Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Eftir­lýstur maður óvænt gripinn

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Framkvæmdastjóri Herjólfs neitar að svara spurningum um brot skipstjóra: „Ég er bundinn trúnaði“

Mynd/vegagerdin.is
Mynd/vega­gerdin.is

Hörður Orri Grettisson, framkvæmdar­stjóri Herjólfs ohf. hefur ítrekað neitað að svara spurningum Mannlífs er varða meint brot Ívars Torfa­sonar skip­stjóra. Heimildir Mannlífs herma að hann hafi fengið tiltal vegna meintra blygðunarsemis­brota gagnvart konum í áhöfn Herjólfs.

Skip­stjórinn var nýlega áminntur og lækkaður um tign fyrir að sigla skipinu án réttinda fyrir jól og fyrir að skrá nöfn áhafnar­meðlima fyrir siglingunum án þeirra samþykki, úr því að vera yfir­skipstjóri og niður í venju­legan skip­stjóra. Ekki liggur fyrir hver munurinn er á tiltlunum. Lögreglan rannsakar nú málið.

Sagt hefur verið frá því í fréttum undan­farið að ólga sé innan áhafnar Herjólfs vegna brota skip­stjórans og hafa þó nokkrir starfs­menn sagt upp störfum, síðast í gær þegar tveir hættu. Heimildir Mannlífs herma að nú hafi verið ákveðið að halda einhverskonar námskeið fyrir starfs­fólkið og ráða vinnustaða­sálfræðing, í von um að laga andrúms­loftið um borð.

Eftir ítrekaðar tilraunir náðist loksins í Hörð Orra í síma en þar sagðist hann ekki svara neinu varðandi skip­stjórann. „Það er ekkert meira fyrir mig um málið að segja, ég er bara bundinn trúnaði við mína starfs­menn og það sem gerist hérna í þessu fyrirtæki alveg sama hvað það er,“ sagði Hörður og bætti við að hann hafi fylgst með umræðunni síðustu daga.

Mannlíf sendi Herði einnig tölvupóst með nokkrum spurningum er vörðuðu meint blygðunarsemis­brot Ívars gagnvart kvenkyns áhafnar­meðlimum skipsins. Svaraði Hörður á sama máta og í símtalinu. Þó hafði hann svarað því áður að hann hafi fengið leyfi frá skip­stjóranum til að svara að hann hefði aldrei áður fengið áminningu í starfi hjá Herjólfi. Hér eru spurningarnar sem Hörður Orri vill ekki svara:

Hefur skip­stjórinn fengið ef ekki formlega áminningu, þá tiltal vegna ósæmilegrar hegðunar gagnvart kvenkyns áhafnar­meðlimum?

Hafa kvartanir borist ykkur vegna ósæmilegrar hegðunar skip­stjórans gagnvart kvenkyns áhafnar­meðlimum? Ef svo er, hvað var gert í málinu?

Hver er nú yfirskipstjóri hjá Herjólfi?

Hvernig er starf­skylda yfir­skipstjóra Herjólfs frábrugðin venju­legum skip­stjórum skipsins?

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Náttfata­veisla unglings­stúlkna endaði í harmleik

Um 50 ungmenni mættu í veisluna eftir að hún hafði verið auglýst á netinu
Heimur

„Þekktasta klámstjarna Ítalíu“ vill verða borgar­stjóri Rómar

Heimur

Tveggja barna faðir skotinn til bana á þakkar­gjörðar­daginn

Heimur

Sautján ára skóla­stúlka lést eftir árás

Innlent

Húsfélagi óheimilt að rukka skrópara

Innlent

Mál vegna gruns um kynferðis­brot í Garðaseli fellt niður

Maðurinn var handtekinn 17. mars en sleppt skömmu síðar. Honum var vikið úr starfi meðan rannsóknin stóð yfir.

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Kveikti í íbúð með vél úr mótor­hjóli

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu