Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Heimur

Kærastan fann dagbækurnar og sleit sambandinu við David Walliams

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sambands­afmæli með kærustunni

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Prestur rifjar upp óþægilega reynslu úr æsku

Fólk

Fjórum árum eftir að heilinn hótaði uppsögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Lögregla fjarlægði mótmælanda eftir að hafa ruglast á áletrun á bol hans

Heimur

Raun­veruleika­stjarnan Sheila Mangubat látin 35 ára að aldri

„Ég missti öll tengsl við raunveruleikann“

Snemma árs 1996 bankaði ókunnur maður að dyrum hjá Sigursteini Mássyni sem þá var ungur frétta­maður á Stöð 2. Hann kynnti sig sem Sævar Ciesielski og hafði undir höndum gögn um umfangs­mesta sakamál Íslands­sögunnar, Guðmundar- og Geirfinns­málið, og fór fram á að hann skoðaði það ofan í kjölinn. Sigursteinn var tregur í fyrstu en ákvað að sökkva sér ofan í málið. Það reyndist afdrifarík ákvörðun. Ekki bara áttu sjónvarps­þættir Sigursteins stóran þátt í því að opna augu þjóðarinnar fyrir því réttarfars­hneyksli sem málið var heldur átti líf Sigursteins eftir að taka stakka­skiptum og marka upphafið að baráttu hans við geðhvörf.

Sigursteinn Másson
Sig­ur­steinn Másson

Sögulegar mála­lyktir urðu í Guðmundar- og Geirfinns­málinu á dögunum þegar Hæstiréttur sýknaði þá Kristján Viðar Júlí­us­son, Sæv­ar Marinó Ciesi­elski, Tryggva Rún­ar Leifs­son, Al­bert Kla­hn Skafta­son og Guðjón Skarp­héðins­son af því að hafa orðið þeim Guðmundi og Geirfinni að bana, eftir að endur­upptöku­nefnd féllst á að taka málið upp að hluta. Má segja að dómurinn ljúki því ferli sem Sigursteinn hóf fyrir 22 árum þegar vinna við sjónvarps­þættina Aðför að lögum hófst. Þeir þættir opnuðu augu almennings fyrir því hversu mein­gölluð rannsókn málsins og meðferð þess fyrir dómstólum var og gjör­breyttu almennings­álitinu sem fram að því hafði ekki verið hliðhollt sakborningunum. Sigursteinn lítur hins vegar ekki svo á að málinu sé lokið enda hafi nafn sakborninga í málinu ekki verið hreinsað að fullu. Eftir stendur að þau eru enn sek fyrir rangar sakar­giftir. „Þetta er í rauninni hálf­leikur. Þessi niður­staða Hæstaréttar og í raun með hvaða hætti endur­upptöku­nefndin og saksókn­arinn settu þetta upp er hneisa, að mínu mati. Þau höfðu tækifæri til að laga málið allt saman og hreinsa allt málið en þau fóru bara hálfa leið. Að halda eftir röngum sakar­giftum er fullkomlega út í hött, algjör­lega ábyrgðar­laust, óskammfeilið og virðist gert til þess að vernda kerfið, að vernda þá aðila sem raun­verulega bera ábyrgð á því hvernig þetta fór allt saman. Þetta er einfald­lega gert til að koma í veg fyrir að kerfið standi allt saman berháttað í málinu eins og það í raun ætti að vera.“

Sáum strax að málið var meingallað

Sigursteinn var barn að aldri þegar Guðmundar- og Geirfinns­málið stóð sem hæst og hafði hann aðeins óljósa minningu um málið þegar Sævar Ciesielski bókstaf­lega færði það upp í hendurnar á honum. „Ég man þetta eins og það hafi gerst í gær. Ég bjó á Kaplaskjóls­veginum á annarri hæð í lítilli tveggja herbergja íbúð. Eitt kvöldið, frekar seint, var bankað að dyrum hjá mér og á ganginum stóð þessi lágvaxni granni maður með tvö þykk hefti í höndunum og hann kom sér beint að efninu sem var hans stíll: „Sæll, Sigursteinn. Ég heiti Sævar Ciesielski. Mér var sagt að tala við þig og ég vil spyrja þig hvort þú sért tilbúinn til að skoða Guðmundar- og Geirfinns­málin“.“

Þá voru liðin 16 ár frá því Sævar var dæmdur í 17 ára fangelsi í Hæstarétti. Sigursteinn, þá 29 ára og þegar orðinn einn af þekktari frétta­mönnum landsins, tók við gögnunum en tjáði Sævari um leið að hann væri ekki viss hvort hann gæti nokkuð gert við þau. Fyrst og fremst spáði Sigursteinn í það hvernig Sævar hefði komist inn í stiga­ganginn án þess að hringja dyra­símanum í anddyrinu. Nokkrum dögum síðar bankaði Sævar aftur upp á, og aftur án þess að hringja dyra­símanum, og afhenti Sigursteini öll gögnin sem lágu fyrir í málinu.

Eftir stutta yfirferð varð honum ljóst að eitthvað verulega hafði farið úrskeiðis við rannsókn málsins. „Þarna um sumarið 1996 opinberaðist fyrir mér ljótleiki málsins og ég áttaði mig fljótlega á því að þetta væri mein­gallað mál.“ Sigursteinn ákvað fljótlega að gera heimilda­mynd í tveimur þáttum um málið og fékk til liðs við sig þá Einar Magnús Magnússon og Kristján Guy Burgess. „Þá hófst þessi vinna fyrir alvöru og maður sá strax að það vantaði rosalega mikið í gögnin. Til að mynda ótal margar yfirheyrslur sem voru ekki til staðar. Þetta sást til að mynda glögglega þegar við komumst í dagbækur Síðu­mála­fangelsis sem var ævintýralegt. Þá sáum við að það höfðu farið fram yfirheyrslur sem tóku marga klukku­tíma en ekkert var til um.“

„Þarna um sum­arið 1996 opin­ber­að­ist fyrir mér ljót­leiki máls­ins og ég átt­aði mig fljót­lega á því að þetta væri mein­gallað mál.“

Gagna­öflun gekk þokkalega þótt þeir hafi víða mætt tregðu í kerfinu við að veita upplýsingar. „Við létum ekkert vita af þessari vinnu okkar opinber­lega fyrr en í september þegar hún hafði staðið yfir í einhverja níu mánuði. Þá, einhvern veginn, fór ýmislegt að breytast.“

Sigursteinn nefnir að þeir hafi verið í samstarfi við þýskan blaðamann sem hafði það verkefni að hafa uppi á Karli Schütz, þýskum rannsóknar­foringja á eftir­launum sem fenginn var til að aðstoða við rannsókn Guðmundar- og Geirfinns­málsins. Margt var á huldu um Schütz, bæði hvað varðar fortíð hans sem og hvers vegna hann var fenginn til að koma að rannsókn mannshvarfs­máls á Íslandi. „Þetta var ekki venju­legur lögreglu­maður. Þetta var maður sem hafði verið innsti koppur í búri varðandi pólitíska þróun Vestur-Þýska­lands eftir stríð. Við komumst að því að hann var foringi í SS-sveitum nasista en ekki nákvæmlega hvar hann var og hvað hann gerði. Þessi blaða­maður hafði samband við okkur eftir að við gerðum þetta opinbert og sagði að skyndi­lega hafi allt lokast honum. Hann tilkynnti okkur að hann gæti ekki haldið áfram að vinna fyrir okkur því allar dyr höfðu lokast í Þýska­landi.“

Missti öll raunveruleikatengsl

Um sama leyti fór Sigursteinn að fá á tilfinninguna að honum væri veitt eftirför. „Ég hafði tekið eftir bíl, brúnum Ford, sem dúkkaði alltaf upp og fylgdi mér þegar ég var að fara til Kristjáns Guy sem bjó í Þing­holtunum eða Einars Magnúsar sem bjó á Ránar­götunni.“ Sigursteinn rifjar upp atvik þar sem umræddur bíll ók á eftir bíl hans upp Melhaga eitt kvöldið. „Ég stoppaði bílinn og þeir komu alveg aftan að mér, það nálægt mínum bíl að ég sá ekki númera­plötuna á bílnum þeirra. Ég horfði í baksýnis­spegilinn til að reyna að átta mig á hverjir þetta væru en þeir sátu báðir með hendurnar fyrir andlitinu og ég sá að þeir voru að ræða sín á milli. Ég hef oft hugsað um það eftir á hvað hefði gerst ef ég hefði farið út úr bílnum og gengið á þá þarna á staðnum. En ég mat það á þessum örfáu sekúndum, þótt þetta hafi liðið eins og heil eilífð fyrir mér, að það væri best að bruna í burtu. Ég spændi því upp Melhagann á Renault-bílnum mínum. Þeir urðu eftir og færðu sig ekki.“

„Ég var algjör­lega sann­færður um að skruðn­ing­arnir sem ég heyrði í heima­sím­anum dag­ana á undan væru merki um að það væri verið að hlera mig“

Það var á þessum tíma sem Sigursteinn byrjaði að „missa fótanna“ og upplifa fyrstu einkenni geðhvarfa. Dagana á eftir fór hann í felur, úr einu húsi í annað. „Ég gisti hjá vinum mínum, í sumar­bústað úti á landi og svo framvegis. Ég var algjör­lega sann­færður um að skruðningarnir sem ég heyrði í heima­símanum dagana á undan væru merki um að það væri verið að hlera mig. Ég var orðinn svo ofsókna­róður að þetta endaði á því að ég gat hvorki sofið né borðað. Ég varð að vera fullviss um hvaðan maturinn væri og ég vantreysti öllum. Ég var sann­færður um að það væri setið um mig og það að væri markmið ákveðinna afla, valda­mikilla aðila, að koma í veg fyrir dagskrár­gerðina. Ég missti öll raun­veruleika­tengsl.“

Gerði Davíð Oddssyni tilboð

Úr varð að Sigursteinn var nauðungar­vistaður á geðdeild Land­spítalans í fyrsta skipti. „Ég fór og hitti lækni inni á geðdeild ásamt móður minni. Þar í rauninni lagði ég árar í bát. Þá voru hugsanir mínar orðnar mjög óskýrar, mjög fantasíu­kenndar. Þarna hélt ég til dæmis að ég væri að fara að hitta ríkis­stjórnina. Áður hafði ég farið til Davíðs Oddssonar og sagt við hann: „Ég skal hætta þessari dagskrár­gerð ef þú bara borgar fyrir mig far úr landi og uppihald.““

Hvernig brást Davíð við?

„Hann spurði hvort ég hefði talað við lækni.“

Sigursteinn telur þó að eftir á að hyggja hafi falist ákveðin blessun í því að hafa veikst á þessum tíma­punkti. „Af því að ég held að þá hafi ég verið afskrifaður af mörgum. Þar með fengum við kannski tækifæri til að klára þetta í meiri friði en annars hefði verið. Mín geðhvörf urðu til þarna við þessar aðstæður og spurning hvort ég hefði yfirhöfuð fengið geðhvörf ef ég hefði ekki tekið að mér þetta verkefni. Ég sé hins vegar ekkert eftir því.“

Á þessum tíma var Sigursteinn rekinn frá Stöð 2. Skýringin sem forsvars­menn Íslenska útvarps­félagsins sem þá rak Stöð 2 var sú að Sigursteinn gæti ekki sinnt starfinu samhliða þátta­gerðinni. Sigursteinn segir málið hins vegar hafa snúist um söluna á sýningar­rétti á þáttunum. Bæði RÚV og Íslenska útvarps­félagið vildu kaupa þættina og var það síðarnefnda tilbúið að borga meira fyrir þá. „En þeir voru ekki tilbúnir til að tryggja sýningu þáttanna á Stöð 2. Þeir ætluðu að sýna þá á Sýn sem á þeim tíma hafði bara takmarkaða útbreiðslu á höfuð­borgar­svæðinu, þættirnir hefðu ekki einu sinni sést í Keflavík. Ég gat ekki sætt mig við það. Ég upplifði þetta þannig að það ætti að kaupa þættina, jafnvel dýru verði, en sópa þeim undir teppið. Það var partur af því sem klárlega veikti mig á þeim tíma, hvernig viðskilnaðurinn við Stöð 2 var. Það var ekki til að bæta stöðuna og ekki til að minnka samsæris­kenningar mínar í þessu öllu saman.“

Eftir sex vikur á geðdeild Land­spítalans og tvær vikur í endur­hæfingu í Hvera­gerði flaug Sigursteinn til Texas í Banda­ríkjunum þar sem þáverandi sambýlis­maður hans starfaði og notaði hann tímann til að safna orku áður en hann sneri til baka til að ljúka gerð þáttanna. Óhætt er að segja að þættirnir hafi vakið upp sterk viðbrögð og skömmu eftir að þættirnir voru sýndir var gerð skoðana­könnun í Mannlífi sem sýndi að 90 prósent lands­manna taldi að dómarnir í Guðmundar- og Geirfinns­málinu hafi verið rangir. En í raun gerðist ekkert í málinu sjálfu og haustið 1997 var beiðni Sævars um endur­upptöku í málinu hafnað.

„Ég man alltaf eftir samtali sem ég átti við Guðjón Skarp­héðinsson [einn sakborninga í málinu, innsk. blaðam.] sem var þá orðinn prestur á Snæfellsnesi. Hann sagði: „Sigursteinn, þú ert að gera þetta 20 árum of snemma. Þú verður að bíða í 20 ár, það eru allir á sínum stað.“ Það þurfti að bíða eftir því að þessir menn létu af störfum. En það var ákveðið áfall fyrir marga að fara í gegnum þessa þætti því núna, 21 ári síðar, hefur ekki eitt einasta atriði í þeim verið hrakið.“

Hélt þau myndu stúta mér í Kaupmannahöfn

Þótt þessum hluta Guðmundar- og Geirfinns­málsins væri lokið var baráttan við geðröskunina rétt að hefjast. Næsta orrusta fór fram í Kaupmanna­höfn vorið 1998. Sigursteinn var þá nýkominn frá Balkans­kaga þar sem hann vann að heimilda­mynd um flótta­fólk í Serbíu. „Við heyrðum þegar við vorum í Belgrad að það væru hafnar þjóðernis­hreinsanir í Kosovo og við vorum með fyrstu tökuliðum á staðinn. Það hafði mjög mikil áhrif á mig og ég var á þessum tíma orðinn mjög ör. Á leiðinni heim stoppaði ég í Kaupmanna­höfn og lenti þá í því að Serbar voru með útifund á Ráðhús­torginu til stuðnings Slobodan Milosevic. Ég var ekki alveg í stuði fyrir þetta og var í raun og veru heppinn að lenda ekki í meiriháttar vandræðum því ég ætlaði að fara upp á svið og halda ræðu. Eitt leiddi af öðru þar, ég var svefnlaus og upptekinn af því að það væru leyni­þjónustur á eftir mér, að hótelið væri njósna­greni og svo framvegis. Ég var kominn vel yfir strikið, búinn að gera allt vitlaust á hótelinu og það var ekkert annað að í stöðunni en að hringja á lögregluna og hún, ásamt móður minni, fylgdu mér á sjúkra­húsið í Hvidovre. Það var ekki um annað að ræða því ég vildi alls ekki fara til Íslands. Það var tengt Geirfinns­málinu.“

„Eitt leiddi af öðru þar, ég var svefn­laus og upp­tek­inn af því að það væru leyni­þjón­ustur á eftir mér, að hót­elið væri njósn­a­greni og svo fram­vegis. Ég var kom­inn vel yfir strikið, búinn að gera allt vit­laust á hót­el­inu og það var ekk­ert annað að í stöð­unni en að hringja á lög­regl­una.“

Þótt Kaupmanna­höfn sé ekki framandi staður í augum Íslendinga, segir Sigursteinn að það séu mjög framandi aðstæður að vera vistaður á geðsjúkrahúsi í Danmörku. Aðferðirnar þar séu töluvert frábrugðnar því sem gerist á Íslandi. Þar tíðkast til að mynda enn að óla niður þá sjúklinga sem eru órólegir. „Það að vera bundinn svoleiðis niður og vakna svo múlbundinn, þvingunin og ofbeldið, að vera mataður, fá ekki að fara á klósett, öll þessi niður­læging sem fylgir þessu, þetta er rosalega vond tilfinning. Ég var alveg sann­færður um það fyrstu dagana í Kaupmanna­höfn að þetta væri ekki spurning um hvort heldur hvenær og hvernig þau myndu stúta mér. Þetta var ekki auðveldur tími en hann var mjög áhugaverður.“

Taldi mig kominn á lygnan sjó

Eftir þetta kom Sigursteinn heim og sneri sér aftur að þáttagerð. Hann gerði úttekt á vændi og fíkniefna­neyslu í Reykjavík svo og eftir­minnilega seríu, Sönn íslensk sakamál. Sjúk­dómurinn hélt þó áfram að láta á sér kræla. „Árið 1999 fór ég í væga maníu en samt nægilega hressilega að talin væri ástæða til að vista mig. Eftir það hélt ég að ég væri alveg kominn á lygnan sjó. Það liðu 11 ár og ég var allt í einu kominn í dýra­verndunarmál og var að vinna með þá stöðu sem kom upp í Eyja­fjalla­jökuls­gosinu. Ég var þar dag eftir dag að vinna undir Eyja­fjöllum, með mér var Bandaríkja­maður sem mjög erfitt var að eiga við. Í þessum aðstæðum veiktist ég aftur.“

Þar sem geðröskunin hefur fylgt Sigursteini undan­farið 21 ár er hann farinn að þekkja vel inn á einkenni sjúk­dómsins. „Það sem gerist í öllum þessum tilvikum sem ég hef veikst er að ég er í streitu­umhverfi, ég missi svefn og hætti að borða. Það er ákveðin rútína sem ég þarf að hafa og ef hún er í lagi, get ég farið í gegnum alls konar álag án þess að veikjast. Þá hef ég fulla stjórn á geðhvörfunum. En þegar þetta fer úrskeðis er voðinn vís.“

Í öll þau skipti sem Sigursteinn hefur veikst hefur hann verið fljótur að jafna sig og snúið aftur til vinnu enda sé nauðsynlegt að hafa eitthvað fyrir stafni þegar bata­ferlið hefst. „Eitt af því versta sem gerist hjá fólki þegar það veikist og er tekið úr leik úr samfélaginu, að það sé mánuðum eða árum saman án verkefna – án hlutverks og tilgangs. Það er alveg glatað.“

„Það er ákveðin rútína sem ég þarf að hafa og ef hún er í lagi, get ég farið í gegnum alls konar álag án þess að veikj­ast. Þá hef ég fulla stjórn á geð­hvör­f­unum. En þegar þetta fer úrskeðis er voð­inn vís.“

Guðs lifandi feginn geðhvörfunum

Sigursteinn hefur nýlokið við að skrifa bók um geðhvörfin sem hann lýsir sem persónu­legu uppgjöri við sjálfan sig. Segir hann að bókin sem ber titilinn Geðveikt með köflum, hafi upphaf­lega verið skrifuð sem sjálfs­hjálparbók fyrir hann sjálfan. Þegar líða tók á verkefnið hafi hann kynnt hugmyndina fyrir Páli Valssyni útgefanda sem ákvað að slá til og gefa bókina út. „Ég sveiflaðist til og frá með þetta því ég efaðist um að svona persónulegar sögur ættu erindi við almenning. En þegar ég fór að skoða þetta fannst mér mjög áhugavert að sjá í hvaða umhverfi ég var þegar ég veikist, hvers konar aðdragandi var að veikindunum, hvernig þau lýstu sér og hvernig ég vann eða vann ekki úr þeim á mismun­andi tímum. Að hafa geðröskun er ekki veikleiki, þetta er styrk­leiki. Þetta er veikleiki ef þú ert á valdi geðsjúk­dómsins. Ef þú ert með geðsjúkdóm sem þú hefur tök á, er þetta styrk­leiki þinn. Þar með er ég ekki að óska fólki þess að fá geðsjúk­dóma en ef það er þannig, þá gefur þetta þér innsæi – þetta gefur þér reynslu sem er ekki hægt að fá með öðrum hætti. Þannig að ég er guðs lifandi feginn geðhvörfunum og vildi ekki án þeirra vera.“

„Að hafa geð­röskun er ekki veik­leiki, þetta er styrk­leiki. Þetta er veik­leiki ef þú ert á valdi geð­sjúk­dóms­ins.“

Sigursteinn segist oft vera spurður að því hvort hann muni eftir þeim tíma þegar hann hefur verið hvað veikastur. „Ég man þetta mjög vel. Ég man mjög vel ótrúlega ruglings­lega kafla í lífi mínu, inni á geðdeildum, í einhverjum aðstæðum sem eru að hluta súrrealískar. Ég man þetta allt saman og ég lýsi því í bókinni. En það er eins og sumir telji að minni okkar og reynslu sem höfum gengið í gegnum þetta, sé ekki treystandi. En þetta eru auðvitað jafnmikil sannindi og stað­reyndir eins og upplifanir annarra af okkur.“

Er gott að muna þetta?

„Það hefði stundum verið gagnlegt að gleyma meiru. En núna, þegar ég er í þessu uppgjöri, er mjög gott að muna. En það er ofsalega gott líka að skrifa sig frá þessum erfiðu köflum.“

Sævar hefði aldrei sætt sig við niðurstöðuna

Einn af þessum erfiðu köflum er vinnan að þáttunum um Guðmundar- og Geirfinns­málið sem Sigursteinn segir að hafi tekið mikinn toll. Við gerð þáttanna kynnist Sigursteinn Sævari Ciesielski vel og segir hann að Sævar heitinn hefði aldrei sætt sig við þessi málalok. „Af því að hann er saklaus af því að hafa orðið manni að bana en hann er áfram sekur um að hafa verið að búa til sögur. Ef það var eitthvað sem hann lfiði fyrir var það að nafn hans yrði hreinsað algerlega af þessu. Ekki bara að afsanna eða lýsa yfir sýknu varðandi þessi manns­hvörf heldur að sann­leikurinn kæmi í ljós. Ég held að það muni gerast. Ég býst við að þetta muni taka eitt eða tvö ár í viðbót en vonandi ekki svo lengi. Þegar málið verður skoðað getur þetta ekki staðið eftir.“

Mynd / Hallur Karlsson

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Gögnin eru hluti af 43 skjölum sem voru birt nýlega. Þar er einnig fjallað um óútskýrðar ratsjármælingar frá árinu 2023.
Menning

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt

Pólitík

Kristrún segir hallalaus fjárlög sleggjuna sem þurfi til að ná vöxtum niður

Heimur

Samsæris­kenningar spretta upp eftir undarlegt augnablik á blaðamanna­fundi

Innlent

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi

Innlent

Innkalla vinsælt jólasmáköku­deig vegna aðskotahluts

Neytendur eru beðnir um að farga vörunni eða skila henni.

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Hrafn­hljóð flýgur inn á manna­nafnaskrá

Sverrir spyr hvað heilli karla við ofbeldið í Grand Theft Auto

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra