Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Skoðun

Ég ber virðingu fyrir öllum

Minning

Þrír skip­verjar fórust

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Innlent

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Eitruð karlmennska og kjötætu-kúltúrinn: „Viljum gjörbylta neysluhegðun fólks“

Mynd/skjáskot.
Mynd/skjá­skot.

„Businesss-aktívismi er það að í staðinn fyrir að peningar og hagnaður sé fyrsti forgangur þá er forgangurinn sá að gera rétt og hafa sem mest áhrif til góðs. Við þurfum auðvitað tekjur til að gera þessa hluti en við munum aldrei græða á einhverju sem er siðferðis­lega rangt.“ segir Sæunn Ingibjörg Marínós­dóttir framkvæmda­stjóri, meðeigandi og meðstofnandi Vegan­matar sem rekur Vegan­búðina og Jömm er gestur í nýjasta þætti hlað­varpsins Karl­mennskan.

Þar segir Sæunn meðal annars frá ævintýralegri stækkun Vegan­búðarinnar, sem á örfáum árum varð stærsta veganbúð í heiminum, hvað það þýðir að vera busissness-aktívisti og hvernig eitruð karl­mennska er stærsti óvinur veganismans.

Eitruð karlmennska og kjötætu-kúltúrinn er andstæða veganismans

Þorsteinn, umsjónar­maður hlað­varpsins, veltir upp þeirri spurningu hvers vegna stóru bakaríin í Reykjavík bjóði ekki upp á jafn gott úrval af vegan bakkelsi eins og sum bakarí í mun smærri byggðum eins og á Akureyri og Grindavík. Sæunn hikar í smá stund og svarar: „Þetta hljómar eins og ég sé að smjaðra en ég segi að svarið sé svoldið eitruð karl­mennska.“

Steinunn bætir því við að þetta eigi ekki bara við um bakkelsi heldur sé kjöt- og karlremba nátengt þar sem litið er niður á karla sem eru vegan, þeir gjarnan uppnefndir soyboys eða álitnir ekki alvöru karlar. „Eitruð karl­mennska og kjötætu-kúltúrinn eru andstæða veganismans og ein stór ástæða hvers vegna það er hávaði á móti vegan.“

Markmiðið að umbylta neysluhegðun fólks

Hún nefnir sem dæmi að hún versli ekki við Nestlé og ekki heldur  vörur sem fram­leiddar eru á hernumdum svæðum í Palestínu.

„Á tímabili var rosalegur hávaði yfir vegan KitKat sem kom á markað erlendis og fólk bað okkur um að selja. En við vildum ekki að peningar úr okkar rekstri fari í að styðja Nestlé. Við erum ekki með Hälsans Kök sem er framleitt á hernumdum svæðum í Palestínu. Við tökum ekki þátt í þessu, þó það sé mikil eftir­spurn eftir þessum vörum.“

Þá segir Sæunn að markmið rekstursins sé að umbylta neyslu­hegðun fólks. „Við erum ekkert að grínast með þetta, við viljum gjörbylta neyslu­hegðun fólks. Ég er ekki að tala um að gjörbylta með „shaming“ og látum, heldur viljum við sjá til þess að það sé skemmtilegra, auðveldara og ljúffengara að vera vegan en vera það ekki.“

Hægt er að hlusta á þáttinn í heild sinni á karl­mennskan.is, Podcasts, Spotify.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólks landsins hefur efni á

Húsið var reist árið 2024
Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Einn fluttur á bráða­móttöku

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

„Við syrgjum sjómennina þrjá sem létu lífið í sjóslysinu í gær“

„Girðið ykkur í brók og komið þessu í lag“

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning

Annar björgunar­báturinn var fastur og hinn rak frá skip­verjum