Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Heimur

Kærastan fann dag­bæk­urnar og sleit sam­band­inu við David Walliams

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sam­bands­af­mæli með kærust­unni

Innlent

Grun­semdir vökn­uðu þegar son­ur­inn sagð­ist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Prestur rifjar upp óþægi­lega reynslu úr æsku

Fólk

„Ég er orð­inn leiður á að vera veikur“

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Heimur

Raun­veru­leika­stjarnan Sheila Mangubat látin 35 ára að aldri

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Krist­ínar

Leyndarmálið um Miðgarð – Bæjarstjórnin og KSÍ þögul sem gröfin

Knattspyrnuvöllurinn í Miðgarði
Knatt­spyrnu­völl­ur­inn í Miðgarði Mynd: Verkís

Enn er ekki komið á hreint hvort millj­arða­höllin í Garðabæ, Mið­garður, hljóti und­an­þágu KSÍ og geti því kall­ast keppn­is­völlur fyrir Bestu deild­ina í sumar. Algjör þögn er um málið hjá bæj­ar­stjórn Garða­bæjar og stjórn KSÍ.

Mannlíf hefur fjallað um málið und­an­farið en það er hið furðu­leg­asta. Í byrjun mars full­yrti Ásta Sigrún Magn­ús­dóttir að KSÍ hefði gefið grænt ljós á knatt­spyrnu­leikir í efstu deild kvenna og karla, mættu fara fram í Miðgarði. Frá KSÍ bár­ust hins vegar þau svör að enn væri ekki búið að taka ákvörðun um málið. Blaða­maður Mannlífs var svo dreg­inn áfram á asna­eyr­unum en með­limir mann­virkja­deildar KSÍ nefndu nokkrar dag­setn­ing þar sem málið yrði tekið fyrir á fundi. Síðast átti að taka end­an­lega ákvörðun þann 12. apríl en nú, tveimur dögum síðar hefur Mannlífi ekki enn borist svar frá KSÍ hvort Mið­garður, sem kost­aði hátt í fimm millj­arða króna, fengi und­an­þágu til að bjóða liðum í Bestu deild­inni að keppa þar. Und­an­þág­una þarf Mið­garður vegna þess að það vantar rúm­lega sex metra upp á loft­hæð­ina svo völl­ur­inn telj­ist lög­legur keppn­is­völlur.

Mannlíf sendi einnig tölvu­póst á upp­lýs­inga­full­trúa Garða­bæjar og spurði af hverju hún hefði sagt í byrjun mars, að vall­ar­leyfið væri komið frá KSÍ, þegar sam­bandið átti eftir að funda um málið. Ekkert svar barst frá Garðabæ.

Það er sem sagt enn á huldu hvort millj­arða­höllin verði áfram æfing­ar­hús­næði eða hvort hún fái stimpil frá KSÍ sem full­gildur keppn­is­völlur fyrir efstu deild­irnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neð­an­jarð­ar­hvelf­ingu fyrir „fram­andi efni“

Gögnin eru hluti af 43 skjölum sem voru birt nýlega. Þar er einnig fjallað um óútskýrðar ratsjármælingar frá árinu 2023.
Menning

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt

Pólitík

Kristrún segir halla­laus fjár­lög sleggj­una sem þurfi til að ná vöxtum niður

Heimur

Sam­sær­is­kenn­ingar spretta upp eftir und­ar­legt augna­blik á blaða­manna­fundi

Innlent

Sendi sak­sókn­ara falsað lækn­is­vott­orð og hlaut árs­fang­elsi

Innlent

Innkalla vin­sælt jóla­smáköku­deig vegna aðskota­hluts

Neytendur eru beðnir um að farga vörunni eða skila henni.

Kökuboð á Pat­reks­firði end­aði fyrir dómi

Hrafn­hljóð flýgur inn á manna­nafna­skrá

Sverrir spyr hvað heilli karla við ofbeldið í Grand Theft Auto

Sakar rík­is­stjórn­ina um að gera lítið úr vinnu lág­launa­fólks og for­eldra