugl
Köttur með fugl Gælu­dýra­eig­endur í Ástralíu eru hvattir til að halda dýrum sínum frá veikum fuglum. Mynd: Víkingur

Gælu­dýra­eig­endur í Ástralíu eru hvattir til að vera á varð­bergi þar sem fuglaflensa heldur áfram að breið­ast út um landið. Sér­fræð­ingar ótt­ast að far­ald­ur­inn geti orðið umfangs­meiri yfir sum­ar­mán­uð­ina.

Mörg dýr hafa þegar orðið fuglaflens­unni að bráð í Ástralíu síð­ustu mán­uði, þar á meðal mör­gæsir, höfr­ungar og refir. Um er að ræða hina hættu­legu H5N1-stofn­gerð veirunnar.

Breyt­ingar hafa einnig orðið á skrán­ingu smita. Alrík­is­stjórn Ástralíu skráir nú atburði tengda far­aldr­inum í stað ein­stakra smittil­fella.

Michelle Wille, vís­inda­maður við háskól­ann í Melbourne, segir að breyt­ingin geri erf­ið­ara að fylgj­ast með útbreiðslu veirunnar. Því sé óljóst hvort smitum fjölgi eða fækki.

„Þetta þýðir að út frá þeim gögnum sem birt eru á vefnum birdflu.gov.au getum við ekki dregið miklar álykt­anir og alls ekki full­yrt að far­ald­ur­inn sé í rénun,“ segir hún.

Hún bendir á að þegar dýr drep­ist dag­lega yfir heilan mánuð séu hugs­an­lega aðeins fyrstu dýrin talin með í töl­fræð­inni.

Wille segir gælu­dýra­eig­endur þurfa að gæta þess að halda dýrum sínum frá veikum fuglum. Hún vísar meðal ann­ars til dæma frá Póllandi og Banda­ríkj­unum þar sem kettir og eig­endur hænsna í heima­görðum hafa smit­ast.

„Við vitum að H5N1-fuglaflensan hefur haft tölu­verð áhrif á ketti, sér­stak­lega ketti sem halda sig í fjósum á mjólk­ur­búum og ketti sem ganga frjálsir utandyra,“ segir hún.

Eigendur hænsna í heima­görðum þurfi jafn­framt að fylgj­ast reglu­lega með upp­lýs­ingum frá yfir­völdum á sínu svæði, kynna sér gild­andi reglur og þekkja ein­kenni sjúk­dóms­ins. Þeir þurfi einnig að vita hvernig til­kynna eigi veik eða dauð hænsni.

„Veiran er komið til að vera“

Fleiri sér­fræð­ingar taka undir áhyggjur Wille og vara við því að aðeins sé tíma­spurs­mál hvenær veiran breið­ist út til fleiri dýra­teg­unda.

Adrian Esterman, pró­fessor í líf­töl­fræði við háskól­ann í Adelaide, segir hænur í heima­görðum sér­stak­lega ber­skjald­aðar vegna náinna sam­skipta við villta fugla.

„Þetta er ekki að fara neitt. Veiran er komin og hún er komin til að vera,“ sagði hann í sam­tali við news.com.au.

Hann segir gælu­dýr almennt vera í hættu en kettir séu mun ber­skjald­aðri en hundar. Katta­eig­endur þurfi því sér­stak­lega að vera á varð­bergi.

Joanne Sillince, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri Australian Chicken Growers Council, segir marga bíða þess að ástandið versni enn frekar enda sé veiran bæði hreyf­an­leg og óút­reikn­an­leg.

„Veiran hefur nú greinst í 40 mis­mun­andi teg­undum spen­dýra. Þetta er inflú­ensu­veira sem hagar sér á mjög óvenju­legan hátt,“ segir hún.

„Þessi inflú­ensu­veira hefur aldrei hagað sér eins og það sem við myndum kalla venju­lega flensu­veiru.“

Emily Buddle, vís­inda­maður við háskól­ann í Adelaide, segir hænur í heima­görðum í mestri hættu. Þær gangi oft lausar og geti því kom­ist í snert­ingu við villta fugla.

Hún leggur þó áherslu á að fólk eigi að vera vak­andi en ekki ótta­slegið.

Stjórnvöld þurfi að upplýsa almenning betur

Bæði Buddle og Esterman segja stjórn­völd bera ábyrgð á því að upp­lýsa almenn­ing með skýrum og réttum hætti um hætt­una af fuglaflensu svo fólk geti und­ir­búið sig ef far­ald­ur­inn magn­ast.

„Það er ekki síður á ábyrgð stjórn­valda en eig­enda hænsna í heima­görðum að tryggja að fólk sé upp­lýst,“ segir Buddle.

Hún bendir á að fólk hafi lengi getað haldið hænur í heima­görðum án þess að hafa miklar áhyggjur af smit­sjúk­dómum. Raunin sé hins vegar sú að hænur séu búfén­aður og smit­sjúk­dómar geti borist á milli þeirra líkt og ann­arra dýra.

Esterman segir stjórn­völd vissu­lega hafa gripið til ýmissa aðgerða en að við­brögðin hefðu mátt vera hrað­ari.

„Þau hafa staðið sig afskap­lega illa í að koma upp­lýs­ingum um svona mál til almenn­ings,“ segir hann.

Beth Cookson, yfir­dýra­læknir Ástralíu, segir stjórn­völd taka far­ald­ur­inn alvar­lega, þótt fuglaflensan hafi ekki haft áhrif á ali­fugla­iðnað lands­ins.

„Nú þegar H5-fuglaflensan er komin til lands­ins verður áfram­hald­andi eft­ir­lit nauð­syn­legt. Það verður í höndum ein­stakra fylkja og yfir­ráða­svæða,“ segir hún.

Áströlsk stjórn­völd hafi frá árinu 2024 varið meira en 270 millj­ónum ástr­al­skra dala til að efla vöktun, við­búnað og við­bragðs­getu vegna fuglaflensunnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Sendi dularfull smáskilaboð viku fyrir hvarfið
Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Heimur

Maður stung­inn í Las Palmas

Maður um fertugt hlaut alvarlega skurði og var fluttur á sjúkrahús eftir bráðameðferð á vettvangi.

Dán­ar­or­sök Sir Patricks Stewart stað­fest

Ljósmynd af logum ræsti sjálf­virkt slök­kvikerfi

Nýtt lyf í töflu­formi vekur vonir í bar­átt­unni við briskrabba­mein

Breskir grínistar héldu leyni­lega lista yfir kyn­ferð­is­leg rán­dýr

Dauði og eyði­legg­ing eykst á Gaza þrátt fyrir vopna­hlé