Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Kokteilbarinn Hacha á Íslandi eina kvöldstund – Fyrsta sinn á erlendri grundu

Deano Moncreiffe stofnandi Hacha í London ásamt sinni hægri hönd, Ben Guillou munu taka vel á móti gestum á Kokteil­barnum, Klappar­stíg þann 10. maí, í samstarfi við The Lost Explorer.

Fjöl­sóttasti agave-staður í Austur London, Hacha, hefur ásamt hinu marg­verðlaunaða The Lost Explorer boðað til yfirtöku á Kokteil­barnum, Klappar­stíg í eina kvöld­stund, miðvikudaginn 10. maí. Þetta umtalaða barþjóna­tvíeyki eru Deano Moncrieffe, stofnandi Hacha, og Ben Guillou, aðstoðar yfir­barþjónn, mun koma til Reykja­víkur til að kynna sínar nálganir á kokteilum gerðum með The Lost Explorer Mezcal. Báðir hafa þeir sérlega mikla þekkingu á öllum þeim afurðum sem gerðar eru úr agave plöntunni, t.d. Tequila, Mezcal og fleira, þar sem staðirnir þeirra, Hacha í London bjóða nær eingöngu upp á drykki sem gerðir eru úr afurðum þessarar plöntu.

Þetta er í fyrsta sinn sem Hacha teymið tekur yfir bar á erlendri grundu síðan þeir opnuðu í apríl 2019. Deano og Ben mun bjóða upp á kokteil­seðil með fimm kokteilum sem eru undir íslenskum áhrifum og eru allir gerðir úr einni af þremur tegundum af The Lost Explorer Mezcal, Espadín 8 ára, Tobalá 10 ára og Salmiana 12 ára. Deano hefur nú þróað íslenskan snúning á sínum fræga einkennis­kokteil, The Mirror Margarita, sérstak­lega fyrir þessa Íslands­ferð.

Á kokteil­seðlinum á Kokteil­barnum verða eftir­farandi drykkir:

SALTED PEAR AND WHITE TEA MIRROR MARGARITA

Hvít te legið The Lost Explorer Espadín 8 ára, Hacha sýru­blanda, Sykurreys-síróp, Peru essence, sjávar­salt

GRILLED BANANA AND YUZU MARGARITA 

The Lost Explorer Tobalá 10 ára, safi úr brenndri sítrónu og lime, banana­líkjör, yuzu

THE LOST JOURNAL 

The Lost Explorer Espadín 8 ára, Brennivín, sellerísafi, sýru­blanda, sykur­síróp, Marmite, ormasalt  

TOBALÁ ESPRESSO MARTINI 

The Lost Explorer Tobalá 10 ára, kaffi­líkjör, kaldbruggað mexíkóskt kaffi, rúgbrauðs­síróp 

WILD AT HEART 

The Lost Explorer Salmiana 12 ára, villiblóðbergssíróp, Hacha sýru­blanda, rabarbara tonic

Um staðina

Frá opnun agave-barsins Hacha í apríl 2019, hefur hann fengið mikið lof fyrir frumlegar nálganir að agave sterkvíni, einkum og sér í lagi fyrir auðkennis­kokteil staðarins, Mirror Margarita, sem valinn var besti kokteillinn í London og 7. Besti kokteillinn í heiminum af tíma­ritinu Time Out. Vegna vinsæld­anna hóf Hacha að selja kokteilinn átappaðann í flöskur árið 2021. Eftir tvær landskeppnir í kokteilum í Bretlandi sumarið 2022 hefur kokteillinn formlega verið valinn besti Tequila og Mezcal kokteill Bretlands, sem gerir Hacha að vinsælasta agavedrykkja áfanga­stað Bretlands.

The Lost Explorer Mezcal er handverks-sterkvín sem gert er úr 100% hreinu agave, sem ræktað er í tveimur sólböðuðum svæðum í Mexíkó, Valles Centrales, og Oaxaca. Það er í farar­broddi í því að virkja sjálfbærni í mexíkóskum iðnaði ásamt því að vernda þær aldagömlu hefðir og framleiðslu­ferli í agaverækt og einnig í að vernda afrlegð og líffræði­lega fjöl­breytni í Mexíkó. Uppskorið í samhljómi við náttúru­öflin og takt við náttúruna eru þessar þrjár einstöku tegundir agaveplöntunnar, Espadín, Tobalá og Salmiana, notaðar í fram­leiðslu á þremur tegundum af Mezcal þar sem hver og ein nýtir einstaka eigin­leika sinnar plöntu til fullkomnunar, til að fagna jarð­veginum, lifa í forvitni og kanna undur og fjöl­breytni agave plöntunnar. 

The Lost Explorer x Hacha, miðvikudagurinn 10. Maí 20:00 – 0:00 

Kokteil­barinn, Klappar­stígur 28-30, 101 Reykjavík

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Kynning

Efni unnið í samstarfi við auglýsendur