Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Vísindi í jólapakkann þinn

Hægt er að fá ýmsar góðar gjafir frá TARAMAR
Hægt er að fá ýmsar góðar gjafir frá TARAMAR

Jólin eru á næsta leyti, svo mikið er víst. Eins og svo oft áður er fólk í miklum vandræðum með hvað á að gefa fólkinu sem stendur þeim næst. Margir góðir mögu­leikar standa til boða en fólk þarf að vita að það geti treyst vörum sem það kaupir sem jóla­gjafir og fólkinu sem stendur á bak við þær vörur. TARAMAR er eitt fárra fyrir­tækja sem fólk getur treyst á vegna þess að það byggir allar sínar vörur á traustum vísindum og rann­sóknum. Dr. Guðrún Marteins­dóttir hefur ásamt eigin­manni sínum, Dr. Kristberg Krist­bergssyni, breytt snyrti­vöru­markaðnum með TARAMAR-vörunum.

TARAMAR notast mikið við sjávar­lífverur í vöruþróun enda er Guðrún menntuð í vistfræði, dýrafræði og líffræði. „Það lá því beint við að í TARAMAR-verk­efninu myndi ég leggja sérstaka áherslu á sjávar­fang og þá lífvirkni sem þar er að finna. Það sem var sérstak­lega áhugavert var þegar ég uppgötvaði að Kristberg, sem er prófessor í matvæla­fræði, hafði rannsakað lífvirk efni úr sjávar­fangi til fram­leiðslu á orku­mikilli fæðu og var að nota tækni og þekkingu sem gæti nýst sérstak­lega vel í húðvörum. Þetta varð byrjunin á flutningi á meira en 30 ára rannsóknar­niðurstöðum á matvælum inn í húðvörurnar. Þar sem hvorugt okkar kom úr heimi lyfja­fræðinnar, þar sem flestar húðvörur eiga uppruna sinn, þá urðum við frá upphafi að þróa okkar eigin leiðir. Þar sem líf- og matvæla­fræði var eitthvað sem við kunnum vel, þá varð það til þess að húðvörurnar okkar eru að mörgu leyti líkari matvælum en venju­legum húðvörum, sem eru ekki beint góðar til neyslu,“ en Guðrún hóf að kynna sér snyrti­vöru­markaðinn af alvöru þegar hún byrjaði að glíma sjálf við húðvandamál.

„Það tók mig langan tíma að átta mig á hvað þetta var og heilbrigðis­kerfið gat enga hjálp veitt. Að lokum kom í ljós að í ferðum tengdum náminu, við sýnatökur upp eftir allri austur­strönd Banda­ríkjanna, þá hafði ég sýkst af mörgum sníkju­dýrum. Í baráttu minni við þessar sýkingar þá gerði ég mér ljóst að til þess að halda lífi þá yrði ég að taka upp ástund á einhverju sem ég hefði svo gaman af, til hjálpa mér að dreifa huganum. Á sama tíma þá átti ég við erfið húðvandamál að stríða, m.a. sem afleiðingu af „lyme“-sýkingunum, og ég fór að skoða hvað það gæti verið í húðvörum sem færi svona illa með húðina mína. Ég verð að segja að ég varð fyrir algjöru áfalli og enn þann dag í dag verð ég reið þegar ég sé hvað fram­leiðendur ætlast til að við berum á húðina. Mörg af þessum efnum eru í skelfileg og án efa verða þau bönnuð í fram­tíðinni. En allavega, þá leiddi þetta til þess að ég fór að blanda mínar eigin formúlur og safna jurtum til að prófa áhrif af mismun­andi andoxunar­efnum. Eitt leiddi af öðru og eins og oft með mín fyrri áhugamál, þá stækkaði þetta mjög hratt og gladdi sál mína mikið, þannig að það varð auðveldara að eiga við veikindin.“

Dr. Guðrún Mart­eins­dóttir leiðir TARAMAR

Vöru­úrvalið hjá TARAMAR er fjöl­breytt og hægt að finna ýmsa hluti sem henta vel sem jólagjöf. Sem dæmi er hægt að nefna nætur­kremið þeirra en það er með öfluga lífvirkni og veitir raka og næringu. Það styrkir húðfrumurnar meðan þú sefur og dregur úr hrukku­myndun. Það hljóta allir að vilja styrkja húðfrumurnar.

Svo er líka hægt að kaupa „Healing Treatment“ formúluna frá TARAMAR en hún er þróuð til að endur­byggja og gera við húðina hvar sem er á líkamanum. Kremið er græðandi og notkunar­gildi þessa krems er mikið. Kremið hefur reynst vel fyrir þá sem eru með brennda húð, sólarexem, rósroða, mislitun í húð, sveppi í húð, bólur, vægar sýkingar eða kláða í húðinni. Þetta væri frábært að eiga þegar maður eldar áramóta­matinn og brennir sig við elda­mennskuna.

Síðast en ekki síst má nefna „Hydration Treatment“ en það er lífræn olíu­blanda sem er þróuð sérstak­lega fyrir þurra húð. Eitthvað sem jóla­kuldinn kallar fram hjá mörgum. Þessi blanda er góð fyrir venjulega húð og hefur einstaka eigin­leika til að róa húðina. Blandan byggir á olíum úr mangosteen-ávextinum, valmúa­fræjum og kókos­hnetum sem eru notaðar til að draga út öflug andoxunar­efni úr lífrænt ræktuðu hvítu tei og íslenskum þrenningar­fjólum.

Auðvitað eru margar aðrar glæsilegar vörur frá TARAMAR sem henta vel í jóla­pakkann og fólk getur kynnt sér þær á heima­síðunni TARAMAR.is.

Kynning þessi birtist fyrst í nýjasta tölublaði Mannlíf sem hægt er að lesa hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Kynning

Efni unnið í samstarfi við auglýsendur