Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Sport

Hver er Theodór Elmar?

Innlent

Myglu­eitur í hveiti

Fólk

Notalegt fjöl­skyldu­hús með nægu rými úti og inni til sölu

Pólitík

Segir Ísland úti­loka einmitt þá inn­flytj­endur sem landið þarf á að halda

Heimur

Breskir grínistar héldu leyni­lega lista yfir kyn­ferð­is­leg rán­dýr

Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Pólitík

Segir trygg­inga­fé­lögin „gambla“ með fé úr bóta­sjóðum

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Innlent

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Heimur

Nýtt lyf í töflu­formi vekur vonir í bar­átt­unni við briskrabba­mein

Piltar björguðu Japana frá drukknun í Bláa lóninu: „Vissum ekki hvort hann var dáinn eða lifandi“

Myndin tengist fréttinni ekki beint. Mynd / Skjáskot af https://www.bluelagoon.com/is.
Myndin teng­ist frétt­inni ekki beint. Mynd / Skjáskot af https://www.bluelagoon.com/is.

Í mars árið 1995 drýgðu fjórir piltar hetju­dáð í Bláa lón­inu er þeir björg­uðu lífi Japana sem var að drukkna.

DV sagði frá því þann 28. mars árið 1995 hafi fjórir piltar um tví­tugt skellt sér í Bláa lónið en á meðan þeir hafi verið að spjalla í ylvolgu lón­inu hafi kona kallað á þá og beðið um hjálp. Þegar þeir komu nær sáu þeir hvað jap­anskur karl­maður lá á floti með and­litið ofan í vatn­inu.

Hér má sjá umfjöllun DV um þessar ungu hetjur:

Fjórir piltar bjarga ósyndum Japana frá drukknun í Bláa lón­inu:


Vissum ekki hvort hann var lífs eða lið­inn


-segir einn pilt­anna -grunn laug afmörkuð í lón­inu

Við sátum þarna fjórir saman úti í og vorum að kjafta saman. Allt í einu sáum við konu veifa og kalla til okkar. Síðan sáum við í höf­uðið á ein­hverjum sem lá þarna úti í og við syntum á fullu til þeirra. Þegar við komum til þeirra lá mað­ur­inn með and­litið á kafi, hnakk­inn stóð aðeins upp úr. Við tókum undir hend­urnar á honum og syntum og drógum hann að landi. Við vissum ekki hvort hann var dáinn eða lif­andi. Hann var algjör­lega mátt­laus,“ segir Gestur B. Gestsson, tví­tugur bað­gestur í Bláa lón­inu síð­ast­lið­inn föstu­dag. Þeim tókst að koma mann­inum, sem reynd­ist Japani á sex­tugs­aldri, að landi og komu honum í læsta hlið­ar­stell­ingu til að hann gæti andað hindr­un­ar­laust. Gestur segir að erf­ið­lega hafi gengið að fá aðstoð starfs­fólks. Hún hafi ekki borist fyrr en eftir að þeir höfðu tví­vegis hlaupið inn í bað­húsið en eng­inn virt­ist vera staddur þar í fyrra skiptið. Maðurinn hafi kastað upp vatni sem hann hafi gleypt og svo hafi læknir, sem starfar hjá Bláa lón­inu, komið og tekið við mann­inum. Sjúkra­bíll hafi komið stuttu síðar og flutt mann­inn í sjúkra­hús. Gestur gagn­rýnir að eng­inn lög­reglu­skýrsla hafi verið tekin og jafn­framt hve lítil gæsla virð­ist vera á staðnum til að bregð­ast við í svona til­viki. Hann viti í raun ekki hvort mað­ur­inn, sem hann og félagar hans björg­uðu, sé lífs eða lið­inn. Að sögn lög­reglu í Grinda­vík, sem kom á stað­inn með sjúkra­bílnum, var ekki talin ástæða til að taka skýrslu. Hins vegar sé tekin skýrsla ef við­kom­andi óski þess seinna og þá fari fram lög­reglu­rann­sókn.

Vakt­maður brá sér frá

Grímur Sæmund­sen, fram­kvæmda­stjóri Bláa lóns­ins, sagði í sam­tali við DV að mað­ur­inn hefði verið ósyndur. Þrátt fyrir aðvör­un­ar­skilti uppi um alla veggi bað­húss­ins hefði hann farið út í mitt lónið þar sem hann náði ekki til botns, enda jap­anskur og skilið lítið sem ekk­ert í texta við­vör­un­ar­skilt­anna. Þegar slysið átti sér stað hefði vakt­maður, sem á að vera öllum stundum á vakt þegar ein­hver er í lón­inu, brugðið sér frá til að sinna öðrum erindum. Drengirnir sem komið hefðu að mann­inum hefðu unnið gott starf. Maðurinn hefði náð heilsu á ný. Grímur segir að í kjöl­far þessa atviks verði enn betur brýnt fyrir vakt­mönnum að starf þeirra sé ekki afgangs­stærð. Enn fremur hafi verið ákveðið að girða af hluta lóns­ins, næst bað­hús­inu, til að mynda eins konar grunna laug. Grímur segir að lög­reglu­skýrsla hafi ekki skýrt betur atvik máls­ins enn sem komið er. Stað­reynd­irnar liggi fyrir og bætt verði úr þeim hlutum sem miður fóru.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Upptökurnar eru frá Mið-Austurlöndum og ná yfir árin 2020 til 2026. Varnarmálaráðuneytið segir enn óljóst hvað þær sýni.
Heimur

Maður stung­inn í Las Palmas

Heimur

Ljósmynd af logum ræsti sjálf­virkt slök­kvikerfi

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Tölvu­þrjót­arnir sem réð­ust á 1984 skemmdu sjö vef­síður tengdar Palest­ínu

Mannlífið

Myndir

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni