Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Heimur

Kærastan fann dagbækurnar og sleit sambandinu við David Walliams

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sambands­afmæli með kærustunni

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Heimur

Prestur rifjar upp óþægilega reynslu úr æsku

Fólk

Fjórum árum eftir að heilinn hótaði uppsögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Heimur

Lögregla fjarlægði mótmælanda eftir að hafa ruglast á áletrun á bol hans

Heimur

Raun­veruleika­stjarnan Sheila Mangubat látin 35 ára að aldri

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Lokkaði unga drengi upp í bílinn sinn: „Ég hefði drepið hann þetta kvöld ef ég hefði náð til hans“

Lögreglan að störfum.
Lög­reglan að störfum.

Í bak­sýn­is­spegl­inum í kvöld rifjum við upp átak­an­legt við­tal við for­eldra drengs sem birt­ist í DV þann 30.sept­em­ber árið 1986. Dreng­ur­inn varð fyrir barð­inu á Stein­grími Njáls­syni en vildu for­eldr­arnir tala um málið til þess að vekja fólk til vit­undar.

,,Þetta var allt skipu­lagt. Fyrst byrj­aði hann á því að bíða eft­ir­syni mínum við garðs­hliðið heima hjá sér og kaupa af honum blaðið. Svo gerð­ist hann áskrif­andi. Tveimur mán­uðum síðar lokk­aði hann dreng­inn okkar inn til sín þegar hann var að rukka, skellti í lás og kom fram óeðli sínu. Þegar ég frétti hvað hafði gerst óskaði ég mann­inum dauða og hét því að gera út af við hann ef hann ein­hvem tíma yrði á vegi mínum. Hatrið sem bloss­aði upp í mér var því­líkt að ég þekkti ekki sjálfan mig,“ sagði faðir 13 ára drengs­ins í við­tal­inu.

Dreng­ur­inn var eitt fórn­ar­lamba Stein­gríms sem lokk­aði unga drengi upp í bíl eða heim til sín þar sem hann braut á þeim kyn­ferð­is­lega.

„Við bjugg­umst við honum heim upp úr klukkan níu en þegar hann var ekki kom­inn heim klukkan tíu fórum við að grennsl­ast fyrir um hann. Við höfðum ein­dregið varað hann við að þiggja boð ókunn­ugra, sér­stak­lega eftir að hann hafði sagt okkur frá til­teknum manni sem var alltaf að bjóða honum á sjó. Síðar komumst við að því að það var Stein­grímur Njálsson
en það var því miður of seint,“ sögðu for­eldramir er DV ræddi við þá en fað­ir­inn bætti við: Á tröpp­unum fyrir utan „Þegar við vorum að leita að drengnum þetta kvöld hafði ég það sterk­lega á til­finn­ing­unni að þessi maður væri á ein­hvem hátt við­rið­inn hvarf drengs­ins. Um klukkan ell­efu vorum við hjónin komin upp að húsi hans og ég ætl­aði að brjót­ast þar inn þótt öll ljós væru slökkt. Konan mín kom í veg fyrir það og við fórum þess í stað niður á lög­reglu­stöð. Skömmu­síðar komumst við að því að grunur minn reynd­ist réttur, dreng­ur­inn okkar hafði verið inni í hús­inu og þolað kyn­ferð­is­legar mis­þyrm­ingar Stein­gríms á meðan við stóðum á tröpp­unum fyrir utan. Ef ég hefði farið inn væri Stein­grímur ekki lengur í tölu lif­enda.“

For­eldr­arnir voru ný komnir niður á lög­reglu­stöð þegar þeim barst sím­tal að dreng­ur­inn væri kom­inn heim en í frétt­inni segir: ,,Tveggja tíma martröð Dreng­ur­inn skýrði svo frá að Stein­grímur hefði boðið sér inn fyrir á meðan hann næði í pen­inga til að greiða áskrift­ina. En hann var ekki fyrr kom­inn inn en hurð­inni var­skellt og honum kippt inn í hlið­ar­her­bergi í íbúð­inni. Þar réð­ist Stein­grímur á hann, reifutan afhonum fotin og hélt fyrir vit hans.“

„Hann hélt honum í tvo tíma og þukl­aði allan og sleikti. Einnig reyndi hann að fá dreng­inn til að sleikja sig en um beina nauðgun var ekki að ræða. Þegar þessu var lokið sagði hann dregnum áð nú mætti hann fara….,“ sögðu for­eldramir en greini­legt var að þau áttu erfitt með að rifja þetta upp: „Ég vil ræða um þetta vegna þess að það er nauð­syn­legt að vekja fólk til vit­undar um hversu slæm Reykja­vík er orðin. Og það verður að ýta við dóms­kerf­inu,“ sagði móðir drengs­ins.

,,Hann sefur ekki einn „Eftir þetta urðum við að hugsa um hann eins og fjög­urra ára bam. Hann vildi alltaf sofa í hjóna­rúm­inu hjá okkur sem hann vætir enn í svefni. Áður var hann mjög félags­lyndur en dró sig inn í skel sína. Þeir vinir sem hann á nú em nýir. Hann sneri baki við gömlu kunn­ingj­unum. Enn þann dag í dag getur hann hvorki gengið né ekið í gegn­um­hverfið þarsem hann bar út blöð áður fyrr. Okkur var sagt að geð­læknir myndi hafa sam­band við hann en í þeim sér­fræð­ingi höfum við aldrei heyrt. Við fórum sjálf með dreng­inn til­sál­fræð­ings og þetta gengur allt eftir vonum.“

Hjónin sögð­ust stað­ráðin í að reka þetta mál til enda hvað sem það kost­aði. ,,Víti þeirra eigi að vera öðrum til varn­aðar.“ Þau hjónin segj­ast ætla að reka þetta mál til enda hvað sem það kosti þau í pen­ingum. Víti þeirra eigi að verða öðrum til vamaðar. Um Stein­grím Njálsson segir faðir blað­burð­ar­drengs­ins: „Hann á vafa­lítið við vanda­mál að stríða en ég vor­kenni honum ekki. Ég hefði drepið hann þetta kvöld ef ég hefði náð til hans…“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Gögnin eru hluti af 43 skjölum sem voru birt nýlega. Þar er einnig fjallað um óútskýrðar ratsjármælingar frá árinu 2023.
Menning

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt

Pólitík

Kristrún segir hallalaus fjárlög sleggjuna sem þurfi til að ná vöxtum niður

Heimur

Samsæris­kenningar spretta upp eftir undarlegt augnablik á blaðamanna­fundi

Innlent

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi

Innlent

Innkalla vinsælt jólasmáköku­deig vegna aðskotahluts

Neytendur eru beðnir um að farga vörunni eða skila henni.

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Hrafn­hljóð flýgur inn á manna­nafnaskrá

Sverrir spyr hvað heilli karla við ofbeldið í Grand Theft Auto

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra