Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Guðrún hefur heimsótt 150 lönd heims: „Vil leggja fátæku fólki lið víða“

Á alþjóða­þingi Lions í Las Vegas árið 2018 var Guðrún Björt Yngva­dóttir úr Lionsklúbbnum Eik í Garðabæ kosin alþjóð­forseti Lions, fyrst Íslendinga og fyrst kvenna í 101 árs sögu Lions. Hún er lífenda­fræðingur að mennt og vann um tíma við rann­sóknir og kennslu og gegndi hún síðan um árabil stöðu aðstoðar­forstöðu­manns Endur­menntunar Háskóla Íslands.

Eigin­maður Guðrúnar, Jón Bjarni Þorsteinsson, gekk í Lions árið 1982. „Lions var karla­klúbbur á þeim tíma og var konum ekki leyft að vera félagar en það breyttist árið 1987. Ég þekkti Lions því í byrjun í gegnum manninn minn, vini hans og klúbb­félaga og mér fannst skipta svo miklu máli hvað var lögð mikil áhersla á vináttuna og virðingu fyrir hvert öðru. Konur og börn félaga tóku þátt meðal annars með því að planta trjám og vinna að verkefnum í samfélaginu en það sem einkennir hreyfingu eins og Lions er að það er settur ákveðinn standard sem skapar ákveðin gæði í félags­starfi og ákveðin tækifæri til þess að horfa á samfélagið með öðrum hætti og þroska hæfileika sína svo sem leiðtoga­hæfileika.“

Guðrún gerðist svo félagi í Eik árið 1992.

„Ég gekk í Lions upphaf­lega út af því að ég vissi að þetta var skemmtilegur klúbbur, skemmtileg vinátta og það er alltaf gaman að vera í góðum hópi. Ég vissi auk þess að Lions væri að vinna mjög góða hluti bæði hér á landi og erlendis. Það sem heillaði mig mest á þessum tíma var að alþjóða­hreyfing Lions var í alþjóð­legu átaki við að safna peningum í sjónverndar­átak og vinna með Alþjóða­heilbrigðis­mála­stofnuninni við að útrýma ákveðnum augn­sjúkdómum á blindum víða um heim. Mér fannst það vera svo magnað. Þannig að ástæðan fyrir því að ég gekk í Lions var líka sú að leggja fátæku fólki lið víða um heim. .

Þegar ég kynnt­ist Lions átt­aði ég mig á því að það fælust ný tæki­færi í að vera í svona alþjóð­legri hreyf­ingu.“

Nýtt og ferskt

Guðrún gegndi svo í gegnum árin flestum embættum hreyfingarinnar hér á landi. Hún var meðal annars umdæmis­stjóri og fjöl­umdæmis­stjóri. Áherslur hennar hafa tengst börnum og ungu fólki, félaga­málum, leiðtoga­málum, heilsu og vellíðan og þar á meðal sjónvernd og sykursýki, umhverfis­málum og alþjóða­sjóði Lionshreyfingarinnar (LCIF).

Það var oft mikið að gera. Hún var í fullri vinnu og sinnti verkefnum sínum hjá Lions. Hún fór að minnka við sig vinnu hjá Endur­menntun HÍ, tók sér launa­laust leyfi og hætti svo þar störfum árið 2010 en hún tekur fram að yfirmenn sínir hafi alltaf tekið vel í það þegar hún fór jafnvel nokkrum sinnum á ári til útlanda vegna verkefna hennar þar fyrir Lions.

Og hún vildi meira innan alþjóða­hreyfingarinnar. Hún vildi verða alþjóða­forseti Lions.

„Til þess að vera gjald­gengur fram­bjóðandi til alþjóða­forseta þá þarf maður að hafa gegnt mörgum stjórnunar­embættum, bæði innanlands sem í sinni heimsálfu, og hafa víðtæka þekkingu og reynslu svo sem varðandi alþjóð­lega hjálpar­sjóðinn og vera í leiðtoga­þjálfun við að fræða aðra. Þetta var ég búin að vera að gera síðustu 15 árin.

Kristín Björt Yngva­dóttir

Ég byrjaði síðan í kosninga­baráttu árið 2015. Fram­bjóðendur voru 16 þegar ég tók þessa ákvörðun og þurfti ég að fara víða um heim til að kynna mig og vera mjög virk. Og það var fullt starf að vera fram­bjóðandi. Þegar ég ákvað að gefa kost á mér þá gerði ég mér ekki grein fyrir því hvað þetta væri hörð kosninga­barátta og ég þurfti strax að sanna mig. Sanna að ég gæti lagt eitthvað af mörkum til að styrkja hreyfinguna. Og það var rosalegur skóli. Það skipti síðan miklu máli fyrir sjálfs­traustið að sigra 16 aðra fram­bjóðendur; það styrkti mig í að þora að gera eitthvað mikilvægt, leggja til ákveðnar breytingar og sýna ákveðið frumkvæði á ákveðnum sviðum. Þegar ég var í kosninga­baráttunni hafði aldrei kona gegnt starfi alþjóða­forseta í 100 ára sögu Lions og mjög fáir Evrópu­búar. Þannig að ég var mjög nýtt og ferskt afl.“

Guðrún var kosin 2. vara­forseti árið 2016 og segir að þá hafi hún fundið að það væri hlustað á það sem hún sagði. „Það voru miklar væntingar og ég var oft spurð hvernig ég ætlaði að breyta hinu og þessu. Og ég þurfti að hafa svörin á hreinu og þróa stefnu mína mjög fljótt. Ég ferðaðist mikið, varð öruggari þegar ég kom fram og reyndari.“

Ákveðið kerfi er í Lions og árið 2017 varð Guðrún 1. vara­for­seti og svo var hún eins og þegar hefur komið fram kosin árið 2018 alþjóða­for­seti Lions, fyrst Íslend­inga og fyrst kvenna, í 100 ár sögu Lions.

„Ég nýtti mér það alveg í botn að koma með ferskar áherslur inn í þetta alþjóð­lega samfélag. Stór hluti Lions-félaga er í Asíu og Japanir eru þar mjög sterkir og margir þar hugsa allt öðruvísi en við Evrópu­búar.“

Um 150 lönd

Guðrún hefur undan­farin ár hitt ýmsa máls­metandi aðila svo sem embættis­menn, þjóð­höfðingja og annað frægt fólk sem var að vinna að góðum málefnum. Lions er í samstarfi meðal annars við Sameinuðu þjóðirnar, Alþjóða­heilbrigðis­mála­stofnunina og Special Olympics en Kenndy-fjöl­skyldan stofnaði Special Olympics árið 1968. Hún nefnir einnig fyrirtæki og stofnanir sem vinna að góðgerða­málum.

Þessi ár voru viðburðarrík.

„Ég hef heim­sótt um 150 lönd og hef tekið þátt í Lions-verk­efnum út um allan heim og séð hvað þörfin er ólík.

Maður sinnir til dæmis allt öðruvísi verkefnum í Afríku og Evrópu því þarfirnar eru svo ólíkar. Þó það sé til fátækt í Evrópu þá er hún ekki sambærileg við fátækt til dæmis í Afríku og Indlandi. Þannig að verkefnin eru ólík. Allir sem eru í Lions í Afríku eru vellauðugir og þeir gefa jafnvel heil sjúkrahús. Það er alveg ótrúlegt hvað menn eru rausnar­legir. Það sem einkennir Lions-félaga er að þeir vilja leggja samfélaginu lið; þeir vilja ekki bara nota auð sinn í að kaupa nýjar snekkjur eða þotur.“

Guðrún er spurð hvað standi upp úr þessi ár.

„Mörg verkefni í Afríku koma upp í hugann. Ég get nefnt skóla í Sambíu sem Lionsklúbbar þar í landi stofnuðu fyrir 25 árum og það finnst mér vera magnað. Skólinn eru fyrir blind og sjónskert börn af því að á þeim tíma var það að fæðast fatlaður að einhverju leyti oft dauða­dómur; fjöl­skyldur áttu mörg börn og ef einhver voru fötluð þá hurfu þau sum í næsta stöðuvatn. Foreldrarnir urðu að styðja þau sem voru lífvænleg því þau gátu ekki öll komist á legg. Fátæktin var svo mikil. Það voru í upphafi nokkrir tugi barna í skólanum, sem er heimavistar­skóli, en nú eru þar nokkur hundruð börn og það er verið að stofna nýja deild sem var nefnd í höfuðið á mér. Þannig að það er skóli með nafni mínu í Sambíu. Þetta var svo mikil upplifun. Þessi börn komu mjög vel fyrir og sungu fyrir mig og tóku þátt í ýmsum viðburðum.

Það er girðing í kringum skólann og öryggis­verðir við hliðin en engu að síður komust nágrannar inn í skólann og stálu reglulega meðal annars rúmdýnum. Ég spurði hvað Lionsklúbburinn gerði við því og var sagt að það væri ekkert gert heldur væru nýjar dýnur keyptar. Ég spurði hvers vegna stæði á því þar sem þá myndu nágrannar halda áfram að stela. Þá var sagt að með því að gefa þeim kost á að ná í það sem þeir þyrftu þá væri líka verið að styðja við fátækar fjöl­skyldur. Þetta var alveg nýtt fyrir mér.“

Guðrún nefnir líka heimsókn til Benin þar sem er þorp sem byggt er á staurum í stöðu­vatni.

„Lions-klúbbarnir höfðu reynt að bjóða íbúunum upp á bólu­setningar, augn­mælingar og aðra þjónustu en íbúarnir þáðu hana aldrei. Þá var ákveðið að byggja þjónustu­miðstöð úti í vatninu og ég fór ásamt öðrum að opna hana.

Íbúar komu á litlum bátum sem skiptu hund­ruðum og voru íbúar klæddir þjóð­bún­ingum og sumir héldu á íslenska fán­anum af því að ég var aðal­gest­ur­inn.

Þetta var ævintýraleg upplifun. Ég gerði ekkert nema að alþjóða­hjálpar­sjóður Lions veitti smástyrk til verk­efnisins og íbúarnir voru svo þakklátir.“

Ákveðið þakklæti

Á meðan Guðrún gegndi embætti alþjóðaforesta Lions var hún oft heima í kannski tvo til þrjá daga í mánuði.

„Þetta var mjög þreytandi þangað til Covid-heims­faraldurinn skall á en síðan hef ég unnið í gegnum tölvu. Það er verið að halda rafræna viðburði í hverju landi og þar er ég alltaf með eitthvað innlegg og hef ég á síðastliðnum 18 mánuðum útbúið um 300 myndbönd þar sem ég tala til félaganna, þakka og hvet til dáða,“ segir Guðrún sem í dag er í stjórn alþjóða­hjálpar­sjóðs Lions og er þar í ýmsum nefndum.

„Það er heilmikið starf fram undan og það fylgir því mikil ábyrgð að vera í þessu en þegar maður er búinn að vera alþjóða­forseti þá þarf maður að skila til baka reynslunni með því að sinna ákveðnum störfum. Núna er ég til dæmis æðsti leiðtogi Lions í Evrópu þangað til næsti Evrópu­forseti verður valinn, eftir kannski 10 ár.“

Guðrún segir að það sem drífi sig áfram sé ákveðið þakklæti sem hún finni fyrir og að hún finnur að hún hafi náð árangri. Skilað einhverju; séð að markmið hafi náðst.

„Þetta er eins og með vinnu og fjöl­skylduna; þegar maður nær markmiðum þá verður maður svo glaður og heldur áfram. Það er tvennt sem drífur mig áfram. Það er annars vegar persónuleg markmið og það að finna að maður sé að ná árangri, skila einhverju og gera eitthvað gagn. Svo er það hins vegar ákveðin þörf fyrir að bæta samfélagið; þetta er mín leið til að vinna fyrir samfélagið; ekki bara í mínu bæjar­félagi heldur á heimsvísu.

Ég vil leggja sam­fé­lag­inu lið. Samfélag mitt er allur heim­ur­inn.“
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Árið 2022 sagðist hún sjá sig í háskóla og pólitík eftir fimm ár. Nú hefur hún stofnað einkahlutafélag með fjölþættan tilgang.

Fjórum árum eftir að heilinn hótaði uppsögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Átta mistök sem fólk ætti að forðast ef það flýgur um jólin

Hlýlegt heimili við Efri Hól bíður nýrra eigenda

Björgvin Franz fagnar eins árs sambands­afmæli með kærustunni