Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Þúsundir á Ljósanótt – Gestir létu ekki veðrið trufla hátíðarskapið

MC Gauti var eitt stærsta númer kvöldsins.
MC Gauti var eitt stærsta númer kvölds­ins. Mynd: Omar Ricardo Rondon Guerrero.

Íbúar Reykja­nesbæjar létu ekki aftaka­veður föstudags­kvölds aftra sér frá því að mæta til Árganga­göngu upp úr hádegi í gær, laugardag, og þramma undir lúðra­blæstri að hátíðar­svæði þar sem Kjartan Már Kjartansson bæjar­stóri bauð gesti Ljósa­nætur velkomna.

Glæsileg flug­elda­sýn­ing gær­kvölds­ins.

Dagskrá laugar­dagsins fór að mestu fram samkvæmt áætlun en skipuleggjendur hátíðarinnar héldu þó áfram að hugsa í lausnum og barna­dagskrá sem fyrir­huguð var utandyra var flutt til svo yngsta kynslóðin gæti sem best notið hennar. Þannig mættu hin geysivinsælu Lára og Ljónsi húsfylli barna í Stapa á laugardags­morgni og hoppukastalar sem ekki taldist öruggt að hafa uppblásna úti voru vel nýttir innandyra í Reykja­neshöll.

Þúsundir voru svo saman komnar á stór­tónleikum Ljósa­nætur í gærkvöldi þar sem veður­guðirnir voru búnir að hrista úr sér mestu skap­vonskuna og sýndu á sér spari­hliðina. Stemningin á svæðinu var gríðar­lega góð enda boðið upp á frábæra tónleika sem einnig var útvarpað á Rás 2. Ljósin á Berginu, sem hátíðin dregur nafn sitt af, kviknuðu við mikil fagnaðar­læti í lok magnaðrar flugelda­sýningar, og munu þau lýsa upp myrkasta skammdegið í vetur og minna á sköpunar­gleðina og kraftinn í samfélaginu sem kristallast svo vel á Ljósanótt.

Frá tón­leikum gær­kvölds­ins.

Dagskrá Ljósa­nætur heldur áfram í dag með sýningum, leið­sögnum í lista­safni og byggða­safni og ýmsum tónleikum. Meðal annars fer fram hátíð í Höfnum, sem er eitt hverfa Reykja­nesbæjar, og því nóg um að vera fyrir á fjórða og síðasta degi Ljósa­nætur sem var um margt óvenjuleg í ár og sýndi í raun hvaða sess hátíðin skipar í hjörtum íbúa sem neituðu að láta í minni­pokann fyrir náttúru­öflunum og héldu sína Ljósanótt með stæl.

Mikil stemmn­ing var á tón­leik­unum í gær.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Menning

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Verðlaunin nema 100.000 evrum, eða tæplega 15 milljónum króna.

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt