Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Skoðun

Ég ber virðingu fyrir öllum

Minning

Þrír skip­verjar fórust

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Innlent

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Guðmundi lækni var hótað fangelsisvist: ,,Mér var bannað að lækna fólk”

Guðmundur Karl Snæbjörnsson, sérfræðingur í heimilis­lækningum, fullyrðir að honum hafi verið hótað fangelsis­vist fyrir að skrifa upp á Ivermectin-lyfið í kórónu­veiru­faraldrinum. Með því vill hann meina að honum hafi verið bannað að lækna fólk á sama tíma og margir kollegar hans hafi fengið milljónir frá lyfja­fyrirtækjum. Því heldur Guðmundur að minnsta kosti fram.

Guðmundur Karl er nýjasti gesturinn í podcasti Sölva Tryggva­sonar. Hann segist hafa orðið fyrir miklum árásum fyrir að ganga gegn megin­straumnum í Covid faraldrinum „Flest allir kollegar mínir sem tjáðu sig mest hér á landi, til að mynda læknar á lands­spítalanum hafa fengið milljónir í styrki frá lyfja­fyrirtækjum. Ég er ekki að segja að þeir séu ekki vel meinandi og eflaust gengur þeim gott til, en þeir eru ekki óháðir. Fólk sem hefur haft milljónir í rannsóknar­styrki frá lyfja­fyrirtækjum er eðli málsins samkvæmt ekki frjálst og óháð,“ segir Guðmundur Karl, sem vill meina að Covid tímabilið hafi sýnt okkur mikilvægi þess að við förum í ákveðna nafla­skoðun varðandi ristkoðun og óvinsælar skoðanir:

„Fólk er auðvitað upp til hópa orðið leitt á umræðum um Covid, en þessi faraldur sýndi okkur ákveðna hluti sem mega ekki endurtaka sig. Það getur ekki verið í lagi að banna upplýsingar og að það sé bara sett ein lína sem enginn má véfengja. Eins erum við komin á mjög hálan ís þegar þraut­reyndum læknum er bannað að fara eftir sannfæringu sinni og þeir í raun þvingaðir til að brjóta lækna­eiðinn. Heimilis­læknum var á ákveðinn hátt bannað að stunda sínar lækningar. Ég er sérfræðingur í heimilis­lækningum til áratuga og lá yfir gögnum og rann­sóknum frá upphafi faraldursins, en ég mátti ekki nota þær meðferður sem allt benti til að væri best. Réttur lækna til að lækna er í raun orðinn skertur eftir þetta tímabil,“ segir Guðmundur og nefnir þar meðal annars lyfið Ivermectin, sem var að hans sögn gert að einhvers konar samnefni fyrir samsæris­kenninga­fólk og rugludalla:

„Þetta er þraut­reynt lyf sem er nánast algjör­lega án aukaverkana og hefur verið notað í áratugi á milljónir manna. Rann­sóknirnar bentu strax til þess að þetta tiltekna lyf væri að gefa frábæra raun sem ein af meðferðunum við Covid. En einhverra hluta vegna var Ivermectin gert að einhvers konar bannorði. Lyf sem er með færri aukaverkanir en panodil og hefur verið gefið í 4 milljörðum skammta til mannfólks í gegnum tíðina. Við hljótum að geta verið sammála að það sé eitthvað skrýtið við þessi ofsa­fengnu viðbrögð gagnvart þeim læknum sem vildu nota þetta lyf. Ég var kærður af lyfja­stofnun og mér var hótað fangelsis­vist eins og ég væri að gera eitthvað stór­hættulegt,“ segir Guðmundur og heldur áfram:

„Ég vil ekkert vera að naga í fjöl­miðlana, en það gerðist oftar en einu sinni í Covid-tíma­bilinu að íslenskir blaðamenn hringdu í mig og vildu fá upplýsingar, en sögðu svo að þeir mættu ekki hafa neitt eftir mér. Væntanlega af því að ég var ekki á sömu skoðun og yfirvöld. Ég efast ekki um að þetta fólk sé að gera sitt besta, en aftur, þá er bara svo auðvelt að sjálfs­ritskoða sig þegar pressan er jafnmikil og hún var þegar faraldurinn stóð sem hæst. Þeir sem héldu fram öðrum skoðunum en sóttvarnar­yfirvöld fengu á sig alls konar árásir og voru kallaðir álhattar eða samsæris­kenninga­fólk,“ segir Guðmundur og bætir við að það hafi gerst oftar en einu sinni að fólk hafi svo snögglega skipt um skoðun þegar það veiktist sjálft af Covid:

„Það gerðist oft að fólk sem hafði haft sterkar skoðanir á Ivermectin opinber­lega og tekið undir með megin­straums­umræðunni hafði svo persónu­lega samband við mig til að reyna að verða sér úti um lyfið.“

Viðtal Sölva við Guðmund Karl og öll viðtöl og podcöst Sölva Tryggva­sonar má nálgast hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Vildi fá Skódann sinn aftur en lögreglan heldur honum áfram

Maðurinn hefur áður hlotið dóma fyrir umferðarlagabrot og var fyrr á árinu dæmdur í níu mánaða fangelsi fyrir akstur án ökuréttar.
Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Minning

Aðstand­endur minnast Aðalsteins og Eggerts

Innlent

Sölvi sló lögreglu­mann og lét þar ekki staðar numið

Innlent

Einn fluttur á bráða­móttöku

Tveir voru handteknir vegna gruns um rán og þrír grunaðir um þjófnað úr verslunum.

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta