Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Ögmundur segir að stjórnvöld mismuni umsækjendum: „Ósvífin fullyrðing væri hún ekki sönn“

Ögmundur Jónasson
Ögmundur Jónasson

Gamli stjórnmála­refurinn Ögmundur Jónasson telur að íslensk stjórn­völd mismuni umsækjendum um alþjóð­lega vernd hér á landi; vísar Ögmundur, sem eitt sinn var dómsmála­ráðherra, í meðhöndlun stjórn­valda á fólki frá Úkraínu og Venesúela sem tekið er opnum örmum hér á landi að mati hans á meðan fólk frá öðrum stríðs­hrjáðum löndum fær ekki sömu meðferð.

Kemur þetta fram í aðsendri grein Ögmunds sem birtist í Morgun­blaðinu; þar segir Ögmundur til að mynda að fólk sem NATO-ríki telji skjólstæðinga sína fái aðrar viðtökur en þeir sem eigi ekki þennan sama bakhjarl.

„Þannig er fólk frá Úkraínu og Venesúela boðið velkomið án þess að aðstæður hvers og eins séu teknar til skoðunar. Fólk sem kemur annars staðar frá, jafnvel frá átaka- og hörmungar­svæðum, fær hins vegar allt aðrar móttökur. Þá er lagst ítarlega yfir persónulegar aðstæður og kannað hvort viðkomandi sæti í raun og veru ofsóknum í heima­landi sínu eða sé raun­veruleg hætta búin,“ segir Ögmundur og bendir á að íslensk stjórn­völd líti svo á að íbúar Venesúela búi við lífs­hættuleg skilyrði vegna stjórnar­farsins í heima­landinu; Ögmundur segir að um sé að ræða hápólitíska ákvörðun sem byggi á forskrift bandarískra yfirvalda.

„Þetta væri ósvífin full­yrðing væri hún ekki sönn, beinlínis skjalfest í rökstuðningi íslenskrar stjórn­sýslu. Í greinar­gerð kæru­nefndar útlendinga­mála frá 18. júlí síðastliðnum þar sem fjallað er um hælis­leitendur frá Venesúela er ítarlegur pólitískur kafli um stjórnmála­þróun í Venesúela, samhljóða álits­gerðum bandarísku utan­ríkis­þjónustunnar og stofnunum sem þjóna henni, og jafnframt áþekkur skrifum sem stundum má sjá um flóttann frá „sælu­ríkjum sósíalismans“ eins og það er kallað í háðungar­skyni um ríki sem reyna að endur­heimta auðlindir lands síns frá alþjóð­legu auðvaldi; er síðan refsað með skelfi­legum afleiðingum fyrir efna­haginn, innviðir lagðir í rúst og áður en yfir lýkur mann­réttindin einnig skert þegar aðförin að þeim verður blóðug og þau grípa til varna,“ segir Ögmundur.

Bætir við:

„Framan­greindar ábendingar og hugleiðingar hafa ekkert með það að gera hvort hingað eigi að bjóða velkomið fólk til að lifa og starfa á Íslandi, heldur um grunn hælis­kerfisins. Alþjóðleg vernd er byggð á flóttamanna­samningi Sameinuðu þjóðanna sem var samþykktur eftir seinna stríð. „Aldrei aftur“ var þá viðkvæðið og fólk skyldi njóta verndar til skjóls væri það á flótta undan ofsóknum og stríði. Við eigum að standa við þessar skuld­bindingar og gera það vel. En við eigum líka að verja þessa skipan fyrir misnotkun. Þegar ríkis­borgarar ákveðinna ríkja eru teknir fram fyrir aðra á pólitískum forsendum þá er það misnotkun. Ég segi þetta allt að gefnu tilefni. Ég hef nefnilega horft upp á einstaklinga og fjöl­skyldur annars staðar frá rekið úr landi og að því er ég óttast, út í opinn dauðann. Þetta fólk á sér hins vegar engan bakhjarl í ráðandi öflum veraldar. Og það eru þau öfl sem stilla mann­réttinda­kompás íslenskra stjórn­valda.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim