Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sam­bands­af­mæli með kærust­unni

Heimur

Kærastan fann dag­bæk­urnar og sleit sam­band­inu við David Walliams

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Heimur

Prestur rifjar upp óþægi­lega reynslu úr æsku

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Heimur

Raun­veru­leika­stjarnan Sheila Mangubat látin 35 ára að aldri

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Innlent

„Sterkar vís­bend­ingar eru núna um að hryðju­verk­a­ríkið Ísrael hafi gert tölvu­árás á íslenska inn­viði“

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Ástin kviknaði á Airwaves

Þau Ísak Kári Kárason og Hekla Dögg Svein­bjarn­ar­dóttir eru miklir aðdá­endur tón­list­ar­há­tíð­ar­innar Iceland Airwaves enda kynnt­ust þau á hátíð­inni árið 2014. Þau segja ein­stakt and­rúms­loft ein­kenna Airwaves.

Ísak Kári og Hekla Dögg kynnt­ust á Iceland Airwaves árið 2014. Mynd / Aðsend

Parið Ísak Kári Kárason og Hekla Dögg Svein­bjarn­ar­dóttir kynnt­ust á tón­list­ar­há­tíð­inni IIceland Airwaves árið 2014 og hafa farið saman á hátíð­ina á hverju ári síðan þau kynnt­ust.

„Við kynnt­umst á Airwaves árið 2014 og hátíðin það árið stendur upp úr hjá okkur báðum. Ástæðan fyrir því er sú að við vorum bæði að fara í fyrsta skiptið og þá er þetta auð­vitað allt saman nýtt og spenn­andi. Þetta árið fórum við á marga eft­ir­minni­lega tón­leika, eins og bestu FM Belfast-tón­leika sem við höfum farið á, mjög sveittir og það var mikið dansað. En við kynnt­umst á tón­leikum með fær­eysku hljóm­sveit­inni Byrtu. Það var mikið stuð og við eigum enn þá fær­eyska fán­ann sem við fengum á þessum tón­leikum.“

Síðan árið 2014 hafa þau ekki látið sig vanta á Airwaves. „Nú er það orðin hefð að fara og þetta er alltaf jafn­gaman, það er ein­stakt and­rúms­loft á Airwaves,“ segir Hekla.

Spurð út í eft­ir­minni­lega tón­leika á Airwaves í gegnum tíð­ina segir Ísak: „Future Islands stendur upp úr, Samuel T. Herring söngv­ar­inn, er ólýs­an­legur á sviði. Sonics-tón­leik­arnir í fyrra voru líka sturl­aðir þar sem gamlir bíl­skúrs­rokk­arar sýndu sann­ar­lega hvað í þeim bjó.“

„Við kynnt­umst fyrst á tón­leikum með fær­eysku hljóm­sveit­inni Byrta á Boston, svo end­uðum við kvöldið í Gamla bíói á Sísíey tón­leikum.“

Hekla bætir við: „Svo er alls ekki síðra að sjá íslensku hljóm­sveit­irnar, það er alltaf jafn­gaman að sjá Sykur, Moses Hightower og Kiasmos sem dæmi. Einnig hafa Pink Street Boys og Dj. flug­vél og geim­skip komið okkur skemmti­lega á óvart.“

Þó að þau Ísak og Hekla séu miklir aðdá­endur hátíð­ar­innar ætla þau að öllum lík­indum ekki að fjár­festa í Airwaves-miða þetta árið. „Ótrúlegt en satt ætlum við reyndar lík­lega ekki í ár. Við þurfum að vera spar­söm því við erum að fara til Rómar í lok mán­að­ar­ins. Annars vorum við ekki búin að kynna okkur dag­skrána sér­stak­lega en maður kynnir sér þetta í raun­inni minna með hverju árinu og lætur hátíð­ina koma sér á óvart í stað­inn,“ segir Ísak.

Aðalmynd / Florian Trykowski

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Ísrael hefur nán­ast útrýmt ævafornum ólífutrjám Gaza

Aðeins um 150 þúsund af tveimur milljónum ólífutrjáa sem stóðu á Gaza fyrir stríðið eru enn eftir, samkvæmt gögnum landbúnaðarráðuneytisins þar.
Fólk

Átta mis­tök sem fólk ætti að forð­ast ef það flýgur um jólin

Heimur

Rússar sagðir und­ir­búa kjarn­orku­vopn á braut um jörðu

Pólitík

„Staðan á vissum tímum sól­ar­hrings­ins orðin nán­ast óbæri­leg“

Innlent

Grun­semdir vökn­uðu þegar son­ur­inn sagð­ist fá fría ferð til Taílands

Innlent

Sakar rík­is­stjórn­ina um að gera lítið úr vinnu lág­launa­fólks og for­eldra

„Ég biðla til þeirra þingmanna sem kalla sig jafnaðarmenn að beita sér gegn þessum breytingum“

Tölvu­þrjót­arnir sem réð­ust á 1984 skemmdu sjö vef­síður tengdar Palest­ínu

Að minnsta kosti þrjár Palest­ínu­tengdar vef­síður eyði­lagðar í netárásinni á 1984