Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Innlent

Eftir­lýstur maður óvænt gripinn

Einar Darri á daginn í dag: „Ég vil alltaf gleðjast yfir þessum degi og fagna minningunum“

Bára og Einar Darri.
Bára og Einar Darri. Mynd: Facebook

„Elsku Einar Darri Óskarsson,engillinn minn á daginn í dag -hundrað, tvöhundruð (10.02.00.) eins og þú sagðir alltaf „flottasta kennitala í heimi“

„Í dag fyllist hjarta mitt af öllum mögulegu tilfinningum og ekki bara þær sem ég flokka sem erfiðar, því ég fæ líka hlýju, gleði og þakklæti í hjartað að hafa fengið að hafa þennan yndis dreng hjá mér í 18 ár og ég vil alltaf gleðjast yfir þessum degi og fagna minningunum sem ég , við fjöl­skyldan og vinir eigum með honum.Minningar lifa að eilífu“ Skrifaði Bára Tómasdóttir, móðir Einars Darra Óskars­sonar á Facebook síðu sinni. Hún gaf Mannlífi góðfúslegt leyfi fyrir birtingu.

Einar Darri á daginn í dag. Það má segja að hann haldi áfram að hafa jákvæð áhrif á heiminn, þrátt fyrir að vera ekki lengur meðal okkar en fjöl­skylda hans hefur tileinkað sér málefni ungmenna í fíkni­vanda og staðið fyrir forvarnar­starfi, rann­sóknum og fræðslu, svo eitthvað sé nefnt. Allt í hans nafni.

Einar Darri lét lífið þann 25 maí árið 2018 vegna lyfja­eitrunar, aðeins 18 ára gamall.. Eftir andlát Einars Darra stofnaði fjöl­skyldan minningar­sjóð í hans nafni og stóðu svo fyrir átakinu „Ég á bara eitt líf“ sem hafði það markmið að sporna við og draga úr ofneyslu fíkniefna.

„Í ágúst 2019 var nafnið stytt í “Eitt líf” og ákveðið var að leggja megin áherslu á þróun og framkvæmd á fræðslu og forvarna­verkefni fyrir börn og ungmenni, foreldra og starfs­fólk sem vinnur með börnum og ungmennum. Þetta tiltekna verkefni er ennþá í þróun og vinnslu. Fjármagn fyrir því verkefni fékkst í styrktar­söfnuninni “Vaknaðu” á vegum Á allra vörum.“ Stendur á vefsíðu verk­efnisins.

Systir Einars Darra, Andrea Ýr, stóð fyrir masters­rannsókn í nafni litla bróður: „Málefni rann­sóknarinnar er misnotkun á lyfseðils­skyldum lyfjum meðal ungra íslenskra karlmanna, sem eins og gefur að skilja er henni og okkur allri fjöl­skyldunni mjög hugleikið málefni. Fyrir þremur dögum var birt vísinda­grein í erlendu tímariti sem byggist á masters rann­sókninni“

„Meðhöfundar vísinda­greinarinnar eru einnig magnaðir einstaklingar, Árni Johnsen  og Kjartan Þórsson  læknar og frumkvöðlar sem bjuggu til snilldar Niðurtröppunarskema fyrir verkjalyf. Einnig Sigrún Sigurðar  dósent við Háskólann á Akureyri og ein af þeim sem kom að stofnun frábærs lágþröskulda úrræðis fyrir ungt fólk“

Bára skrifar um alvarlega stöðu en mikil aukning hefur verið í misnotkun ópíóða og fjallaði Kompás um nýjan faraldur. „Við í Minningar­sjóðnum hans Einars Darra höldum einnig áfram að reyna að láta gott af okkur leiða og erum við stolt af verkefnum okkar, til dæmis úrræða­leitar­vélinni, samstarfi við Samfés, náms­efnagerð og fleiri verkefnum sem eru í vinnslu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

„Þekktasta klámstjarna Ítalíu“ vill verða borgar­stjóri Rómar

Á þingferli sínum vakti hún athygli fyrir að flytja ræður með annað brjóstið bert.
Heimur

Tveggja barna faðir skotinn til bana á þakkar­gjörðar­daginn

Heimur

Sautján ára skóla­stúlka lést eftir árás

Innlent

Húsfélagi óheimilt að rukka skrópara

Fólk

Fimm ráð Kristjönu til að halda á sér hita í vetur

Innlent

Mál vegna gruns um kynferðis­brot í Garðaseli fellt niður

Maðurinn var handtekinn 17. mars en sleppt skömmu síðar. Honum var vikið úr starfi meðan rannsóknin stóð yfir.

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Kveikti í íbúð með vél úr mótor­hjóli

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu