Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Skoðun

Ég ber virðingu fyrir öllum

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Minning

Þrír skip­verjar fórust

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlis­manns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.

Jökull ÞH 299
Jökull ÞH 299 Skipið Jökull ÞH 299 sökk út af Aust­fjörðum í gær­kvöldi. Fjórtán skip­verjum var bjargað en þrír lét­ust. Mynd: GPG Seafood

Patrícia Mikulová, sambýlis­kona Kristins Hrannars Hjalta­sonar, skip­stjóra á Jökli ÞH 299, þakkar þeim sem komu áhöfninni til bjargar þegar skipið sökk út af Aust­fjörðum í gærkvöldi. Kristinn var meðal fjórtán skipverja sem björguðust. Þrír skip­verjar létust í slysinu.

Í færslu á Facebook segir Patrícia erfitt að lýsa tilfinningum sínum eftir sjóslysið. Kristinn sé kominn heim til hennar og barnanna og fyrir það sé hún innilega þakklát. Jafnframt leiti hugur hennar til þeirra sem misstu ástvin í slysinu.

„Að geta haldið utan um manninn minn aftur og að börnin okkar geti faðmað pabba sinn, er eitthvað sem ég mun aldrei taka sem sjálfsögðum hlut.“

Patrícia þakkar Landhelgis­gæslu Íslands, áhöfnum þyrlna og flugvéla, björgunar­sveitum Lands­bjargar og áhöfnum skipanna sem komu til aðstoðar. Hún þakkar einnig sjúkra­liðum og öðrum sem hlúðu að skip­verjunum þegar þeir komu í land. Hugrekki þeirra, dugnaður og umhyggja skipti fjöl­skylduna meira máli en hún fái lýst með orðum.

Patrícia segir að hún muni aldrei gleyma þeim stuðningi sem fjöl­skyldan hefur fengið. Hún þakkar öllum sem hugsuðu til áhafnarinnar og fjöl­skyldna skip­verjanna og beinir orðum sínum til þeirra sem eiga nú um sárt að binda.

„Til fjöl­skyldna og ástvina þeirra sem létu lífið, votta ég mína dýpstu samúð. Ég veit að engin orð geta létt ykkar missi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Fíllinn kom út úr skóginum í veg fyrir manninn
Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innlent

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Innlent

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Tíminn er að renna út

Sölvi sló lögreglu­mann og lét þar ekki staðar numið

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Vildi fá Skódann sinn aftur en lögreglan heldur honum áfram