Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Fangi kvartaði eftir að sambýlis­konu hans var bannað að heimsækja hann

Vinslit Össurar og Ólafs

Ólafur Ragnar Grímsson
Ólafur Ragnar Grímsson Mynd: Brynhildur Jensdóttir

Gömlu fóstbræðurnir Össur Skarp­héðinsson, fyrr­verandi formaður Samfylkingar, og Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrum forseti Íslands, eru komnir í hár saman vegna Evrópu­sambandsins. Ólafur Ragnar er genginn í lið með Hannesi Hólmsteini Gissurar­syni, fyrr­verandi prófessor, og berst með kjafti og klóm gegn því að þjóðin fái að greiða atkvæði um aðild að Evrópu­sambandinu. Samtökin hafa náð að setja límmiða í sína þágu á stóran hluta af heyrúllum bænda víða um land. Sumir kenna samtökin við rúllurnar.

Össur gefur Ólafi Ragnari ekkert eftir og líkir honum og þeim sem standa að Nei-hreyfingunni við MAGA-hreyfingu Trumps. Össur segir á Facebook að í Banda­ríkjunum sé MAGA-hreyfingunni stjórnað af milljóna- og billjónamæringum. Hún ráðist á stofnanir og saki menn um að ganga erinda erlends valds. Með öllum ráðum sé þaggað niður í stofnunum, einstaklingum og fjöl­miðlum. Auður sægreifanna íslensku notaður í þágu Nei-hreyfingarinnar.

„Á Íslandi er NEI-hreyfingunni stýrt af auðmönnum eins og Halldóri Benjamín, hálaunaðri verkalýðs­forystu sem vill ekki einu sinni leyfa eigin félags­mönnum að skoða möguleika á lækkun matvæla­verðs eða verulega lægri vöxtum húsnæðis­lána – og fulltrúum sem áður sátu efst á tróni stjórn­kerfisins,“ skrifar Össur og vísar augljós­lega til Ólafs Ragnars. Ólafur Ragnar mætti í Spursmál í gær þar sem hann talaði varlega um Össur en taldi þó að vinur sinn væri að upphefja sig með barátt­unni fyrir því að þjóðin fengi að svara til um aðild. Áður hafði forsetinn fyrr­verandi gefið í skyn að ríkis­stjórnin myndi hugsanlega semja beint um aðildina án aðkomu þjóðarinnar.

Þess er nú beðið hvert verði næsta útspil Ólafs Ragnars og heyrúllu­samtakanna í stríðinu um þjóðar­atkvæða­greiðslurnar ...

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Félagið gerði ekki skriflega ráðningarsamninga og lagði ekki fram vaktaskrár. Dómurinn féllst á kröfur starfsmannanna að fullu.
Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Innlent

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Innlent

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Slúður