Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Heimur

Kærastan fann dagbækurnar og sleit sambandinu við David Walliams

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sambands­afmæli með kærustunni

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Prestur rifjar upp óþægilega reynslu úr æsku

Fólk

Fjórum árum eftir að heilinn hótaði uppsögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Lögregla fjarlægði mótmælanda eftir að hafa ruglast á áletrun á bol hans

Heimur

Raun­veruleika­stjarnan Sheila Mangubat látin 35 ára að aldri

Karl Ágúst slær tvær flugur í einu háðshöggi

„Jæja, þá er loksins búið að mála Alþingis­húsið í fána­litunum“

Alþingishúsið í fánalitunum
Alþing­is­húsið í fána­lit­unum Karl Ágúst er þekktur fyrir húmor Mynd: Facebook

Leikarinn og grín­istinn Karl Ágúst Úlfsson gerir aðildar­umræðu Íslands að Evrópu­sambandinu að skotspæni í kaldhæðinni Facebook-færslu þar sem hann birtir gervi­greindar­mynd af Alþingis­húsinu sem hefur verið „málað í fána­litunum“. Með því blandar hann fána­málinu hjá Grafar­vogskirkju, inn í ádeilu sína.

Í færslunni segir Karl Ágúst að það hafi lengi farið í taugarnar á „sönnum Íslendingum“ að Alþingis­húsið hafi verið hannað af dönskum arkitekt og reist af dönskum bygginga­meistara.

„Jæja, þá er loksins búið að mála Alþingis­húsið í fána­litunum. Mikið var. Það hefur farið í taugarnar á sönnum Íslendingum frá upphafi að það skyldi uppruna­lega vera hannað af dönskum arkítekt. Og til þess að auka enn á skömmina var ráðinn danskur bygginga­meistari í djobbið.“

Bætir hann við: „Hvað kom út úr því? Jú, kumbaldi sem er svo danskur í útliti að það hálfa væri nóg,“ skrifar hann.

Hann heldur síðan kaldhæðninni áfram og segir að það skýri hvers vegna stjórn­málamenn sem starfi í húsinu verði smám saman „óheyrilega danskir í hugsun“.

Karl Ágúst vísar þar til ákvörðunar um að efna til þjóðar­atkvæða­greiðslu um hvort hefja eigi aðildar­viðræður við Evrópu­sambandið.

„Nýjasta dæmið er ákvörðunin sem þar var tekin um að spyrja þjóðina – ÍSLENSKU ÞJÓÐINA – hvort ekki sé í lagi að koma sér innundir hjá Dönum og fjöl­þjóðlegum kumpánum þeirra upp á nýtt,“ skrifar hann og bætir við, einnig í gaman­sömum tón, að slíkt gæti kallað yfir Íslendinga „nýja danska einokunar­verslun og fjórtán tvö í enn einum fótbolta­leiknum.“

Í lok færslunnar segir Karl Ágúst að þessi hugmynd hefði aldrei komið fram ef í stað Alþingis­hússins hefði verið reistur „reisu­legur íslenskur þing­burstabær við Austur­völl“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Gögnin eru hluti af 43 skjölum sem voru birt nýlega. Þar er einnig fjallað um óútskýrðar ratsjármælingar frá árinu 2023.
Menning

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt

Pólitík

Kristrún segir hallalaus fjárlög sleggjuna sem þurfi til að ná vöxtum niður

Heimur

Samsæris­kenningar spretta upp eftir undarlegt augnablik á blaðamanna­fundi

Innlent

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi

Pólitík

„Staðan á vissum tímum sólar­hringsins orðin nánast óbærileg“

Umferðartafir á Reykjanesbraut í Hafnarfirði eru miklar á álagstímum, að sögn Árna Rúnars Þorvaldssonar, sem kallar eftir úrbótum.
  • Aðeins þrír róðrar áður en hjónin riftu kaupunum

  • „Af tvennu illu er skárra að böðullinn sé ekki í felulitum frjáls­lyndis“

  • Segir Ísland útiloka einmitt þá innflytj­endur sem landið þarf á að halda

  • Segir trygginga­félögin „gambla“ með fé úr bóta­sjóðum

  • Sigríður vill kanna hvort Ísland geti tekið þátt í brott­far­ar­stöð í Rúanda