Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

18 ára drengur myrti fyrrum stjúpföður sinn – Kærur gengu á víxl innan fjölskyldunnar mánuðum saman

Föstu­daginn 13 maí árið 1995 fannst Sigurgeir Sigurðsson, 43 ára, látinn í Hafnar­firði. Sigursteinn hafði verið á hjóli sínu þegar bíll keyrði hann niður á miklum hraða en hann lést af sárum sínum á slysa­deild.

Strax var fyrrum stjúpsonur hans, Júlíus Norðdahl, grunaður um morðið en hann var átján ára. Júlíus hafði, samkvæmt vitnum, talað um að vilja myrða Sigurgeir og hafði stuttu áður skorið á dekk á bílnum hans. Júlíus viðurkenndi í yfirheyrslu að hafa unnið skemmda­verk á bíl Sigur­geirs en neitaði að hafa keyrt viljandi á hann heldur einungis ætlað að ná tali af honum.

Sigurgeir var á leið heim af AA-fundi þegar Júlíus keyrði á hann á tals­verðum hraða, Sigurgeir kastaðist á framrúðu bílsins og svo á jörðina og hjól hans ýttist um 100 metra frá bílnum. Fram­burður Júlíusar í yfirheyrslum passaði ekki við slysa­skýrslur en hann sagðist ekki hafa séð Sigurgeir og þess vegna ekið á hann.

Lögreglan hafði ítrekað þurft að hafa afskipti af samskiptum Sigur­geirs og Júlíusar en Júlíus hafði unnið nokkur skemmdar­verk á eignum Sigur­geirs, meðal annars með því að kasta gosflösku inn um glugga hans ásamt því að hóta Sigur­geiri lífláti. Sigurgeir reyndi að leggja fram kæru til lögreglu vegna hótana og skemmdar­verka en lögregla neitaði að taka málið í sínar hendur þar sem um fjölskyldu­erjur væri að ræða. Móðir Júlíusar kærði Sigurgeir fyrir ofsóknir og hótanir, því má segja að kærurnar í fjöl­skyldunni hafi gengið á víxl.

Sigurgeir og móðir gerandans áttu saman dóttur en þau skyldu á meðan móðirin var enn ófrísk. Móðir stúlkunnar kærði Sigurgeir til barna­verndar og sakaði hann um að hafa brotið kynferðis­lega á dóttur þeirra, Sigurgeir var þá sviptur forræði en málið aldrei rannsakað af lögreglu. Sigurgeir kærði máls­meðferðina en þessi meinta misnotkun var talin ástæða illinda Júlíusar til fyrrum stjúpföður síns.

Júlíus var dæmdur til þriggja ára fangelsis­vistar fyrir morðið en litið var til þess að hann væri ungur og ætti engin refsiverð brot að baki.

„Hæstiréttur vísar til misræmis í framburði Júlíusar, sem sagði fyrst eftir slysið að hann hefði verið að lesa aftan á myndbands­spólu í bifreiðinni, þegar áreksturinn varð, og ekki haft hugann við aksturinn. Í formlegri skýrslu­töku hjá lögreglu sagði hann hins vegar, að hann hafi vitað að Sigurgeir var á hjólinu fyrir framan hann og verið að teygja sig í rafmagns­rofa fyrir rúðu, svo hann gæti hrópað að honum. Hæstiréttur segir að fallast verði á að hann hafi ekið á Sigurgeir af ásetningi, sem myndaðist í þann mund, er hann ók á eftir honum. Hann hafi mátt gera sér grein fyrir, að veruleg hætta væri á því, að stórfellt líkams- eða heilsu­tjón hlytist af ákeyrslu á reið­hjólið. Á hinn bóginn bæri að meta honum til gáleysis þær afleiðingar, sem í reynd hafi orðið.“

„Auk þess sem Júlíus var dæmdur til 3 ára fangelsis­vistar var hann sviptur ökurétti ævilangt og gert að greiða áfrýjunar­kostnað, þar með talin saksóknar­laun, 100 þúsund krónur, og málflutnings­laun skipaðs verjanda síns, Arnar Clausen hrl., 100 þúsund krónur,“ segir í frétt Morgun­blaðsins um málið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Húsfélagi óheimilt að rukka skrópara

Ágreiningur um þrif, ræstiþjónustu og myndavélar í sameign fór fyrir kærunefnd
Fólk

Fimm ráð Kristjönu til að halda á sér hita í vetur

Innlent

Mál vegna gruns um kynferðis­brot í Garðaseli fellt niður

Innlent

Kveikti í íbúð með vél úr mótor­hjóli

Fólk

„En svo lenti ég í því að eignast mann“

Innlent

Eftir­lýstur maður óvænt gripinn

Lögreglan hafði hendur í hár hans

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli