Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Heimur

Kærastan fann dagbækurnar og sleit sambandinu við David Walliams

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sambands­afmæli með kærustunni

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Prestur rifjar upp óþægilega reynslu úr æsku

Fólk

Fjórum árum eftir að heilinn hótaði uppsögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Lögregla fjarlægði mótmælanda eftir að hafa ruglast á áletrun á bol hans

Heimur

Raun­veruleika­stjarnan Sheila Mangubat látin 35 ára að aldri

Óvenjuleg bunga undir jakkafötum Trump vekur spurningar

„Undarlegt. Efnið fellur venjulega ekki svona á handlegg“

Donald Trump
Donald Trump Sam­sær­is­kenn­ing­ar­smiðum leið­ist ekki þessa dag­ana Mynd: SAUL LOEB / AFP

Undarleg bunga sem sást undir jakka Donalds Trump hefur orðið til þess að sögu­sagnir og vanga­veltur um heilsu forsetans halda áfram að ganga á netinu.

Mannlíf hefur undan­farna daga fjallað um vanga­veltur og samsæris­kenningar um heilsu Bandaríkja­forseta en þær virðast þvert á móti vera að koðna niður.

Trump brást við orðróminum um andlát sitt í gær og vísaði á bug öllum hugmyndum um að hann hefði látist, eftir að hafa verið fjar­verandi frá Hvíta húsinu mestan hluta verkamanna­helgarinnar í Banda­ríkjunum.

„Ég hef heyrt að þetta sé hálf galið, en í síðustu viku hélt ég fjölda fréttamanna­funda, öll mjög vel heppnuð. Þau gengu vel, eins og þetta gengur mjög vel, og svo gerði ég ekkert í tvo daga – og þá segja menn að eitthvað hljóti að vera að,“ sagði Trump.

Hann nýtti jafnframt tækifærið til að skjóta á fyrrum pólitískan andstæðing sinn: „Biden hélt stundum ekki blaðamanna­fundi í marga mánuði. Þið sáuð ekkert til hans, og enginn sagði neitt.“

Athuga­semdir Trumps komu þó ekki í veg fyrir að áhorf­endur tækju eftir einhverju óvenju­legu í útliti hans. The Mirror US greinir frá því að ljósmynd hafi vakið athygli þar sem sjá mátti dular­fulla bunga undir jakkanum hans og óvenju­lega fellingu á erminni.

Öxl for­set­ansEr um að ræða axl­arpúða? Er Trump eðlu­maður?

„Undarlegt. Efnið fellur venjulega ekki svona á handlegg,“ skrifaði einn notandi á X og birti mynd.

Sumir sögðu að um væri að ræða axlarpúða í jakka­fötum, en aðrir bentu á að slíkt útskýrði ekki fellinguna á erminni. „Fólk segir að þetta sé vegna púða eða breikkunar á öxlum,“ skrifaði notandinn. „En hvorugt útskýrir hvernig ermarnar leggjast.“ Annar spurði: „Af hverju er svona auðugur maður ekki í vel sniðnum jakka­fötum?“ Enn einn hélt því fram að bunga hefði myndast vegna þess að einhver hefði stutt við Trump rétt áður en myndin var tekin.

Á sama tíma hafa læknar varað við mögulegum alvarleika æðavandamála forsetans. Trump hefur verið greindur með langvinna bláæða­bilun (CVI), og hafa myndir af bólgnum ökklum hans og marblettum vakið áhyggjur.

Dr. Mimmie Kwong, prófessor í æðaskurðlækningum við Háskólann í Kaliforníu, segir að þó sjúk­dómurinn sé algengur en hann hafi áhrif á einn af hverjum þremur, geti hann orðið alvarlegur ef hann er ómeðhöndlaður.

„Oftast birtist þetta í fótleggjum eða hand­leggjum,“ sagði Kwong. „Bláæðar sjá um að flytja blóðið frá fótum og höndum upp að hjartanu. Þegar þær virka ekki eðlilega, stöðvast blóð­flæðið. Það getur valdið sársauka, bólgum, þroti, verkjum, og í alvarlegustu tilfellum sárum eða jafnvel missi útlima.“

Hún bætir við að sjúk­dómurinn sé algengastur hjá konum og eldra fólki. „Þegar bjúgurinn versnar geta komið fram húðbreytingar eins og þykknun, bólgur eða þurrkur. Ef ástandið heldur áfram að versna geta myndast sár sem gróa ekki, og í verstu tilfellum getur það leitt til aflimunar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Gögnin eru hluti af 43 skjölum sem voru birt nýlega. Þar er einnig fjallað um óútskýrðar ratsjármælingar frá árinu 2023.
Menning

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt

Pólitík

Kristrún segir hallalaus fjárlög sleggjuna sem þurfi til að ná vöxtum niður

Heimur

Samsæris­kenningar spretta upp eftir undarlegt augnablik á blaðamanna­fundi

Innlent

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi

Heimur

Gleypti gaffal fyrir slysni

Tvær tilraunir til að ná gafflinum upp með magasjá báru ekki árangur

Lík fannst í klettum á Lanzarote eftir umfangs­mikla leit

Cher búin að vera í fýlu við fyrr­verandi barna­stjörnu í næstum 30 ár

Sátu uppi með ónýta lúxus­ferðatösku

Ísrael hefur nánast útrýmt ævafornum ólífu­trjám Gaza

Rússar sagðir undirbúa kjarnorku­vopn á braut um jörðu