Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Sýður upp úr í Garðabæ: „Samið án útboðs við fyrirtæki í eigu forseta bæjarstjórnar“

Björg Fenger, forseti bæjarstjórnar Garðabæjar: „Ég hef ávallt fylgt hæfisreglum sveitarstjórnarlaga.“
Björg Fenger, for­seti bæj­ar­stjórnar Garða­bæjar: „Ég hef ávallt fylgt hæf­is­reglum sveit­ar­stjórn­ar­laga.“

Komið hefur á daginn að meirihlutinn í bæjar­stjórn Garða­bæjar samþykkti að ganga til samninga án útboðs við fyrir­tækið Terra, áður Gáma­þjónustan, um leigu og forkaups­rétt á gáma­leikskóla, en forseti bæjar­stjórnar Garða­bæjar, Björg Fenger, á stóran hlut í Terru.

Þrátt fyrir að Garða­bæjar­listinn, sem er í minni­hluta í bæjar­stjórn Garða­bæjar, lýsti yfir furðu sinni á afgreiðslu málsins og mótmælti kröftug­lega, samþykkti meirihlutinn í Garðabæ engu að síður samninginn; þótt Garða­bæjar­listinn hafi ítrekað bent á hagsmuna­tengsl Bjargar varðandi málið og hafi fært til bókar að „óásættanlegt er að gengið sé til samninga án útboðs við fyrirtæki sem er að hluta í eigu forseta bæjar­stjórnar.“

Þetta kom fram í gær á fundi bæjar­stjórnar Garða­bæjar, þegar tekið var fyrir mál sem varðar samning við fyrir­tækið Terra um leigu á einingum fyrir leikskóla: Liður 9, eftir­farandi númer, 2105431: Samningur við Terru um leigu á einingum fyrir leikskóla. Um málið og fundinn má lesa hér.

Samkvæmt áreiðanlegum heimildum Mannlífs er í samningnum kaupréttsverðið 190 milljónir, 2023, og lækkar eftir því sem leigt er til fleiri ára, niður í 147 milljónir á sjöunda ári.

„Sviðs­stjóri fræðslu- og menningar­sviðs – Eiríkur Björn Björgvinsson – gerði grein fyrir samningi við Terru um leigu á einingum fyrir leikskóla sem stað­settur verður við hlið leik­skólans Sunnu­hvols á Vífils­stöðum og hefur verið nefndur Mánahvoll.“

Eiríkur Björn Björg­vins­son er Sviðs­stjóri fræðslu- og menn­ing­ar­sviðs Garða­bæjar.

Var samningurinn samþykktur: „Bæjarráð samþykkir samninginn með fjórum atkvæðum (ÁHJ,SHJ,AG,GVG) gegn einu (IA). Bæjarráð vísar samningnum til afgreiðslu á fundi bæja­stjórnar 19. ágúst næst­komandi. Bæjarráð Garða­bæjar.“

Sara Dögg Svan­hildar­dóttir oddviti Garða­bæjar­listans er mjög ósátt með samning þennan og í samtali við Mannlíf segir hún að „efnislegt innihald samningsins einfald­lega ber það með sér að verið sé að sniðganga lög um opinber innkaup.“ Og bendir á að  „það þarf ekki annað en að horfa á hækkun leigu­verðs sem á sér stað eftir tveggja ára leigu, en hún er umtals­verð“ segir Sara Dögg. Það er hennar mat og skoðun „að hér er einfald­lega verið að fara gegn megin­reglu um opinber innkaup sem fjallar um að gæta skuli jafnræðis, meðalhófs og gagnsæis opinberra innkaupa,“ segir Sara Dögg og bætir við:

„Það er ekki gert með þessum samningi sem er undir leigu­samningi sem inni­heldur forkaups­rétt sveitar­félagsins á húsunum. Hér er einfald­lega um gamaldags og löngu úrelt vinnu­brögð að ræða sem við í Garða­bæjar­listanum mótmælum harðlega. Því greiddum við atkvæði gegn þessum samningi.“

Sara Dögg er ósátt að gerður var samn­ingur án útboðs.

Ingvar Arnarson frá Garða­bæjar­listanum lagði fram eftir­farandi bókun á fundinum:

Ingvar Arnarson lagði fram bókun á fund­inum fyrir hönd Garða­bæj­ar­list­ans.

„Við í Garða­bæjar­listanum teljum eðlilegt að þegar gengið er til samninga um kaup eða leigu á færanlegu húsnæði sé farið í útboð, enda er fjárhæð þessa samnings langt yfir viðmiðunar­fjárhæðum sem kveðið er á um í lögum um opinber innkaup. Í ljósi þess getum við ekki samþykkt að Garðabær gangi til samninga um leigu og forkaups­rétt á gáma­leikskóla í eigu Terra. Auk þess teljum við óásættanlegt að gengið sé til samninga án útboðs við fyrirtæki sem er að hluta í eigu forseta bæjar­stjórnar,“ en forseti bæjar­stjórnar í Garðabæ – og sá einstaklingur sem á í áður­nefndu fyrirtæki sem fékk samninginn án útboðs, er Björg Fenger lögfræðingur.

Ingvar segir að það sé „stefna Garða­bæjar­listans að öll meiriháttar innkaup fari í útboð og tryggja þannig gagnsæi og góða nýtingu á skattfé Garðbæinga.“

Í framhaldi af bókun Ingvars á umræddum fundi lögðu fulltrúar Sjálfstæðis­flokksins í bæjar­stjórn fram eftir­farandi bókun á fundinum:

Gunnar Ein­ars­son er bæj­ar­stjóri Garða­bæjar.

„Garðabær leggur ríka áherslu á þjónustu við foreldra með börn á leik­skólaaldri. Fjölgun barna í Garðabæ er mikil um þessar mundir og brýnt að börnum sé útveguð leik­skólavist við 12 mánaða aldur eins og Garðabær leggur upp með. Leiga fasteignar eins og þeirrar sem hér um ræðir er undan­skilin gildisviði laga um opinber innkaup nr. 120/2016. Öll tilvísun í viðmiðunar­fjárhæðir samkvæmt þeim lögum á ekki við hér.

Varðandi hæfi bæjar­fulltrúa vísast til ákvæða sveitar­stjórna­laga og samþykktar um stjórn Garða­bæjar sem fylgt hefur verið hvívetna í þessu máli eins og öðrum málum sem koma til umfjöllunar og afgreiðslu bæjar­yfirvalda. Bæjarráð samþykkir samninginn með fjórum atkvæðum (ÁHJ,SHJ,AG,GVG) gegn einu (IA). Bæjarráð vísar samningnum til afgreiðslu á fundi bæja­stjórnar 19. ágúst nk. Bæjarráð Garða­bæjar.“

Guðjón Erling Frið­riks­son bæj­ar­rit­ari Garða­bæjar.

Fundinn sátu: Áslaug Hulda Jóns­dóttir formaður, Sigríður Hulda Jóns­dóttir aðalmaður, Gunnar Valur Gíslason aðalmaður, Almar Guðmundsson aðalmaður, Ingvar Arnarson varamaður, Guðjón Erling Friðriksson bæjar­ritari, Eiríkur Björn Björgvinsson sviðs­stjóri fræðslu- og menningar­sviðs, Eysteinn Haraldsson bæjar­verk­fræðingur, Svanhildur Þengils­dóttir sviðs­stjóri fjölskyldu­sviðs, Hulda Hauks­dóttir upplýsinga­stjóri, Guðbjörg Brá Gísla­dóttir deildar­stjóri umhverfis og framkvæmda.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim