Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Innlent

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Boris Johnson verður næsti forsætisráðherra Bretlands

Boris Johnson með síld.
Boris Johnson með síld.

Boris Johnson verður næsti forsætisráðherra Bretlands og tekur hann við embættinu af Theresu May á morgun.

Johnson hafði betur gegn utan­rík­is­ráð­herr­anum Jeremy Hunt í kosn­ingu um for­manns­emb­ættið hjá Íhalds­flokknum. Hlaut Boris nærri tvö­falt fleiri atkvæði en Hunt.  Það voru 120 þús­und með­limir breska Íhalds­flokks­ins sem greiddu atkvæði í kosn­ing­unni sem hefur staðið yfir í á þriðju viku.  

Theresa May sagði af sér emb­ætti eftir að hafa mis­tek­ist að koma sam­komu­lagi um útgöngu Bret­lands úr Evr­ópu­sam­band­inu í gegnum breska þingið. Boris, sem var einn helsti tals­maður Brexit, hefur ítrekað sagt að Bretland muni ganga úr Evr­ópu­sam­band­inu þann 31. októ­ber, óháð því hvort búið verður að semja við ESB um útgöngu eða ekki.

Þar mun Boris hins vegar rekast á vegg því breska þingið hefur úti­lokað útgöngu án samn­ings. Að sama skapi hafa þrír ráð­herrar Íhalds­flokks­ins lýst því yfir að þeir muni segja af sér emb­ætti ef svo færi að Boris yrði for­sæt­is­ráð­herra. Geta þeir ekki fellt sig við harð­línu­stefnu hans í Brexit-mál­inu.

Stjórn­mála­skýr­andi BBC segir sigur Boris í raun með ólík­indum. Hann hafi sem borg­ar­stjóri í London, þing­maður og síðar utan­rík­is­ráð­herra ítrekað lent í slíkum hneyksl­is­málum og upp­á­komum að flestir aðrir stjórn­mála­menn í hans sporum væru fyrir löngu búnir að vera.

Búast má við að Boris geri umtals­verðar breyt­ingar á rík­is­stjórn­inni. Einnig má búast við óró­leika á mörk­uðum þar sem lík­urnar á Brexit án samn­ings hafa auk­ist veru­lega með sigri Johnson. Vís­bend­ingar eru um að breska hag­kerfið sé nú þegar að sigla á leið inn í kreppu, að stórum hluta vegna Brexit, en því hefur verið spáð að útganga án samn­ings muni hafa alvar­leg nei­kvæð áhrif á breskan efna­hag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Sendi dularfull smáskilaboð viku fyrir hvarfið
Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Heimur

Maður stung­inn í Las Palmas

Maður um fertugt hlaut alvarlega skurði og var fluttur á sjúkrahús eftir bráðameðferð á vettvangi.

Dán­ar­or­sök Sir Patricks Stewart stað­fest

Ljósmynd af logum ræsti sjálf­virkt slök­kvikerfi

Nýtt lyf í töflu­formi vekur vonir í bar­átt­unni við briskrabba­mein

Breskir grínistar héldu leyni­lega lista yfir kyn­ferð­is­leg rán­dýr

Dauði og eyði­legg­ing eykst á Gaza þrátt fyrir vopna­hlé