Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Skoðun

Ég ber virðingu fyrir öllum

Minning

Þrír skip­verjar fórust

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Innlent

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Skyndikynni sem breyttust í martröð – Morðið á Vivan Hrefnu

Vivan Hrefna Óttars­dóttir hafði nýlega skilið við seinni eiginmann sinn er hún skrapp út að skemmta sér í miðborg Genfar. Kom hún heim með mann upp á arminn snemma morguninn eftir en áður en hún fór inn í svefn­herbergi með honum kíkti hún inn til 15 ára dóttur sinnar og bauð henni góðan dag. Klukkan 11 blasti hræðileg sjón við lögreglunni. Vivan hafði verið myrt á hrotta­fenginn hátt og hafði morðinginn einnig reynt að nauðga dóttur hennar. Skyndi­kynnin höfðu breyst í martröð.

Vivian Hrefna Ótt­ars­dóttir

Vivan Hrefna var 39 ára gömul, fædd 19. apríl árið 1956. Hún var líffræðingur og starfaði að ýmsum verkefnum fyrir umhverfis­mála­stofnun Sameinuðu þjóðanna í Genf, þar sem hún hafði verið búsett í nokkur ár, og vann einnig einstök verkefni fyrir lyfja­fyrirtæki.

DV fjallaði um málið á sínum tíma en morðið var framið árið 1995.

Íslensk kona, Vivan Hrefna Óttars­dóttir, 39 ára líffræðingur, sem búsett hafði verið í Genf um árabil, fannst látin í íbúð sinni í miðborg Genfar á ellefta tímanum á laugardags­morgun. Greinilegt var á ummerkjum að hrotta­legur atburður hafði átt sér stað í íbúð konunnar því hún fannst kefluð í rúmi sínu og með plastpoka hertan að höfðinu. Konunni hafði að sögn

lögreglu verið nauðgað. Vivan hafði komið heim af skemmtistað með banamanni sínum klukkan sjö um morguninn. Hún leit sem snöggvast inn í svefn­herbergi 15 ára dóttur sinnar og bauð henni góðan dag. Eftir það sofnaði stúlkan aftur.

Þegar dóttir Vivan vaknaði aftur um tíuleytið varð hún vör við ókunnan mann sem reyndist vera á flótta út úr íbúðinni eftir morðið. Hann réðst á stúlkuna með gaffli og hafði í hótunum við hana eftir að hafa þrýst peysu yfir andlit hennar svo hún bæri ekki kennsl á sig. Maðurinn gerði því næst tilraun til að nauðga stúlkunni. Þegar maðurinn hvarf loks á brott tókst stúlkunni að gera nágrönnum sínum viðvart. Lögreglan var strax kvödd á staðinn og hófst þegar leit að ódæðis­manninum því ljóst var að um hrottalegt morðmál var að ræða. Í svissneska sjón­varpinu var lýst eftir vitnum sem gætu gefið vísbendingar um ferðir hinnar látnu aðfara­nótt sunnu­dagsins. Vitni sem gáfu sig fram þegar eftir frétta­tíma sjón­varpsins gátu gefið lögreglunni greinar­góða lýsingu á manninum sem Vivan hafði sést í fylgd með um nóttina. Sú lýsing virtist koma heim og saman við lýsingu dótturinnar á árásar­manninum. Eitt vitnanna gat nafn­greint manninn og bent á hvar hann væri líklegast að finna. Um kvöldið tókst svissnesku lögreglunni í framhaldi af því að rekja slóð mainnsins á veitinga­stað í Genf þar sem hann var hand­tekinn og síðar um kvöldið játaði hann að hafa orðið íslensku konunni að bana.

Maðurinn, sem er 38 ára gamall Frakki, var ólöglega búsettur í Genf, starfaði sem múrari og hafði ekki áður komist í kast við lögin, hvorki í Sviss né Frakk­landi. Maðurinn og sú látna þekktust ekkert fyrir atburðinn. Dóttur konunnar var strax komið undir læknis hendur. Hún nýtur nú umönnunar vinafólkssins. Stúlkan er dóttir Vivan Hrefnu Óttars­dóttur og fyrri eigin­manns hennar sem er íslenskur. Seinni eigin­maður Vivan er Sviss­lendingur en þau
slitu nýlega samvistum. Hin látna starfaði af og til við rann­sóknir á vegum Sameinuðu þjóðanna í Genf.

Lögreglan í Genf þakkar bæði almenningi og fjöl­miðlum hversu fljótt tókst að upplýsa þetta óhugnanlega morðmál sem slegið hefur óhug á fólk i Sviss og orðið forsíðu­efni dagblaða þar.

Maðurinn var sakfelldur fyrir dómi en hlaut sorglega vægan dóm, ekki nema 15 ára óskilorðsbundna refsingu.

Baksýnis­spegill þessi birtist fyrst 8. apríl 2022.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólks landsins hefur efni á

Húsið var reist árið 2024
Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Einn fluttur á bráða­móttöku

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

„Við syrgjum sjómennina þrjá sem létu lífið í sjóslysinu í gær“

„Girðið ykkur í brók og komið þessu í lag“

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning

Annar björgunar­báturinn var fastur og hinn rak frá skip­verjum