Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Lögreglumaður myrti konu sína í sturlunarástandi: Gekk á móti lögreglunni kviknakinn og blóðugur

Theodóra Kolbrún Ásgeirs­dóttir fannst látin á tröppunum fyrir framan heimili sitt á Seyðis­firði, þann 24. mars 1971. Tvö börn hennar komu að henni. Maður hennar, lögreglu­maðurinn Valgarður Frímann Jóhannsson, reyndist banamaður hennar en hún hafði verið stungin með hnífi.

Kolbrún eins og hún var kölluð, var aðeins 37 ára er hún féll frá. Þau Valgarður höfðu flutt á Seyðis­fjörð frá Akureyri 1967 en þau áttu sjö börn.

Sjálfs­morð algjör­lega útilokað

Alþýðu­blaðið lýsti atvikum á eftir­farandi hátt; „Það var um klukkan tíu í gærmorgun, sem barn kom hlaupandi frá húsinu að Vestur­vegi 8 og bað um hjálp. Þegar að var komið lá húsmóðirin þar á tröppunum. Hafði hún verið stungið hnífi nokkrum sinnum og mun að öllum líkindum hafa verið látin er að var komið. Stóð alblóðugur hnífur í dyrastaf fyrir ofan tröppurnar. Var þegar ljós að sjálfs­morð hafi verið algjör­lega útilokað. Beindist grunur þegar að eigin­manni konunnar sem þá greini­lega orðinn vitskertur.“ Er talað um í blaðinu að Valgarður, sem var bæði toll­vörður og lögreglu­maður, hafi dagana á undan voða­verkinu, hagað sér undarlega og úr takt við raun­veruleikann.

Í Vísi var skrifað að Valgarður hafi gengið á móti lögreglunni kvik­nakinn með blóðugar hendur og virtist „alls ekki með sjálfum sér og orðræður hans voru út í bláinn.“

Dæmdur ósakhæfur

Við yfirheyrslur virtist hann ekki gera sér grein fyrir því að kona hans var dáin og bað fyrir skila­boðum til hennar. Að endingu virtist hann þó átta sig á því sem gerst hafði og játaði að hafa banað Kolbrúnu. Hins vegar þótti játning hans ansi ruglingsleg og virtist Valgarður ekki í tengslum við raun­veruleikann. Að lokum var hann dæmdur ósakhæfur og til að sæta öryggis­gæslu á viðeigandi stofnun. Valgarður lést árið 2002, 72 ára að aldri.

Baksýnis­spegill þessi birtist fyrst á Mann­lífsvefnum þann 8. október 2021.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Húsið var reist árið 1993
Innlent

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis

Innlent

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Ný skýrsla Sameinuðu þjóðanna fjallar um dráp á konum og stúlkum. María Rut Kristinsdóttir og Ingileif Friðriksdóttir leiða ljósagöngu á morgun.

Innkalla vinsælt jólasmáköku­deig vegna aðskotahluts

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi