Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

„Fyrirgefðu, ég var misnotaður þar af iðnaðarmanni sem var að laga húsið“

Mummi Týr opnar sig um hræðilega reynslu sína sem barn

Mummy Týr
Mummy Týr Mummi býr nú í Róm

Mummi Týr Þórarinsson. Maður sem gekk hinn grýtta veg á fyrri hluta ævinnar en sneri síðan við blaðinu og fór að aðstoða aðra í sömu sporum. Í ítarlegu viðtali við Mannlíf opnar hann sig um misnotkun, fíkni­vanda sinn og fleira en í þessum kafla er fjallað um það er hann var misnotaður þegar hann dvaldi á vist­heimilinu Silunga­poll.

Silungapollur

„Ég var Silunga­pollsbarn,“ segir Mummi Týr sem segist að minnsta kosti tvisvar sinnum hafa verið sendur á vist­heimilið á því tímabili sem mamma hans var einstæð. Hann var fjögurra eða fimm ára þegar hann fór þangað fyrst ásamt eldri bróður sínum.

„Ég man að það var fullt af krökkum og rosa agi á öllu. Bróðir minn var einu sinni að sparka bolta og skórinn fylgdi út í pollinn sem staðurinn er kenndur við og hann var háttaður ofan í rúm um miðjan dag fyrir það. Ég man að ég talaði við hann og hann var alveg miður sín uppi í rúmi um hábjartan dag. Ég man svona glefsur. Ég man að hurðar­húnarnir voru mjög ofarlega á hurðunum þannig að börnin náðu ekki upp í þá. Það var járnagi þarna og þetta var bara ekki gott. Samt voru börnin út um allt úti og í hrauninu og einhverjir iðnaðar­menn og einhver skúmaskot og útihús. Ég man glefsur.“

Hann ræskir sig.

„Fyrir­gefðu, ég var misnotaður þar af iðnaðar­manni sem var að laga húsið.“

Hann ræskir sig aftur.

„Þú sérð að um leið og ég byrja að tala um þetta þá fara í gang reflexar. Þá getur þú ímyndað þér hvað var gert við mig. Ég skildi aldrei af hverju ég átti erfitt með að gleypa pillur. Ég kúgaðist gjarnan.“

Hann sagði engum frá.

Mummi gróf þetta niður og átti ekki minningu um misnotkunina fyrr en mörgum áratugum síðar í Ayahuasca-seremóníu sem sótti að hans sögn atburða­rásina frá Silunga­polli upp í meðvitundina.

„Ég fór í kóma og þetta var svakalegt upplivelse. Þetta er heill heimur. Í þessu ástandi labbaði ég í gegnum misnotkunina og þetta var „grand finale“ fyrir mig. Auðvitað upplifði ég sorg og alls konar í æsku eftir að þetta gerðist en mér fannst svo gott að fá síðasta púslið í minni sjálfs­skoðun. Nú „meikaði sens“ af hverju ég tikkaði í öll boxin sem misnotað barn.“

Mummi segir að upplifunin hafi verið svo ótrúleg að erfitt sé að gera sér grein fyrir henni. Hann segist þó telja að hann hafi loks losnað undan síðustu böndunum sem tengdu hann við viðkomandi mann og að þá hafi loksins orðið honum ljóst hver hann væri í raun. Í kjölfarið hafi hann gengið í gegnum afar erfiða helgi, upplifað mikla vanlíðan og átt við martraðir að stríða.

„Þetta var alveg skelfilegt. En eftir á var þetta samt svo heilandi.“

Hann segir þetta vitundar­ferðalag hafa verið stóra örlagavaldinn í lífi sínu sem hjálpaði honum að jarð­tengja sig betur og hreinsa út margra áratuga gamlan sársauka. „Öll fyrri reynsla nýtist mér í dag og mér finnst ég bara maður að meiri. Ég veit alveg helvítis helling en eftir því sem ég veit meira þá fatta ég hvað ég veit ógeðslega lítið,“ segir Mummi Týr og orðar þetta svipað og Sókrates á að hafa gert. „Ég er alltaf að fræða mig. Ég er að horfa á fyrir­lestra á daginn í „chillinu“ - TedTalk til dæmis og læra um meðvirkni eða brotin sambönd. Ég er alltaf að mennta mig.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Árið 2022 sagðist hún sjá sig í háskóla og pólitík eftir fimm ár. Nú hefur hún stofnað einkahlutafélag með fjölþættan tilgang.

Fjórum árum eftir að heilinn hótaði uppsögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Átta mistök sem fólk ætti að forðast ef það flýgur um jólin

Hlýlegt heimili við Efri Hól bíður nýrra eigenda

Björgvin Franz fagnar eins árs sambands­afmæli með kærustunni