Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Framkvæmdastjóri Íslandshótela sár yfir ásökunum: „Ég er bara að hlaupa hérna og þrífa herbergi“

Davíð Torfi Ólafsson framkvæmdastjóri Íslandshótela. Myndin er samsett
Davíð Torfi Ólafsson fram­kvæmda­stjóri Íslands­hót­ela. Myndin er sam­sett

Mannlíf náði tali af Davíð Torfa Ólafssyni framkvæmdar­stjóra Íslands­hótel í kjölfar vinnslu fréttar um rangar ásakanir Stein­unnar Ólínu Þorsteins­dóttur vegna arðgreiðslna fyrir­tækisins. Davíð Torfi var í óðaönn við vinnu en gaf sér nokkrar mínútur til að ræða við blaðamann Mannlífs.

„Ég er bara að hlaupa hérna og þrífa herbergi,“ útskýrir Davíð Torfi þegar hann er inntur eftir viðbrögðum:

„Við hörmum þegar farið er með rangt mál til að fá fylgi með ákveðnum málstað,“ og útskýrir hann að forsvars­menn hótel­kveðjunnar viti alltaf sann­leikann og fylgjum sínu striki í öllu.

„Það hefur verið mjög sorglegt að hlusta á það að okkur sé ætlað að flytja inn erlent vinnuafl í stórum stíl til þess að borga einhver niðursett laun og er það eitthvað sem er mjög sárt. Við stöndum ekki í flutningi á fólki – Það hinsvegar sækir um hjá okkur heilmikið af fólki. “

Þá langar Davíð Torfa einnig að bæta við og finnst vanta í umræðuna; hver meðallaun þerna hjá Íslands­hótelum eru. Hann svarar því að meðal­launin séu 580 þúsund krónur á mánuði fyrir þá sem vinna hefð­bundnar vaktir. Svo eru það þeir sem vinna 12 tíma vaktir, en þeir eru með um 750 þúsund krónur á mánuði.“ Davíð segir að þetta viðist falla á milli stafs og bryggju og einblínt á upphæð sem er nærri 400 þúsundum.

En um þessa tvo þætti, innflutt vinnuafl og 400 þúsund í laun, segir Davíð: „Þetta sé alveg fjarstæðu­kennt.“

Erfið staða

Aðspurður um ákvörðun Eflingar um að hefja verkföll hjá hótel­keðjunni svarar Davíð að starfs­fólki sínu hafi þótt það erfitt að vera sett í þessa stöðu – á þeim tíma þegar þau voru að kjósa um verk­fallið. „Niður­staðan úr kosningunum hjá okkur var að það voru hlutfalls­lega færri sem kusu með verkfalli en hjá hinum fyrir­tækjunum. Það vill enginn fara í verkfall, en það vilja auðvitað allir frá hærri laun,“ útskýrir Davíð Torfi og telur að Efling hafi sótt til þeirra þar sem þau teldu sig fá „já“ við verkfalli sem þau vissulega fengu.

Davíð Torfi segir jafnframt í ljósi þess hvernig verkfalls­baráttan hefur verið að þá telji hann að stéttar­félagið Efling hafi ekki getað séð það fyrir að Íslands­hótel myndi ná að halda úti starfseminni í þennan tíma sem þau hafa gert. „En það hefur bara gengið með samtaka­mætti og krafti þeirra sem mega vinna,“ bætir Davíð Torfi við.

Yfir 30 ára fjölskyldufyrirtæki

Ólafur D. Torfason, faðir Davíðs Torfa, er stofnandi Íslands­hótela og skráður fyrir tæpum 75 prósent eignar­hluta samkvæmt fyrirtækja­skrá á rsk.is. Íslands­hótel er íslenskt fjölskyldu­fyrirtæki í meirihluta eigu fjöl­skyldunnar: „Sem hefur byggt það upp frá grunni en við opnuðum fyrsta hótelið 1992. Það voru 30 herbergi á Rauð­árstígnum,“ og bætir Davíð við að í dag telji herbergin yfir 1900.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim