Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Skoðun

Ég ber virðingu fyrir öllum

Minning

Þrír skip­verjar fórust

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Innlent

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

María boðar gjaldþrot

María Björk Ingvadóttir. Mynd N4
María Björk Ingva­dóttir. Mynd N4

Þau áform fjár­laganefndar að rétta sjónvarps­stöðinni N4 100 milljónir króna af almannafé vöktu í senn reiði og athygli. Þá kom í ljós að sann­kölluð frændhygli kom við sögu því Fram­sóknar­maðurinn Stefán Vagn Stef­ánsson, sem situr í fjar­laganefnd, er mágur Maríu Bjarkar Ingva­dóttur eins og Mannlíf benti á eftir að málið komst í fjölmiðla.

Fjár­laganefnd hrökk til baka eftir að velviljinn komst í hámæli. Í stað þess að eyrna­merkja fyrir­tækinu peningana verður Lilju Alfreðs­dóttur ráðherra sendur tékkinn og henni falið að útfæra styrkinn á almennum grunni. En staða sjónvarps­stöðvarinnar er grafal­varleg ef marka má bréf Maríu til fjár­laganefndar þar upplýsir hún að ef styrkurinn fáist ekki blasi gjaldþrot við og stöðin muni þurfa að loka um áramót. „Ríkis­styrkur þessi mun gefa okkur von um að það takist en ljóst að fleiri þurfa að koma að málinu, bæði sveitar­félögin og “Angels-investors” sem eiga stöðina í dag,“ skrifar María Björk sem upplýsir jafnframt að styrkurinn einn og sér dugi ekki til bjargar og leggur til að N4 sameinist Ríkis­útvarpinu og almenningur taki við hinum beiska bikar.

Einn helsti bakhjarl stöðvarinnar er Samherji sem greitt hefur fyrir dagskrár­gerð að einhverju marki og þannig haft mikil áhrif. Svo er að skilja á bréfi Maríu að sveitar­félög á Norður­landi hafi brugðist N4 og ekkert fjármagn sé að hafa þaðan lengur. Hugsanlega er staðan þannig núna að ef Samherji kemur ekki þessu fóstur­barni sínu til hjálpar muni stöðin fara í þrot …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Vissu ekki að 1.468 skilaboð hefðu varðveist
Innlent

Einn fluttur á bráða­móttöku

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Slúður