Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sam­bands­af­mæli með kærust­unni

Heimur

Kærastan fann dag­bæk­urnar og sleit sam­band­inu við David Walliams

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Heimur

Prestur rifjar upp óþægi­lega reynslu úr æsku

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Heimur

Raun­veru­leika­stjarnan Sheila Mangubat látin 35 ára að aldri

Innlent

Grun­semdir vökn­uðu þegar son­ur­inn sagð­ist fá fría ferð til Taílands

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Innlent

„Sterkar vís­bend­ingar eru núna um að hryðju­verk­a­ríkið Ísrael hafi gert tölvu­árás á íslenska inn­viði“

Sigmar við Sigurð Inga: „Örmagna foreldri sem þarf að þola rifrildi barnanna við matarborðið“

Sigmar Guðmundsson.
Sigmar Guð­munds­son.

Það var hart tek­ist á í þing­inu þegar þing­menn Við­reisnar og Sam­fylk­ing­ar­innar kvört­uðu undan afstöðu­leysi for­manns Fram­sókn­ar­flokks­ins, Sigurðar Inga Jóhann­es­sonar, varð­andi umræðu um mál­efni flótta­manna hér á landi; sögðu hann hafa ítrekað komið sér undan að svara spurn­ingum þing­manna.

Sigurður Ingi Jóhanns­son.

Fyrrum sjón­varps­mað­ur­inn og núver­andi þing­maður Við­reisnar, Sigmar Guð­munds­son, spurði Sigurð Inga í fyr­ir­spurna­tíma í hvort hann væri hlynntur stefnu og hug­myndum sem Jón Gunn­ars­son dóms­mála­ráð­herra hefur boðað í mála­flokknum:

Jón Gunn­ars­son dóms­mála­ráð­herra.

„Mér finnst ein­fald­lega ekki rétt né tíma­bært að vera að fjalla um þær fyrr en við höfum tekið þær til umfjöll­unar í ráð­herra­nefnd um útlend­inga­mál og stefna rík­is­stjórn­ar­innar birt­ist. Þá skal ég tala við hátt­virtan þing­mann um það hvað ég stend fyrir og hvað ég mun verja,“ sagði Sigurður Ingi.

Sigmar var ekki hættur, hvergi nærri, og tók málið upp í umræðu um störf þings­ins. Sagði Sigmar þetta svar Sigurðar Inga vera lýsandi fyrir þann ágrein­ing sem er innan rík­is­stjórn­ar­innar um mál­efni flótta­manna í neyð sem hingað koma:

„Ég spurði svo for­mann Fram­sókn­ar­flokks­ins um afstöðu hans til máls­ins í gær og fékk ákaf­lega fram­sókn­ar­legt svar sem var efn­is­lega svohljóð­andi: Ég svara því seinna. Þá skal ég segja þér fyrir hvað ég stend og hvað ég vil verja. Formanni Fram­sóknar er hins vegar ákveðin vor­kunn. Hann er eins og örmagna for­eldri sem þarf sífellt að þola rifr­ildi og ósam­komu­lag barn­anna sem sitja á vinstri og hægri hönd við mat­ar­borðið. Slíkt tekur eðli­lega á taug­arnar til lengri tíma. Þetta ger­ist í hverju mál­inu á fætur öðru. Þetta er að ger­ast í orku­málum, þetta er að ger­ast í land­nýt­ing­ar­málum, í auð­linda­málum, í skatta­málum og núna í útlend­inga­málum. Og þetta er ekki tæm­andi upp­taln­ing,“ voru orð Sigmars.

Helga Vala Helga­dóttir.

Þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, lög­fræð­ing­ur­inn Helga Vala Helga­dóttir, furð­aði sig einnig á svari Sigurðar Inga:

„Hæst­virtur ráð­herra svar­aði að honum fynd­ist hvorki rétt né tíma­bært að vera að fjalla um þetta, sem er þó til umræðu í fjöl­miðlum og þing­inu á hverjum ein­asta degi, á meðan ein­hver ráð­herra­nefnd, sem hann á ekki sæti í, væri að fara að fjalla um málið kannski ein­hvern tím­ann seinna. Virðu­legur for­seti. Þetta er ein leið þing­heims til að fá ráð­herra til að lýsa skoðun sinni á heitum málum sem eru í umræð­unni og ég held að við hljótum að geta gert þá kröfu til ráð­herra að þeir lýsi sinni skoðun hér í pontu en bíði ekki nið­ur­stöðu ein­hverrar ráð­herra­nefndar sem mögu­lega kannski ein­hvern tím­ann seinna mun fjalla um ein­hver mál.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Ísrael hefur nán­ast útrýmt ævafornum ólífutrjám Gaza

Aðeins um 150 þúsund af tveimur milljónum ólífutrjáa sem stóðu á Gaza fyrir stríðið eru enn eftir, samkvæmt gögnum landbúnaðarráðuneytisins þar.
Fólk

Átta mis­tök sem fólk ætti að forð­ast ef það flýgur um jólin

Heimur

Rússar sagðir und­ir­búa kjarn­orku­vopn á braut um jörðu

Pólitík

„Staðan á vissum tímum sól­ar­hrings­ins orðin nán­ast óbæri­leg“

Pólitík

Aðeins þrír róðrar áður en hjónin riftu kaup­unum

Innlent

Sakar rík­is­stjórn­ina um að gera lítið úr vinnu lág­launa­fólks og for­eldra

„Ég biðla til þeirra þingmanna sem kalla sig jafnaðarmenn að beita sér gegn þessum breytingum“

Tölvu­þrjót­arnir sem réð­ust á 1984 skemmdu sjö vef­síður tengdar Palest­ínu

Að minnsta kosti þrjár Palest­ínu­tengdar vef­síður eyði­lagðar í netárásinni á 1984