Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Innlent

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Biscotti með trönuberjum, pistasíuhnetum og hvítu súkkulaði

Trönuber eru ekki bara mjög holl og góð fyrir okkur heldur eru þau líka alveg ómót­stæði­lega fal­leg.

Fersk trönu­ber fást víða í mat­vöru­búðum þessa dag­ana og það er um að gera að prófa að nota þau í mat­ar­gerð. Fersk trönu­ber þarf að mat­reiða, þau eru ekki mjög góð „eins og þau koma af kúnni“ en aftur á móti eru þau óskap­lega fal­leg og til­valin til þess að nota í skreyt­ingar eins og við gerum hér. Þurrkuð trönu­ber eru bæði gott snarl til þess að grípa í og frá­bært hrá­efni í kökur og mat.

Biscotti með trönuberjum, pistasíuhnetum og hvítu súkkulaði

18-20 stk.

120 g smjör, mjúkt
2 ½ dl sykur
börkur af 1 app­el­sínu
2 stór egg
4 dl hveiti
1 dl maizena-mjöl
1 ½ tsk. lyfti­duft
½ tsk. salt
safi úr 1/2 app­el­sínu
85 g þurrkuð trönu­ber (1 poki)
50 g pistasíu­hnetur, gróft skornar
100 g hvítt súkkulaði, saxað gróft

Stillið ofn­inn á 175°C. Setjið smjör, sykur og app­el­sínu­börk saman í hræri­vél­ar­skál og hrærið vel saman, það er gott að stoppa vél­ina annað slagið og losa um með sleikju svo að allt bland­ist vel. Bætið eggjum út í, einu í einu, hrærið vel á milli. Hrærið þar til blandan er orðin létt og ljós.

Setjið hveiti, maizena-mjöl, lyfti­duft og salt saman í aðra skál, blandið vel saman, setjið þetta út í hræri­vél­ar­skál­ina og hrærið á hægum hraða þar til allt er vel sam­lagað. Setjið app­el­sínusafa saman við. Bætið hveiti út í ef deigið er of blautt, það á að vera klístrað en nokkuð stíft. Bætið hnetum og súkkulaði út í deigið.

Stráið hveiti á borð og veltið deig­inu létt upp úr því þannig að auð­velt sé að eiga við það. Setjið deigið á ofn­plötu með bök­un­ar­pappír og mótið hleif sem er u.þ.b. 3-4 cm þykkur. Bakið í 20-25 mín. eða þar til hleif­ur­inn er bak­aður í miðj­unni,  best er að finna það með því að ýta létt með fingr­unum í miðj­una. Takið plöt­una úr ofn­inum og látið kólna. Lækkið hit­ann niður í 160°C.

Skerið lengj­urnar var­lega í u.þ.b. 1,5-2 cm þykkar sneiðar, raðið þeim á bök­un­ar­pappír á ofn­plötu og bakið á hvorri hlið í 5-7 mín. Fylgist með svo að sneið­arnar verði ekki of dökkar, þær eiga aðeins að þorna og brúnast lít­il­lega. Látið kólna alveg og geymið í lok­uðu boxi.

Umsjón / Kristín Dröfn Ein­ars­dóttir
Myndir / Aldís Páls­dóttir
Stílisti / Ólöf Jakobína Ernu­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Sendi dularfull smáskilaboð viku fyrir hvarfið
Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Mannlífið

Myndir

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni