Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Gunnar fékk 16 ára fangelsisdóm „Ég hef víst myrt mann í nótt“

Jóhann Gíslason, flug­rekstrar­stjóri Flug­félags Íslands fannst látinn á heimili sínu þann 9. maí 1968. Jóhann var 43 ára, kvæntur og fjögurra barna faðir en hann var skotinn fjórum sinnum. Kona hans og þrjú börn þeirra urðu vitni að árásinni og gátu gefið lögreglu upplýsingar um árásar­manninn, reyndist það vera Gunnar Viggó Frederiksen, fyrrum starfs­maður Jóhanns.

„Málsatvik eru þau, að klukkan 04:35 í fyrrinótt var hringt til lögreglunnar og sagt, að vopnaður maður væri að brjótast inn í hús númer 25 við Tómasarhaga. Lögreglu­menn fóru þegar á staðinn, en er þeir komu þangað, lá Jóhann Gíslason í blóði sínu í íbúð sinni á efri hæð hússins. Hafði hann hlotið fjögur skotsár, tvö í andlit, eitt framan­vert á hægri öxl og eitt við vinstra. herðablað. Var Jóhann með lifsmarki og var hann strax fluttur í Slysa­varðstofuna, en lézt í sömu svifum og þangað var komið.“ Sagði í Morgun­blaðinu eftir morðið.

Gunnar braut inn á heimili fjöskyldunnar vopnaður skamm­byssu en þá brutust út mikil átök á milli þeirra Jóhanns. Gunnar skaut þá Jóhann fjórum sinnum, flúði af vettvangi og kastaði byssunni frá sér fyrir utan heimili fórna­lambsins.

Aldrei lék neinn vafi um hver árásar­maðurinn var en ásamt vitnum fannst hattur merktur Gunnari á vettvangi. Leit af honum hafðist samstundis en stuttu seinna hafði nætur­vörður á flug­stöðinni samband við lögreglu og tilkynnti þeim að Gunnar væri þar og  hafi tjáð verðinum að hann hafi orðið manni að bana. Þegar lögregla kom á staðinn reyndi Gunnar að flýja en þegar honum var ljóst að það tækist ekki þá stakk hann sig í brjóstið með litlum vasahníf en hlaut einungis minni­háttar áverka við það.

Gunnar sagði lögreglu að hann hafi hatað Jóhann vegna þess að hann kom honum úr flugstjóra­stöðu hjá Flug­félagi Íslands.

„Kvaðst Gunnar hafa setið að drykkju með kunningjum sínum fyrr um nóttina og þeir ekið sér heim. Þar kvaðst hann hafa tekið fram skamm­byssuna og síðan ekið í eigin bíl til heimilis Jóhanns, brotið rúðuna í hurðinni með skamm­byssu­skeftinu og komist þannig inn í íbúðina. Skamm­byssuna kvaðst Gunnar hafa fengið hjá manni í Reykjavík fyrir réttu ári. Var Gunnar fluttur í Hegningarhúsið við Skólavörðustíg.“

Jóhann var virtur og vinsæll í starfi, missirinn var mikill fyrir vini hans, samstarfs­félaga og fjöl­skyldu. Gunnari var sagt upp hjá Flug­félagi Íslands fyrir að mæta drukkinn í flug og neitað að yfirgefa vélina. Hann fékk 16 ára dóm fyrir morðið á Jóhanni, hann lét lífið árið 2013, þá 91 árs að aldri.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Tveggja barna faðir skotinn til bana á þakkar­gjörðar­daginn

Lögregla var kölluð til vegna tilkynninga um vopnaðan mann sem reyndi að taka bifreiðar með valdi.
Heimur

Sautján ára skóla­stúlka lést eftir árás

Innlent

Húsfélagi óheimilt að rukka skrópara

Fólk

Fimm ráð Kristjönu til að halda á sér hita í vetur

Innlent

Mál vegna gruns um kynferðis­brot í Garðaseli fellt niður

Innlent

Kveikti í íbúð með vél úr mótor­hjóli

Leigjandinn viðurkenndi að eldurinn hefði kviknað vegna gáleysis hans

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Eftir­lýstur maður óvænt gripinn

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu