Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Heimur

Kærastan fann dag­bæk­urnar og sleit sam­band­inu við David Walliams

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sam­bands­af­mæli með kærust­unni

Innlent

Grun­semdir vökn­uðu þegar son­ur­inn sagð­ist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Prestur rifjar upp óþægi­lega reynslu úr æsku

Fólk

„Ég er orð­inn leiður á að vera veikur“

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Heimur

Raun­veru­leika­stjarnan Sheila Mangubat látin 35 ára að aldri

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Krist­ínar

Meintur fíkniefnasali reyndist hárgreiðslumaður – Drengir brutust inn í grunnskóla

Lögreglan að störfum í miðborginni Mynd/Lára Garðarsdóttir
Lög­reglan að störfum í mið­borg­inni Mynd/Lára Garð­ars­dóttir

Skemmt­ana­hald fór að mestu leiti frið­sam­lega fram á höf­uð­borg­ar­svæð­inu í nótt sam­kvæmt dag­bók lög­reglu. Eitt og annað bar þó á góma á öðrum víg­stöðum.

Í mið­bænum var til­kynnt um unga drengi sem virt­ust ósáttir við helg­ar­fríið þar sem þeir sáust fara inn í grunn­skóla. Er lög­reglan mætti á vett­vang var engan að sjá en aug­ljóst að búið var að fara inn og valda eign­ar­spjöllum. Einnig var aðili grun­aður um ölvun við akstur en ekki náð­ist að standa hann að verki. Var hann vistaður í fanga­geymslu og er málið komið á borð rann­sókn­ar­deildar. Þá barst lög­reglu til­kynn­ing um mann sem var að reyna að kom­ast inn í bíla í einum af bíla­stæða­húsum borg­ar­innar. Ekki er vitað hvort hann hafði eitt­hvað upp úr krafs­inu.

Í Hafn­ar­firð­inum var aðili hand­tek­inn vegna óspekta og vistaður í fanga­geymslu fyrir brot á áfeng­is­lögum og fyrir að fara ekki eftir fyr­ir­mælum lög­reglu.

Á lög­reglu­stöð 4, sem sinnir útköllum í Árbæ, Graf­ar­holti, Graf­ar­vogi,  Norð­linga­holti, Mos­fellsbæ, Kjós­ar­hreppi og á Kjal­ar­nesi er sagt frá tveimur furðu­legum málum. Þar var aðili vistaður vegna ástands. Ekki kom fram í dag­bók lög­regl­unnar hvort ástandið tengd­ist áfengi eða fíkni­efnum eða ástand­inu fyrir botni Mið­jarð­ar­hafs. Aukreitis barst til­kynn­ing um sölu fíkni­efna málið átti ekki við rök að styðj­ast þar sem sölu­mað­ur­inn reynd­ist vera hár­greiðslu­maður, sam­kvæmt dag­bók­inni en eins og allir vita geta hár­greiðslu­menn ekki selt fíkni­efni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neð­an­jarð­ar­hvelf­ingu fyrir „fram­andi efni“

Gögnin eru hluti af 43 skjölum sem voru birt nýlega. Þar er einnig fjallað um óútskýrðar ratsjármælingar frá árinu 2023.
Menning

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt

Pólitík

Kristrún segir halla­laus fjár­lög sleggj­una sem þurfi til að ná vöxtum niður

Heimur

Sam­sær­is­kenn­ingar spretta upp eftir und­ar­legt augna­blik á blaða­manna­fundi

Innlent

Sendi sak­sókn­ara falsað lækn­is­vott­orð og hlaut árs­fang­elsi

Innlent

Innkalla vin­sælt jóla­smáköku­deig vegna aðskota­hluts

Neytendur eru beðnir um að farga vörunni eða skila henni.

Kökuboð á Pat­reks­firði end­aði fyrir dómi

Hrafn­hljóð flýgur inn á manna­nafna­skrá

Sverrir spyr hvað heilli karla við ofbeldið í Grand Theft Auto

Sakar rík­is­stjórn­ina um að gera lítið úr vinnu lág­launa­fólks og for­eldra