Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Sport

Hver er Theodór Elmar?

Innlent

Myglu­eitur í hveiti

Fólk

Notalegt fjöl­skyldu­hús með nægu rými úti og inni til sölu

Pólitík

Segir Ísland úti­loka einmitt þá inn­flytj­endur sem landið þarf á að halda

Pólitík

Segir trygg­inga­fé­lögin „gambla“ með fé úr bóta­sjóðum

Pólitík

Ást­hildur Lóa vill beita skyldu­sparn­aði gegn verð­bólgu

Heimur

Breskir grínistar héldu leyni­lega lista yfir kyn­ferð­is­leg rán­dýr

Peningar

Skiptum lokið á þrota­búi Talays

Innlent

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Innlent

Strauk henni um lærið þótt hún bæði hann að hætta

Öxi opnaði mánuði fyrr en venjulega

Vegurinn um Öxi
Vegurinn um Öxi Mynd: Mulathing.is

Vegurinn yfir Öxi var opn­aður á föstu­dag­inn en hann hefur sjaldan opnað jafn snemma.

Aust­ur­frétt segir frá því að veg­ur­inn yfir Öxi á Aust­ur­landi hafi verið opn­aður síð­ast­lið­inn föstu­dag, þann 8. mars. Leita þarf til árs­ins 2012 til að finna dag þar sem veg­ur­inn var opn­aður fyrr en þá var hann opn­aður 28. febr­úar. Í fyrra opn­aði mán­uði síðar.

Veð­ur­farið ræður hve mikið er hægt að halda honum opnum fram eftir vori en veg­ur­inn styttir þjóð­veg­inn svo um munar. Samkvæmt Aust­ur­frétt var byrjað að moka snjó af veg­inum á fimmtu­dags­morgun en svo voru svellin rifin af honum og hálku­varið. Undir kvöld­mat á föstu­dag­inn lauk þeirri vinnu og var veg­ur­inn opinn um helg­ina. „Við vorum búin að gefa út að það yrði reynt að opna Öxi fyrr en áður ef hægt væri,“ segir Sveinn Sveins­son, umdæm­is­stjóri Vega­gerð­ar­innar í sam­tali við Aust­ur­frétt.

Nú er Öxi opnuð um það bil mán­uði fyrr en í með­alár en Sveinn segir ástæð­una vera þá að snjó­létt hafi verið á svæð­inu. Þá hafi á hinn bóg­inn rignt þegar byrjað var að opna og þurfi því að veita vatni í burtu.

Fram kemur hjá Aust­ur­frétt að vetr­ar­þjón­usta á Öxi falli undir G-snjó­mokst­urs­regl­una en sam­kvæmt hennir er heim­ilt að moka tvo daga í viku vor og haust á meðan snjó­létt er, það er að nóg sé að senda snjó­mokst­urs­bíl af stað. Þann 20. mars hefst vor­tíma­bilið.

Hér má sjá opn­un­ar­dag­ana á Öxi frá árinu 2012:

2012 28. febr­úar
2013 10. apríl
2014 23. apríl
2015 17. apríl
2016 20. apríl
2017 29. mars
2018 23. mars
2019 7. apríl
2020 8. maí
2021 19.3 (lok­aði aftur 26. mars og opn­aði aftur 31. mars)
2022 25. mars
2023 8. apríl
2024 8. mars

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

„Við erum að skapa framandi verur“
Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Innlent

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Landið

Leifar af skála frá land­náms­tíma fund­ust á Aðalbóli

Fornleifafræðingur telur minjarnar geta varpað ljósi á búsetu í Hrafnkelsdal á fyrstu öldum Íslandsbyggðar.

Sváfu undir berum himni og heill­uð­ust af íslenska hálend­inu

Andri Snær rifjar upp fórn­irnar sem fylgdu Kára­hnjúka­virkjun

Leð­ur­blakan í Fellabæ enn ófundin

Leð­ur­blaka sást á flugi í Fellabæ

Öllu starfs­fólki Heil­brigð­is­eft­ir­lits Aust­ur­lands sagt upp