Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Innlent

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Getur kapítalisminn bjargað sjálfur sér frá kapítalismanum?

Ráðandi kerfi í heim­inum síð­ustu ára­tugi hefur verið hið kap­ít­al­íska mark­aðs­hag­kerfi, og systir þess vest­rænt lýð­ræði. Þeir sem eru jákvæðir gagn­vart þessum kerfum benda á að á grunni þeirra hafi friður ríkt í hinum vest­ræna heimi frá lokum seinni heims­styrj­ald­ar­innar. Að mann­rétt­indi hafi sífellt fengið stærri sess í þeim löndum sem umfaðmað hafa kerfin. Frelsi stór­auk­ist, tækni fleytt fram og, síð­ast en ekki síst, lífs­gæði mæld á þeim mæli­kvarða sem oft­ast er stuðst við, hag­vöxt og kaup­mátt, hafi tekið stakka­skiptum.

Það sverfur að okurlánurum.
Það sverfur að okur­lán­urum.

Sögulega má rekja upp­haf þess­arar við­horfs­breyt­ingar í við­skiptum til átt­unda ára­tug­ar­ins þegar menn eins og hag­fræð­ing­ur­inn Milton Friedman stigu fram á sviðið og boð­uðu það sem í dag er best þekkt sem brauð­mola­kenn­ingin. Friedman skrif­aði fræga grein í The New York Times árið 1970 þar sem hann sagði það sam­fé­lags­lega ábyrgt í við­skiptum að auka gróða.

Hug­mynda­fræðin varð síðan ein­kenn­andi und­ir­staða stjórn­ar­tíðar Ronalds Reagan í Banda­ríkj­unum og Marg­ar­etar Thatcher í Bret­landi, tveggja áhrifa­mestu leik­end­anna í alþjóða­við­skiptum á níunda ára­tug síð­ustu aldar. Skila­boðin voru minna reglu­verk, frek­ari einka­væð­ing, minna rík­is­vald og meiri hagn­aður fyrir eig­endur fyr­ir­tækja. Hlut­haf­inn, þ.e. fjár­magns­eig­and­inn sem fjár­festi í fyr­ir­tækjum, varð það eina sem skipti máli í rekstri fyr­ir­tækja.

Þessi áhersla beið ákveðið skip­brot árið 2008, þegar ríki og seðla­bankar víða um heim þurftu að grípa fjár­mála­kerfi sem hafði farið langt fram úr sér. Kap­ít­al­ism­inn kall­aði á stór­tæk­ustu rík­is­af­skipti mann­kyns­sög­unnar. Þrátt fyrir það hefur efsta lagið í heim­inum bara orðið rík­ara síð­ast­lið­inn ára­tug. Í fyrra var staðan þannig, sam­kvæmt árlegri skýrslu Oxfam, að 26 rík­ustu ein­stak­ling­arnir í heim­inum áttu jafn­mikið af auði og sá helm­ingur heims­byggð­ar­innar, alls 3,8 millj­arðar manna, sem átti minnst. Á sama tíma hafa kröfur um aukna sam­fé­lags­lega með­vit­und fyr­ir­tækja, sér­stak­lega gagn­vart umhverf­inu, stór­auk­ist. Vegna þessa hefur þrýst­ing­ur­inn á breyttar áherslur stig­magn­ast ár frá ári.

Í ágúst 2019 sendu banda­rísku sam­tökin US Business Roundtable, sem sam­an­standa af for­stjórum allra stærstu fyr­ir­tækja Banda­ríkj­anna, frá sér yfir­lýs­ingu. Í henni kom fram að fyrri stefna sam­tak­anna, um að hags­munir hlut­hafa ættu einir að stýra rekstri fyr­ir­tækja, gæti ekki lengur átt við. Það þyrfti að telja til fleiri þætti eins og starfs­fólk, nær­sam­fé­lag og nátt­úru.

Þessi stefnu­breyt­ing er í takti við fjár­fest­inga­stefnu sem margir af stærstu fjár­fest­inga­sjóðum heims hafa sett sér. Við blasir því að fyr­ir­tæki sem horfa ekki til ann­arra þátta en hagn­aðar munu eiga erf­ið­ara með að nálg­ast fjár­magn þegar þeir þurfa á slíku að halda til fjár­fest­ingar.

Meira að segja Financial Times, for­ystu­blað kap­ít­al­ism­ans, boð­aði nýja stefnu (The New Agenda) í sept­em­ber síð­ast­liðnum þar sem blaðið tal­aði fyrir breyttri teg­und kap­ít­al­isma. Í yfir­lýs­ingu Lionel Barber, rit­stjóra Financial Times, sagði að fyr­ir­tækja­lög­gjöf, skatta­stefna, fjöl­miðlaum­fjöllun og reglu­gerð­ar­setn­ingar væru allt svið sem þyrftu að breyt­ast með þeim hætti að sam­fé­lags­leg ábyrgð og umhverfið yrðu jafn­rétthá hlut­höfum. Það þurfi að skila hagn­aði en með til­gangi. Fyr­ir­tæki þurfi að skilja að slík blanda muni þjóna þeirra eigin hags­munum en líka hags­munum við­skipta­vina og starfs­manna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Sendi dularfull smáskilaboð viku fyrir hvarfið
Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Heimur

Maður stung­inn í Las Palmas

Maður um fertugt hlaut alvarlega skurði og var fluttur á sjúkrahús eftir bráðameðferð á vettvangi.

Dán­ar­or­sök Sir Patricks Stewart stað­fest

Ljósmynd af logum ræsti sjálf­virkt slök­kvikerfi

Nýtt lyf í töflu­formi vekur vonir í bar­átt­unni við briskrabba­mein

Breskir grínistar héldu leyni­lega lista yfir kyn­ferð­is­leg rán­dýr

Dauði og eyði­legg­ing eykst á Gaza þrátt fyrir vopna­hlé