Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Innlent

Eftir­lýstur maður óvænt gripinn

Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Fiskikóngurinn: „Meiri líkur á að fá geimskip í hausinn en að veikjast eftir að hafa borðað fisk“

Fiskur og fiskikóngur.
Fiskur og fiski­kóngur.

„Sala á fiski hefur hrunið niður, eftir umfjöllun RÚV um hringorma. Það eru meiri líkur á að fá lottovinning, eða geimskip í hausinn en að veikjast eftir að hafa borðað fisk.“ Þetta segir Kristján Berg, eigandi Fiskikóngsins í færslu á Facebpook-síðu sinni í dag.

Lifandi hringormar finnast í fólki á hverju ári

RÚV sagði frá því á dögunum að á hverju ári finndust lifandi hringormar í fólki og að dæmi væru um að þeir gætu valdið miklum skaða. Sagt var frá því að einn slíkur hefði fundist í bleyju barns. Karl Skírnisson, sníkju­dýra­fræðingur, sagði í samtali við RÚV að ormarnir kæmu að öllu jöfnu úr þorsk­fiskum, síld eða uppsjávarfiskum. Í gær var greint frá því að Matvæla­stofnun berist nú fleiri tilkynningar en áður um lifandi hringorma í fiski. Verkefna­stjóri sagði það líklega tengjast breyttum neyslu­venjum.

Umræðan til þess fallin að fólk sæki meira í skyndibita

Kristján Berg hefur marga fjöruna sopið þegar kemur að fiski. Hann vandar ríkis­fjöl­miðlinum ekki kveðjurnar.

„Þessi umræða er til þess fallin að fólk sækist meira í skyndibitamat. Eitthvað sem íslenska þjóðin þarf ekki á að halda. Við eigum ferskan fisk, íslenska villibráð, sem syndir allt í kringum landið. Er hægt að borða meiri gæði, betri mat en íslenskan ferskan fisk. Ef svo er, þá þætti mér vænt um að heyra hvaða ofurfæði það er.

RÚV er alveg að gera uppá bak í frétta­flutningi. Það er annað hvort fréttir af Land­spítalanum sem er í fréttum, neikvæðar fréttir (er ekki hissa á að fólk vilji ekki vinna þar, þar sem það eru stans­lausar leiðinda­fréttir þaðan, 95% af þeim eru neikvæðar). Eða þá fréttir af kindum/rollum eða dýrum, einhver krúsíbjörn að leika sér í snjó í dýragarði, eða rolla sem er með 4 horn.“

Kominn tími til að styðja við íslenska framleiðslu

Kristján segist halda að RÚV ætti að taka sig saman í andlitinu og birta jákvæðar fréttir.

„Núna er kominn tími til þess að snúa blaðinu við. Borða holla íslenska fæðu, hætta að flytja inn alls konar drasl matvöru og styðja við íslenska fram­leiðslu. Íslenskur fiskur á að vera þar efstur á blaði. Verð­bólgan færi þá kannski líka aðeins niður, þannig að þetta er WIN WIN dæmi.

Eins og fram kom í fréttum um daginn, þá er áunnin sykursýki orðið vandamál. Get fullvissað ykkur um að þið fáið ekki áunna sykursýki við að borða ferskan íslenskan fisk.

Nr. 2: Íslenskur fiskur er ekki niður­greiddur eins og lamba­kjötið, þar eru ríkis­styrkir til bænda nokkrir milljarðar á ári.“

„Við sem seljum fisk, þætti vænt um að við fengjum þessa styrki, þó svo það væri ekki nema í eitt ár. Það þætti okkur sann­gjarnt. Þetta er orðið gott,“ segir Kristján Berg að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Náttfata­veisla unglings­stúlkna endaði í harmleik

Um 50 ungmenni mættu í veisluna eftir að hún hafði verið auglýst á netinu
Heimur

„Þekktasta klámstjarna Ítalíu“ vill verða borgar­stjóri Rómar

Heimur

Tveggja barna faðir skotinn til bana á þakkar­gjörðar­daginn

Heimur

Sautján ára skóla­stúlka lést eftir árás

Innlent

Húsfélagi óheimilt að rukka skrópara

Innlent

Mál vegna gruns um kynferðis­brot í Garðaseli fellt niður

Maðurinn var handtekinn 17. mars en sleppt skömmu síðar. Honum var vikið úr starfi meðan rannsóknin stóð yfir.

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Kveikti í íbúð með vél úr mótor­hjóli

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu