Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Kristrún sendir Rússlandsstjórn tóninn

„Harður vetur framundan“

Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra Íslands
Kristrún Frosta­dóttir, for­sæt­is­ráð­herra Íslands fundar með Selenskí og leið­togum stór­velda Mynd: RAIGO PAJULA / AFP

Kristrún Frosta­dóttir forsætis­ráðherra tók í gær og í fyrradag þátt í mikil­vægum fjar­fundum með Volodómír Selenskí Úkraínu­forseta og leiðtogum helstu stuðnings­ríkja Úkraínu. Tilefni fundanna var að sýna samstöðu í verki þegar Úkraínu­menn fagna því að 35 ár eru liðin frá endur­reisn sjálf­stæðis landsins.

Staða mála í innrásar­stríði Rússa í Úkraínu var rædd í þaula á trúnaðar­fundum leið­toganna. Sjónum var einkum beint að helstu áskorunum við að verja Úkraínu gegn linnulausum skotflauga­árásum Rússa. Þá var rætt um þörfina á að herða enn á þrýstingi og refsiaðgerðum gagnvart Rúss­landsstjórn svo unnt verði að knýja fram réttlátan frið. Leiðtogar Norður­landanna og Eystrasalts­ríkjanna (NB8) undir­strikuðu eindreginn stuðning sinn við varnar­baráttu Úkraínu í sameiginlegri yfir­lýsingu.

Fordæma grimmilegar árásir

„Rússar halda áfram að valda hrikalegri eyði­leggingu í innrásar­stríði sínu gegn Úkraínu. Við fordæmum Rúss­landsstjórn harðlega fyrir grimmilegar árásir á almenna borgara og borgaraleg skotmörk og áréttum samstöðu okkar og stuðning við Úkraínu,“ segir forsætis­ráðherra á vef stjórnar­ráðsins.

Hún varar við því að ástandið fari versnandi þegar haustar. „Það er harður vetur framundan. Staðan er einfald­lega þannig að stuðnings­ríkjum Úkraínu, austan hafs og vestan, ber að gera allt sitt til að mæta varnar­þörfum Úkraínu og að styðja við Úkraínu­menn með því að leita allra leiða til að tryggja orku­öryggi í landinu.“

Í yfir­lýsingu leið­toganna með Úkraínu­forseta kemur fram að NB8-ríkin muni standa með Úkraínu svo lengi sem þörf krefur. Árásir Rússa á almenna borgara og mikilvæga innviði eru harðlega fordæmdar og lýst er yfir stuðningi við enn frekari og hertar þvingunar­aðgerðir gegn Rússlandi.

Samstilla loftvarnir fyrir veturinn

Forsætis­ráðherra tók einnig þátt í víðtækari fjarfundi leiðtoga ríkjahóps til stuðnings Úkraínu. Sá fundur fór fram undir stjórn Sir Keir Starmer, forsætis­ráðherra Bretlands, Emmanuel Macron Frakk­lands­forseta og Olaf Scholz, sambands­kanslara Þýska­lands.

Á fundinum gaf Úkraínu­forseti starfs­systkinum sínum raunsanna og alvarlega lýsingu á stöðunni á vígvellinum. Mikil áhersla var lögð á að nýta vel næstu vikur til að undirbúa Úkraínu­menn og styrkja loft­varnir landsins gegn harðnandi árásum Rússa áður en veturinn gengur í garð. Leiðtogar á þriðja tug ríkja tóku þátt í fundinum og ítrekuðu skuld­bindingar sínar gagnvart öryggi Evrópu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis

Veðurstofan hefur gefið út gula viðvörun fyrir miðhálendið í kvöld. Síðdegis hvessir einnig suðvestanlands.
Innlent

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir varði samning ráðuneytisins um ráðgjöf vegna þjóðaratkvæðagreiðslu
  • Kristrún segir hallalaus fjárlög sleggjuna sem þurfi til að ná vöxtum niður

  • „Staðan á vissum tímum sólar­hringsins orðin nánast óbærileg“

  • Aðeins þrír róðrar áður en hjónin riftu kaupunum

  • „Af tvennu illu er skárra að böðullinn sé ekki í felulitum frjáls­lyndis“

  • Segir Ísland útiloka einmitt þá innflytj­endur sem landið þarf á að halda