Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Opnuðu Hopp Italia í Como-borg: Ég trúi því eindregið að Hopp Italia geti breytt hugarfari Ítala

Hopp-hjól í Como-borg
Hopp-hjól í Como-borg Mynd: Instagram-skjáskot

Síðasta haust, í september nánar tiltekið, byrjaði Hopp Italia, sem er sérleyfis­hafi frá hinu íslenska fyrirtæki Hopp, að bjóða upp á rafskutlur í ítölsku borginni Como. Viðtökurnar hafa verið frábærar að sögn eiganda Hopp Italia, Fannars Eðvarðs­syni.

Getur Ísland verið fyrirmynd Evrópu hvað varðar orku­skipti og sjálf­bæran hreyfanleika? Svarið virðist vera jákvætt. Hopp Italia hefur nú tekið til starfa í fyrsta skipti á Ítalíu og hefur valið borgina Como og fegurð vatnsins, til að deila nýjum sjálf­bærum lífsstíl: Hopp rafhjól hafa verið notaðar af ferða­mönnum sem og heima­mönnum í borginni Como síðan í september á síðasta ári. Fjöldi fjöl­miðlar á Ítalíu eru farnir að tala um þetta íslenska fyrirtæki og er mikil forvitni og áhugi á þessu nýja framtaki. Að sögn eigenda er markmið Hopp Italia að kynna nýjan sjálf­bæran lífsstíl á Ítalíu og gera Ítölum kleift að hætta að nota bílinn, mótor­hjólið eða hvaða bensín- eða dísil­drifna faratæki sem er og byrja að ferðast um á rafvespum. Að sögn eigenda fyrir­tækisins, hyggst Hopp Italia skapa öflugt samstarf við litlar ítalskar borgir með þróun og vöxt til langs tíma í huga, með því að koma fyrir­tækjum og einstaklingum inn í þetta frábæra verkefni svo hægt verði að skapa nýjan lífsstíl sem er umhverfis­vænn og hagkvæmur. Til þess er Hopp Italia í samstarfi við De Stefano Bilar ehf, en eigandi þess, Lara de Stefano er ítalskur ríkis­borgari fædd og uppalin í Como.

Lara de Stefano segir þetta um Hopp Italia: „Þegar ég kom til Íslands árið 2019 kom það mér á óvart hversu margir notuðu rafmagns­vespur í Reykjavík og ég hélt alltaf að ef Hopp væri líka á Ítalíu og Como, hversu mörg vandamál yrðu leyst. Á Ítalíu eigum við enn langt í land hvað varðar markmið orku­skiptanna með umskipti frá bensín- og dísil­bílum yfir í raf- eða jarðgas­bíla. Við höfum burðina en ekki menninguna og ég tel að það sé mjög stefnu­mótandi að byrja á frumkvöðla­hugmyndum eins og Hopp til að byrja að breyta sýn og kynna ný gildi. Ítalir eru sérstakt fólk: þegar þeir sjá að þeim líkar við eitthvað, að það er þægilegt, einfalt, smart og gáfulegt, þá byrja þeir að breytast og koma því inn í lífsstíl sinn. Ég trúi því eindregið að Hopp Italia geti breytt hugarfari Ítala því þeir geta byrjað að kynnast rafmagns­vespum á skemmtilegan og einfaldan hátt. Ég er viss um að Hopp verði bráðum nýr ítalskur lífstíll.“

Mannlíf heyrði einnig í Fannari Eðvarðs­syni, eiganda Hopp Italia og spurði hann af hverju Ítalía hafi orðið fyrir valinu en áður hafði hann verið sérleyfis­hafi Hopp í bæjum eins og Akureyri, Höfn og Egils­staði. „Ég og kona mín og bróðir hennar byrjuðum þetta á Ítalíu en það var þannig að móðir þeirra heitin, hún elskaði Ítalíu og fór með okkur til Ítalíu og fór margoft með þeim þangað. Þannig að það er svolítið ítalskt í hjartanu þeirra. Við erum samt ekkert að borða lasagna og pasta í hvert mál,“ sagði Fannar og hló. „Við sáum hvað var að ganga vel á Höfn, fyrst það gekk vel þar, í svo litlum bæ, þá hugsuðum við bara „getum við farið til Ítalíu?“.“ Como-borg hentar að sögn Fannars afar vel fyrir rafskutlur. „Como-svæðið hefur upp á svo margt að bjóða, geggjað veður og fullt af túristum sem fara þar í gegn og þarna er sléttlendi og þægilegt fyrir hjólin. Og löng sumur og á veturna er fólk bara í úlpu en þarf varla að setja upp húfur og vettlinga. Þú getur alltaf notað Hopp-hjólin, alltaf.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim