Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Stefnir í harðan slag hjá Sjálfstæðismönnum í Reykjavík: Ragnhildur hjólar í Hildi

Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir og Hildur Björnsdóttir.
Ragn­hildur Alda María Vil­hjálms­dóttir og Hildur Björns­dóttir.

Ragnhildur Alda María Vilhjálms­dóttir, vara­borgar­fulltrúi Sjálfstæðis­flokksins, ætlar að gefa kost á sér í oddvita­sæti Sjálfstæðis­flokksins fyrir komandi borgar­stjórnar­kosningar í vor. Frétta­blaðið greinir frá þessu.

Þannig mun Ragnhildur fara fram á móti Hildi Björns­dóttur, borgar­fulltrúa, en hún gaf kost á sér í oddvita­sætið í desember.

Hildur hefur notið nokkurra vinsælda sem borgar­stjóra­efni þvert á flokka. Átök hafa þó kraumað í Sjálfstæðis­flokknum undan­farið og skiptist hann í tvær fylkingar. Þetta sást hvað skýrast í prófkjöri Sjálfstæðis­flokksins í Reykjavík fyrir alþingis­kosningarnar en þar börðust þau Áslaug Arna Sigurbjörns­dóttir og Guðlaugur Þór Þórðarsson um fyrsta sætið í Reykjavík.

Prófkjörs­slagur þeirra var afar spennandi og nokkuð harður en Guðlaugur Þór bar að endingu sigur úr býtum. Öldurnar hefur þó ekki lægt og fylkja flokks­menn sér ýmist að baki Guðlaugs Þórs eða Áslaugar Örnu og teygir sú ólga sig inn í borgar­pólitíkina.

Hildur Björns­dóttir hefur almennt verið talin fram­bjóðandi þeirrar blokkar sem styður Áslaugu Örnu og formann Sjálfstæðis­flokksins, Bjarna Benediktsson. Hermt er að hin blokkin, sú sem styður Guðlaug Þór, hafi leitað ljósum logum að fram­bjóðanda til þess að senda fram í borginni. Nú virðist sá fram­bjóðandi vera fundinn, en heimildir Mannlífs herma að Ragnhildur Alda standi sömu megin og Guðlaugur Þór. Eyþór Arnalds var áður sá fram­bjóðandi sem var talinn standa fyrir blokk Guðlaugs Þórs en hann dró sig út úr oddvita­slagnum í desember síðastliðnum.

Ragnhildur Alda er eins og áður sagði vara­borgar­fulltrúi Sjálfstæðis­flokksins í Reykjavík og hefur gegnt þeirri stöðu frá árinu 2018. Það ár skipaði hún ellefta sæti á lista flokksins fyrir borgar­stjórnar­kosningarnar. Hún vermdi sömuleiðis sjöunda sæti á lista flokksins fyrir alþingis­kosningarnar síðasta haust í Reykjavík suður.

Í mars næst­komandi fer fram opið prófkjör hjá Sjálfstæðis­flokknum í Reykjavík fyrir komandi borgar­stjórnar­kosningar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Tveggja barna faðir skotinn til bana á þakkar­gjörðar­daginn

Lögregla var kölluð til vegna tilkynninga um vopnaðan mann sem reyndi að taka bifreiðar með valdi.
Heimur

Sautján ára skóla­stúlka lést eftir árás

Innlent

Húsfélagi óheimilt að rukka skrópara

Fólk

Fimm ráð Kristjönu til að halda á sér hita í vetur

Innlent

Mál vegna gruns um kynferðis­brot í Garðaseli fellt niður

Innlent

Kveikti í íbúð með vél úr mótor­hjóli

Leigjandinn viðurkenndi að eldurinn hefði kviknað vegna gáleysis hans

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Eftir­lýstur maður óvænt gripinn

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu