Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Margrét Sigríður er á elliheimili, aðeins 59 ára: „Þetta er endastöð hjá fólki sem er hérna“

Margrét Sigríður Guðmundsdóttir
Margrét Sigríður Guð­munds­dóttir

Margrét Sigríður Guðmunds­dóttir verður sextug á árinu og hefur í um eitt ár búið á hjúkrunar­heimili fyrir aldraða þar sem hún er með MS-sjúk­dóminn og fær ekki húsnæði við hæfi. Hún mun 16. mars halda erindi ásamt dóttur sinni, Alexöndru Sif Herleifs­dóttur, á málþingi Öryrkja­bandalags Íslands „Ungt fólk á endastöð“ sem haldið verður 16. mars kl. 13:00-16:15 á Grand Hótel, Sigtúni 38 og á Zoom. Í síðu ÖBÍ segir: „Í dag eru 144 fatlaðir einstaklingar undir 67 ára búsettir á hjúkrunar­heimilum sem ætlaðir eru öldruðum einstaklingum. Þessir einstaklingar þurfa allt aðra þjónustu og umönnun heldur en aldrað fólk. Mikil skerðing er á lífsgæðum og réttindum þeirra ungu einstaklinga sem flytja tilneyddir á hjúkrunar­heimili í stað þess að fá að lifa sjálf­stæðu lífi með aðstoð á sínu heimili.“

„Ég ætla að stikla á stóru,“ segir Margrét, „og mun ég og dóttir mín, Alexandra, hafa um 20 mínútur en hún ætlar að segja hvernig hún sem aðstandandi upplifir hlutina. Við ætlum að reyna að taka á stærstu kílunum; því sem mér finnst skipta mestu máli. Ég gæti talað um þetta allan daginn; það er ekki vanda­málið.“

Þetta lenti allt á eig­in­mann­inum

Hver eru stærstu kýlin?

„Það gekk voðalega vel fyrst að fá tíma varðandi heima­þjónustu. Svo veiktist ég meira og þá þurfti ég fleiri tíma og þetta tók svo langan tíma að velkjast í kerfinu hjá þeim: Það þurfti að funda og maður fékk synjun; boltanum var alltaf rúllað fram og til baka. Svo þegar ég fékk kannski loksins tíma þá var mér búið að hraka svo mikið og þá þurfti ég að byrja aftur á byrjunar­reit. Þetta var alltaf svona koll af kolli þannig að á endanum var þetta orðið þannig að ég þufti miklu meiri þjónustu en tímarnir hrukku ekki til. Þetta lenti allt á eigin­manninum að sjá um þessa hluti sem út af stóðu og á endanum gafst hann nátt­úrlega upp og fór. Ég skil það mjög vel. Þetta er nátt­úrlega rosalega mikið sem hann var að gera,“ sem bætir við að hún hafi verið ósátt við skilnaðinn og það hafi tekið tíma að jafna sig.

Mæðgurnar Margrét og Alex­andra Sif Her­leifs­dóttir.

Margrét þurfti að leggjast inn á sjúkrahús og var haldinn fundur í janúar 2020 sem henni var ekki einu sinni boðið á. „Þar voru fjórar manneskjur: Eigin­maðurinn, kona frá spítalanum, starfs­maður Kópa­vogsbæjar, þar sem við bjuggum, og starfs­maður frá heima­hjúkrun. Það var tekin ákvörðun um að ég færi á hjúkrunar­heimili og var mér svo tilkynnt það eftir fundinn; ég fékk ekkert um þetta að segja. Þetta var bara ákveðið þarna á staðnum af því að Kópa­vogsbær neitaði að þjónusta mig meira af því að ég var orðin of þungur baggi á þessari þjónustu sem er svolítið galið. Þetta var sértæk heima­þjónusta sem átti að sinna þessum hópi. Það sem er líka slæmt í þessu er að það eru ekki til nein gögn um þennan fund svo sem um hver hafi tekið ákvörðun og hvað gerðist.“

Svo kom Covid og ég lok­að­ist inni

Margrét segir að hún hafi getað útskrifast af sjúkra­húsinu eftir mánuð en hún lá þar í sjö mánuði. „Þá byrjaði bið eftir hjúkrunar­heimili. Svo kom Covid og ég lokaðist inni í tvo og hálfan mánuð inni í einu herbergi; ég mátti ekki fara neitt og gera neitt. Það endaði með því að ég fór á Droplaugar­staði í byrjun ágúst og var þar í fjóra og hálfan mánuð. Við hjónin skildum á þessum tíma og var ég orðin heimilis­laus og það átti svo að flytja mig á Vífils­staði og þá sagði ég „nei“. Þá var fjallað um mig hjá Stöð 2 og í kjölfarið fékk ég inni hérna.“

Sálin

MS-sjúk­dóminn er eitt. Svo eru það áhyggjur honum tengdar sem og áhyggjur vegna húsnæðis­mála.

rús­sí­bana­ferð í tvö ár.

„Í fyrsta lagi er maður að berjast við þennan sjúkdóm og allt sem tilheyrir honum og ofan á það allt saman kemur nátt­úrlega baráttan við þetta kerfi og maður er endalaust að vesenast í þessu. Svo er það þessi innilokun. Ég get sagt að þessi tvö ár bæði með spítalanum, Droplaugar­stöðum og svo hér hafa haft mikil áhrif á andlega líðan en það er samt merkilegt hvað ég kem undan þessu. En auðvitað er ég búin að vera í rússíbana­ferð í tvö ár. Eins og ég segi: Berjast við sjúk­dóminn, berjast við kerfið og líka að vera ósátt. Ég fæ alla grunn­þjónustu hérna og ég hef þannig ekkert út á þetta að setja nema að starfsmanna­veltan er rosaleg hérna. Ég fæ ekki þá þjónustu sem ég þyrfti að fá; bað og eitt og annað. Þetta er endastöð hjá fólki sem er hérna. Ég er ekki á endastöð. Ég er að lifa lífinu. Maður getur ekki boðið fólki heim nema svo takmarkað þannig að þetta hefur allt áhrif. En með þessu öllu er þetta búið að keyrast allt í gang; þetta málþing og þessi meðbyr sem ég finn fyrir lyftir mér upp í hæstu hæðir. Það opnast svo mörg eyru sem skilja í rauninni ekki hvað það er sem maður er að berjast við. Þess vegna þarf ég að koma því skýrt og greini­lega fram í hvaða baráttu ég hef staðið í.“

Æðruleysi og þolinmæði

Margrét byrjaði að veikjast árið 2005 og greindist ekki með MS fyrr en árið 2013. „Það var endalaust verið að leita að orsökum veikindanna og enginn vissi hvað var að gerast. Ég er með sérstaka týpu af MS; síversnun. Ég fer aldrei aftur upp heldur alltaf niður, sérstak­lega núna þar sem skortur er á sjúkra­þjálfun.“

Hvað hefur Margrét lært af þessu öllu?

„Auðvitað metur maður hlutina öðruvísi og maður horfir á sumt með æðruleysi; maður þarf alltaf að bíða eftir hlutunum. Ég hef lært bæði æðruleysi og þolinmæði og að meta hve lífið er dýrmætt.“

bjart­ari tímar fram undan.

Margrét segir að stundum hafi hún misst vonina og fundist allt vera tilgangs­laust eins og í vetur. „Mér leið alls ekki vel en núna eru bjartari tímar fram undan. Ég sé einhvern veginn að það er eitthvað ljós fram undan. Ég geri mér vonir um að húsnæðis­málin breytist,“ segir Margrét sem býr í 24 fermetra herbergi en lögin segja lágmark 40 fermetrar. „Svo er ég ekkert að þessari baráttu bara fyrir mig heldur alla hina sem eru í þessari stöðu. Það er svo margt fólk nauðungar­vistað á hjúkrunar­heimilum. Það vantar úrræði. Það þarf að aðlaga hlutina af hverri manneskju; ekki vera svona kassalaga. Það þarf að taka hornin af af því að það þarf flæði. Það er enginn eins og þarfirnar eru mismun­andi.“

Hverjir eru draumarnir?

„Að fá einhvers staðar íbúð þar sem ég get lifað sjálf­stæðu lífi en mestu hnökrarnir eru þjónustan; hvernig væri hægt að gera þetta þannig að ég væri 100% örugg? Ef starfs­maður myndi veikjast þá kannski kæmi enginn. Ætti ég þá að vera í rúminu allan daginn eða í hjóla­stólnum alla nóttina? Þetta þarf að tryggja. Ég hamra alltaf á þessu hvort sem það kallast frekja eða hvað: Mér finnst ég þurfa að tryggja mitt öryggi. Ég vil sjálf­stæða búsetu þar sem ég get ráðið hvernig hlutirnir ganga fyrir sig. Mig langar til að lifa lífinu og gera skemmtilega hluti á mínum forsendum. Þetta snýst um það. Á mínum forsendum en ekki forsendum stofnana. Ég held ég sé allt of skýr í kollinum til að vera í þessum aðstæðum.“

Í þess­ari bar­áttu og aðstæðum sér maður mjög vel hverjir eru vinir mínir.

Hvað með notanda­stýrða persónu­lega þjónustu? „Ég er búin að tala um það við tengi­liðina mína; þessu var sópað undir borðið. Ég hefði átt að ganga harðar að því og kynna mér þetta sjálf. Það gæti tekið tvö til þrjú ár að fá slíka þjónustu, auk þess sem ég þyrfti að vera í þriggja herbergja íbúð, og ég hef ekki tíma í það. Þetta þarf að gerast hratt og örugglega. Það er spurning hvað sveitar­félagið getur gert fyrir mig.

Í þessari baráttu og aðstæðum sér maður mjög vel hverjir eru vinir mínir.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis

Veðurstofan hefur gefið út gula viðvörun fyrir miðhálendið í kvöld. Síðdegis hvessir einnig suðvestanlands.
Innlent

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Gunnar Smári lýsir baráttunni við veikindin

Af hverju getur lyktin af makanum verið svona ómótstæðileg?

Átta mistök sem fólk ætti að forðast ef það flýgur um jólin

Hlýlegt heimili við Efri Hól bíður nýrra eigenda

Björgvin Franz fagnar eins árs sambands­afmæli með kærustunni

Fjórum árum eftir að heilinn hótaði uppsögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði