Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Innlent

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Dásamlegur bleikjubrauðréttur

Flestir eru alveg vit­lausir í brauð­rétti og klár­ast þeir yfir­leitt alltaf fyrst í veislum. Það er líka til­valið að hafa slíka rétti í mat­inn fyrir fjöl­skyld­una. Hér bjóðum við upp á brauð­rétt með fiski sem aldeilis hentar vel sem kvöld­matur. Hér er á ferð­inni dásam­legu brauð­réttur sem kom sér­stak­lega vel út í til­rauna­eld­húsi Gest­gjafans. Það þarf smá und­ir­bún­ing og fyr­ir­höfn til að útbúa hann en er alveg þess virði. Tilvalið er að nota afganga af bleikju eða laxi frá kvöld­inu áður í rétt­inn.

Brauðréttur með bleikju með kasjúhnetupestói, grillaðri papriku og döðlum

Fyrir 4-6

500 g bleikja (u.þ.b. 2 lítil flök)
3 tsk. krydd­blanda að eigin vali t.d. krydd lífs­ins frá potta­göldrum
1 msk olía til steik­ingar
5 brauð­sneið­arað
1 rauð­laukur
4 msk sýrður rjómi (18%)
safi úr einni sítrónu
2 dl nið­ur­skornar döðlur
1 krukka grilluð paprika
fræ úr einu granat­epli, má sleppa

Skerið flök­inn í hæfi­lega bita, kryddið og steikið með roð­inu í nokkrar mín­útur á hvorri hlið. Passið að ofelda þau ekki, látið kólna. Skerið skorpuna af brauð­inu og geymið. Setjið brauð­sneið­arnar í litlum bitum í skál. Skerið lauk og blandið saman við ásamt sýrðum rjóma, sítrónusafa og nið­urs­konrum döðlum. Setjið blönd­una í eld­fast­mót og raðið grill­aðri papriku og bleikj­unni í bitum yfir. Á þessu stigi er ágætt að leyfa rétt­inum að bíða í litla stund og búa til pestóið og brauð­ten­ing­ana.

Kasjú­hnetupestó
1 askja konfekt- eða kirsu­berjatómatar
10 döðlur
8 svartar ólífur
hnefa­fylli fersk basi­líka
hnefa­fylli kasjú­hnetur
1 dl góð ólífu­olía
1 tsk. sjáv­ar­salt
2 hvít­lauks­geirar
nýmal­aður pipar eftir smekk

Skerið tómatana til helm­inga og skafið innan úr þeim. Setjið tómatana og allt sem á að fara í kasjú­hnetupestóið í mat­vinnslu­vél og látið vél­ina ganga í smá­stund þar til allt hefur sam­lag­ast.

Ristaðir brauð­ten­ingar
skorpa af 5 brauð­sneiðum
2 msk. fínt söxuð basi­líka, smá sleppa
1 tsk. papriku­duft
3 tsk. olía

Skerið skorpuna sem skorin var af brauð­inu í ten­inga og setjið í skál. Hellið olí­unni yfir og kryddið. Blandið vel saman. Steikið við frekar háan hita í stuttan tíma eða þar til ten­ing­arnir eru orðnir gull­in­brúnir og stökkir. Kælið.

Setjið svo­lítið af kasjú­hnetupestó­inu yfir bleikju­rétt­inn, dreifið rist­uðu brauð­ten­ing­unum yfir og skreytið að lokum með granatepla­fræjum ef vill. Berið afgang­inn af pestó­inu fram með brauð­rétt­inum

Ristaða brauð­ten­inga má búa til úr hvaða brauð­teg­und sem er,bæði úr grófu og fínu brauði. Tilvalið er að frysta afgangs­brauð og afskorna skorpu sem er að renna út á tíma og nota í brauð­ten­inga­gerð­ina. Bæði er hægt að steikja þá á pönnu í nokkrar mín­útur eða raða þeim á ofn­plötu og baka í ofni í u.þ.b. 10 mín­útur við 180°C. Upplagt er að nota ristaða brauð­ten­inga út á salöt eða í súpur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Sendi dularfull smáskilaboð viku fyrir hvarfið
Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Mannlífið

Myndir

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni