Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Sport

Hver er Theodór Elmar?

Innlent

Myglu­eitur í hveiti

Fólk

Notalegt fjöl­skyldu­hús með nægu rými úti og inni til sölu

Pólitík

Segir Ísland úti­loka einmitt þá inn­flytj­endur sem landið þarf á að halda

Pólitík

Segir trygg­inga­fé­lögin „gambla“ með fé úr bóta­sjóðum

Pólitík

Ást­hildur Lóa vill beita skyldu­sparn­aði gegn verð­bólgu

Heimur

Breskir grínistar héldu leyni­lega lista yfir kyn­ferð­is­leg rán­dýr

Innlent

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Peningar

Skiptum lokið á þrota­búi Talays

Plötusnúður fannst hauslaus heima hjá sér: „Ég hélt að úlpan hans lægi yfir höfuð hans“

Slick Rick
Slick Rick

Yfirvöld í Tennessee rann­saka nú dul­ar­fullt and­lát Mepmphis plötu­snúð­ar­ins Rick „Slick Rick“ Buchanan. Var hann haus­laus er bróðir hans kom að honum.

Lík hins 59 ára gamla plötu­snúðar fannst haus­laust á heim­ili hans þann 24. jan­úar, sam­kvæmt bróður hans, John Buchanan, sem tal­aði við Fox13 Memphis.

„Ég gekk inn og fann hann þar,“ sagði John í sjón­varps­við­tali dag­inn eftir lík­fund­inn. „Og hringdi í 911.“

Bætti hann við: „Ég hélt að úlpan hans lægi yfir höfuð hans, eins og það væri kalt eða eitt­hvað. Svo ég hljóp bara út og svo hljóp ég aftur inn og tók eftir því að það var ekki það, að þetta væri eitt­hvað verra.“

Tals­maður Memphis-lög­regl­unnar stað­festi lík­fund­inn við E! News. Dán­ar­or­sök eru ókunn að svo stöddu en rann­sóknin stendur enn yfir. Engar upp­lýs­ingar hafa verið gefnar um ástand líks­ins.

Í kjöl­far and­láts­ins byrj­aði fjöl­skylda hans GoFundMe söfnun svo hægt verði að kosta jarða­för­ina og einnig til að gefa mögu­lega fjár­hæð til góð­gerð­ar­máls í nafni Rick.

„Eins og margir hafa frétt, er Slick Rick því miður ekki lengur meðal okkar,“ segir á söfn­un­ar­síð­unni. „Enn eru fjöl­mörgum spurn­ingum ósvarað og fjöl­skyldan er þakk­lát fyrir alla þá ást sem henni hefur verið sýnd.“

Skila­boðin héldu áfram: „Ef þú þekktir Rick þá veistu að hann gaf hverjum sem er sem hann gat, vinum, ókunn­ugum og góð­gerð­ar­sam­tökum eins og MDA. Hann not­aði rödd sína og per­sónu­leika til að safna óhugs­andi fjár­hæðum fyrir aðra. Hann var líka meist­ari Memphis-tón­listar og var stoltur í að kynna, spila og kynna stað­bundna tón­list á The Stage Stop.“

Tón­list­ar­stað­ur­inn, sem er í eigu móður Rick, Nitu Makris, en hún rak stað­inn í meira en 40 ár, þar til hún sast í helgan stað árið 2018, skrif­aði skila­boð á Facebook: „HVÍL Í FRIÐI SLICK RICK.“

Rick hafði átt nokkuð erfitt síð­ustu árin en árið 2014 særð­ist hann í skotárás tveggja manna, rétt fyrir utan Stage Stop tón­list­ar­stað­inn. Enginn var hand­tek­inn í þeirri árás en eftir hana átti hann erf­ið­ara með að finna vinnu og varð hann heima­kær­ari að sögn bróður hans.

Auk fjöl­skyldu hans, lét Rick eftir sig hund­inn sinn Lucky en John hyggst ætt­leiða hund­inn.

Slick Rick og Lucky
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Saga af furðulegasta verkfalli Íslandssögunnar
Heimur

Maður stung­inn í Las Palmas

Heimur

Ljósmynd af logum ræsti sjálf­virkt slök­kvikerfi

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

„Við erum að skapa framandi verur“

Dán­ar­or­sök Sir Patricks Stewart stað­fest

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Nýtt lyf í töflu­formi vekur vonir í bar­átt­unni við briskrabba­mein

Dauði og eyði­legg­ing eykst á Gaza þrátt fyrir vopna­hlé